Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1950, Blaðsíða 10
8*
Verzlunarskýrslur 1948
minna á móts við hinar dýrari í innflutningnum nú lieldur en áður. 1 út-
flutningnum er aftur á móti miklu minni munur á vörumagnsvísitölu og
þyngdarvísitölu.
Síðan 1940, er tollskráin gekk í gildi, eru innflutningsskýrslurnar
komnar í órofa samband við tollafgreiðsluna. Hagstofan fær samrit af
skýrslu þeirri, sem gefin er til tollstjórnarinnar. í innflutningsskýrslunum
er þvi allt talið, sem tollafgreitt hefur verið, en hins vegar aðeins það, sem
tollafgreitt hefur verið, og á þeim tíma, þegar það er tollafgreitt. Ef vara
liggur óafgreidd í pakkhúsi skipaafgreiðslu, er hún fyrst talin innflutt,
þegar hún er tollafgreidd, og ef hún er endursend áður en liún er af-
hent innflytjanda, telst hún ekki innflutt.
1. yfirlit (bls. 7*) sýnir innflutning og útflutning í hverjum
m á n u ð i siðastliðin 3 ár sam kvæmt verzlunarskýrslum. Er þar miðað
við, hvenær skýrslurnar liafa verið tollafgreiddar, en ekki, hvenær vör-
urnar hafa komið til landsins.
2. Innfluttar vörutegundir.
Imported commodities.
Tafla IV A (bls. 12—64) sýnir, hve mikið hefur flutzt til landsins af
hverri vörutegund. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir hinni alþjóðlegu
vöruskrá Þjóðabandalagsins, sem var fyrst lögð til grundvallar í verzl-
unarskýrslunum fyrir árið 1938. í verzlunarskýrslunuin fvrir árin 1935—
37 var líka birt aukalega tafla, sem var raðað eftir vöruskrá Þjóðabanda-
lagsins (tafla VI). Þar sem þessi vöruskrá er lágmarkslisti til saman-
burðar við önnur lönd, þá hefur sundurliðunin í verzlunarskýrslunum
á undanförnum árum verið gerð allmiklu ýtarlegri með því að skipta
númerum vöruskrárinnar i undirliði. Þessi sundurliðun hefur nú síðan
1947 verið gerð allmiklu ýtarlegri, þar sem hvert einstakt tollnúmer er
gert að sérstökum lið, þar sem um nokkurn teljandi innflutning hefur
verið að ræða. Jafnframt er tilfært tollskrárnúmerið við hvern lið. Þar
sem verzlunarskýrsluliður nær yfir fleiri en eitt tollskrárnúmer er þyngd
og verð liðarins i heid tilgreint með almennu letri, en þar á eftir með
smáletri innflutningur hvers tollskrárliðar, sem fellur undir þann verzl-
unarskýrslulið.
Öllum vörutegundum í vöruskránni er skipt í 49 vöruflokka og þeim
aftur skipt í 16 stærri vörubálka. Yfirlit um þessar skiptingar eru í töflu 1
og II (bls. 1—3), en i sjálfri vöruskránni sést, hvaða vörutegundir teljasl
til hvers vöruflokks og vörubálks.
í töflu IV (bls. 12—69) sést, hvernig einstökum vörutegundum er nið-
urraðað í verzlunarskýrslunum. Er sú niðurröðun mjög frábrugðin þeirri
niðurröðun, sem notuð er i tollskránni. En í viðaukatöflu aftan við inngang