Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1950, Blaðsíða 31
Verzlunarskýrslur 1948
29'
1948 numið 2.3 millj. kr. eða 0.5% af öllum innflutningnum (1947: 4.8
millj. eða 0.9%, 1946: 12.g millj. kr. eða 2.s%, 1945: 15.o millj. eða 5.7%,
1944: 4.2% millj. eða 1.7%).
Um verðmæti útflutnings í pósti eru ekki lil tilsvarandi skvrslur, enda
hefur verið lítið um, að verzlunarvörur væru sendar út i pósti, en póst-
bögglar, sem sendir eru að gjöf, hvort heldur hingað til lands eða héðan
frá einstaklingum, eru ekki teknir með í verzlunarskýrslurnar.
6. Tollarnir.
Customs duties.
Þegar tollskráin gekk í gildi 1940 var íiætt að reikna með toll-
flokkum þeim, sem gert hafði verið áður (vinfangatolli, tóbakslolli,
kaffi- og sykurtolli, te- og súkkulaðstolli og vörutolli, auk verðtolls),
og öllum tollunum skipt í tvo aðalflokka, vörumagnstoll og verðtoll,
og er aðeins aðalupphæð þeirra hvors um sig tilfærð í ríkisreikningn-
um. Hins vegar er í tollskránni talinn upp aragrúi af einstökum
vörutegundum og tilgreint, livaða tollgjald beri að greiða af hverri. Ef
vitað er um innflutningsmagnið og innflutningsverðið, má sjá, live
mikill tollur fæst af hverri vörutegund. Innflutningsverðið sést í verzl-
unarskýrslunum, því að verðtollur samkvæmt tollskránni er miðaður
við innkaupsverð að viðbættum flutningskostnaði til landsins. Þó hefur
verið gerð sú breyting, að síðan 16. apríl 1942 hefur ekki verið reiknaður
neinn verðtollur af farmgjaldi af sykri. Af gömlu tollvörunum (áfengi,
tóbaki, kaffi og sykri, tei og kakaó) er vörumagnstollnrinn miðaður
\ið nettómagn, og má líka sjá það í verzlunarskýrslunum. Af öðrum
vörum miðast vörumagnstollurinn aftur á móti við brúttómagn, og sést
það ekki í verzlunarskýrslunum. Verður því ekki unnt að reikna lit eftir
verzlunarskýrslunum og tollskránni, hve mikill vörumagnstollur fæst
af þeim vörum, nema með því að bæta fyrst við vörumagn verzlunar-
skýrslnanna áætlaðri upphæð fyrir umbúðaþyngdinni.
I töflu VIII (bls. 110—111) hefur verið reiknaður út þyngdartollurinn
árið 1948 af vörum gömlu tollflokkanna (áfengi, tóbaki, kaffi og sykri, tei
og kakaó) eftir innflutningsmagni þeirra i verzlunarskýrslunum. Má af
því fá samanburð við þessa tolla undanfarin ár. Slikur samanburður er
í 9. yfirliti, sem nær yfir 5 síðustu árin og þrjú 5 ára tímabil. Er þar einnig
tekin heildarupphæð vörumagnstollsins af öðrum vörum og verðtollurinn.
Árið 1948 hefur vöruinagnstollurinn alls lækkað um rúml. 1% millj. ltr.
eða tæpl. 2%% frá árinu á undan, en verðtollurinn hefur lækkað um
14.4 millj. kr. eða um 20%. Alls hafa innflutningstollarnir lækkað úr
96 millj. kr. árið 1947, niður í 81 millj. kr. árið 1948 eða um nál. 16%.
í töflu VIII hefur einnig verið reiknaður út tollur af nokkruin vörum
öðruin heldur en göinlu lollvörunum. Eru það vörur, þar sem umbúða