Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1937, Page 29
Verslunarskýrslur 1935
9. ylirlit. Tollarnir 1901 1933.
Droits de ilouane 1901—1935.
stjórnarinnar vegna styrjaldarinnar. Með vörutolli er líka talinn auka-
tollur af bensíni og tollur af hjólabörðum og gúmslöngum á bifreiðar,
sem hvorutveggja er ætlað að vera bifreiðaskattur og ganga á til um-
bóta og viðhalds akvegum. Tollar liessir voru fyrst lagðir á á miðju ári
1932, en bensíntollurinn er í framkvæmdinni sölugjald, því að hann
er ekki innheimtur fyr en eftir að sala hefur farið fram. Hins vegar
nær yfirlitið ekki yfir þann toll, sem greiddur var sem stimpilgjald af
útfluttum vörum 1918—21, og af innfluttum vörum 1920—21, því að
þessar greiðslur hafa eigi verið greindar frá öðru stimpilgjaldi.
Á 9. yfirliti má sjá hlutföllin á milli aðaltollanna innbyrðis á hverju
ári. Aftur á móti verður ekki bygður á því samanburður á milli áranna,
vegna þess hve peningagildið hefur breyst. En el' inn- og útflutningstoll-
arnir eru bornir saman við verðmagn inn- og útflutnings sama árið, ])á
má bera þau hlutföll saman frá ári til árs. Sýna þau, hve miklum hluta af
verðmagninu tollarnir nema á ári hverju, og þess vegna hvort tollgjöld-
in hafa raunverulega hækkað eða lækkað. I eftirfarandi yfirliti er slíkur
samanburður gerður fvrir árin síðan um aldamót og sýnt hve miklum
hundraðshluta af verðmagni innflutnings og útflutnings inn- og útflutn-
ingstollarnir nema á ári hverju.
') Auk þess stimpilgjald. 1 °/o af innlluttum vörunj (nema 15°/o af lcikföngum,
frá vorinu 1920 til ársloka 1921). 2) Auk þess stimpilgjald 1 °/o af útfluttiim vörum
(frá haustinu 1918 til ársloka 1921).