Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2014, Qupperneq 16
16 Fréttir Erlent Vikublað 4.–6. mars 2014
Bestu löndin til að
setjast í helgan stein
n Best að fara á eftirlaun í Sviss n Ísland er í 11. sæti samkvæmt Business Insider n Norðurlöndin áberandi í efstu sætunum
20 Ísrael
Heilsufar: 7,9
Fjárhagur: 6,3
Lífsgæði: 8,1
Efnisleg hagsæld: 7,0
n Lífsgæði í Ísrael eru með ágætum og
heilsufarið gott, samkvæmt úttekt Business
Insider. Landið fellur hins vegar um átta
sæti frá því í fyrra, aðallega vegna versnandi
fjárhags. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn komst í
skýrslu á dögunum að því að miklar fjárhags-
legar hindranir væru framundan – bæði á
hlutabréfamarkaði og hvað varðar ríkissjóð.
19 Bandaríkin
Heilsufar: 8,1
Fjárhagur: 6,5
Lífsgæði: 8,0
Efnisleg hagsæld: 6,8
n Bandaríkin hafna annað árið í röð í 19. sæti
af löndunum 150 sem metin voru. Lífsgæði eru
góð í Bandaríkjunum og heilsufarið almennt
líka. Tekjur á hvern íbúa eru þær sjöttu hæstu
í heimi en það sem fellir landið er hversu mikill
ójöfnuðurinn er. Bilið á milli fátækra og ríkra
er gífurlegt. Bandaríkin eru í 33. sæti á lista
yfir lífslíkur.
18 Bretland
Heilsufar: 8,1
Fjárhagur: 5,8
Lífsgæði: 8,7
Efnisleg hagsæld: 7,2
n Bretland færist upp um tvö sæti á listanum
frá því í fyrra þrátt fyrir náttúruhamfarirnar
í janúar (janúar var sá blautasti frá árinu
1766) er gríðarleg flóð settu líf fjölda fólks úr
skorðum. Lífsgæði eru mjög mikil í Bretlandi
og landið fær 8,7 af 10 mögulegum þar.
Fjárhagurinn, er eins og víðar, bágur og dregur
landið niður.
17 Suður–Kórea
Heilsufar: 7,7
Fjárhagur: 6,8
Lífsgæði: 7,1
Efnisleg hagsæld: 8,3
n Suður-Kórea er hástökkvari ársins – eða
í það minnsta einn af þeim. Landið fer upp
um 10 sæti og kemst því í fyrsta sinn inn á
topp 20 listann. Meðaltekjur á mann hafa
vaxið um sjö prósent á ári eða meira í ríflega
aldarfjórðung. Höfuðborgin Seúl, iðar af
velsæld og tekjujöfnuður er á við Frakkland
og Holland.
16 Tékkland
Heilsufar: 8,3
Fjárhagur: 6,3
Lífsgæði: 7,6
Efnisleg hagsæld: 8,0
n Þrátt fyrir að almennt verðlag hafi hækkað
nokkuð í Tékklandi á liðnum misserum er
höfuðborgin Prag enn tiltölulega ódýr á
evrópskan mælikvarða. Túrismi er blómlegur í
Tékklandi og landið kemur þokkalega út á öll-
um mælikvörðunum fjórum. Heilsufar er betra
en til dæmis í Bandaríkjunum og Bretlandi og
efnisleg hagsæld er á góðu róli.
15 Frakkland
Heilsufar: 8,8
Fjárhagur: 6,1
Lífsgæði: 8,5
Efnisleg hagsæld: 7,4
n Þeir sem vilja sækjast eftir góðu heil-
brigðiskerfi í ellinni ættu ekki að þurfa að
leita lengra en til Frakklands. Félagslega
kerfið í Frakklandi er af Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnuninni, WHO, talið það fremsta
í heimi. Fjárhagurinn og efnisleg hagsæld
íbúa dregur landið þó niður í fimmtánda
sæti.
14 Kanada
Heilsufar: 7,9
Fjárhagur: 6,9
Lífsgæði: 8,3
Efnisleg hagsæld: 7,6
n Kanada kemur vel út á öllum mælikvörðum
og þar virðist, samkvæmt þeim, vera gott að
dvelja í ellinni. Efnahagurinn er þokkalegur,
raunar betri en í mörgum öðrum löndum á
listanum, en landið hefur lengi treyst á nátt-
úruauðlindir sínar og viðskipti, þá sérstaklega
við stóra bróður sunnan landamæranna.
13 Holland
Heilsufar: 8,6
Fjárhagur: 5,6
Lífsgæði: 8,3
Efnisleg hagsæld: 8,6
n Hollendingar voru af OECD árið 2011 taldir
hamingjusamastir allra þjóða. Í Hollandi er
atvinnuleysi lítið og fólkið vinnur færri vinnu-
stundir en flestar aðrar þjóðir. Raunar skora
þeir hátt á öllum mælikvörðum nema þeim
fjárhagslega. Fjárhagur Hollands er verri en hjá
öllum öðrum þjóðum á listanum.
12 Belgía
Heilsufar: 8,6
Fjárhagur: 6,2
Lífsgæði: 8,1
Efnisleg hagsæld: 8,2
n Belgar státa af heilbrigðiskerfi sem aðeins
Frakkar slá út – sem er kannski eins gott í ljósi
óhóflegs vöffluáts. Efnahagurinn í Belgíu,
þessari stofnþjóð Evrópusambandsins, er á
uppleið eftir niðursveifluna í Evrópu og síðasti
ársfjórðungurinn í fyrra var sá besti í þrjú ár.
Heilsufar Belga er mjög gott og lífsgæði einnig.
11 Ísland
Heilsufar: 8,5
Fjárhagur: 6,0
Lífsgæði: 8,5
Efnisleg hagsæld: 8,3
n Viðsnúningur á efnahag Íslands, eftir
hrunið haustið 2008, hefur vakið athygli víða
um heim og um það hefur mikið verið skrifað.
Hér er, þrátt fyrir allt, að finna eitthvert
besta heilbrigðiskerfi í heimi og lífsgæði hér
eru eins og best gerist á alþjóðavísu. Ísland
skorar hátt á öllum mælikvörðum nema þeim
fjárhagslega.
10 Lúxemborg
Heilsufar: 8,5
Fjárhagur: 5,9
Lífsgæði: 8,0
Efnisleg hagsæld: 8,9
n Jafnvel þó Lúxemborg hafi bætt sig á milli
ára hvað varðar lífsgæði tekur ríkið dýfu á milli
ára. Það helgast af fjárhagslegum erfiðleikum
ríkisins. Ríflega hálf milljón manna býr í þessu
vel stæða ríki en fjármálageirinn – knúinn
af hagstæðu skattaumhverfi – hefur verið
aðalsmerkið. Lúxemborg er í fimmta sæti í
heiminum yfir tekjur á hvern íbúa.
9 Nýja-Sjáland
Heilsufar: 7,9
Fjárhagur: 7,2
Lífsgæði: 8,7
Efnisleg hagsæld: 7,5
n Lífsgæði í Nýja-Sjálandi eru eins og best ger-
ist í heiminum. Rétt eins og Íslendingar hafa
Nýsjálendingar miklar tekjur af ferðamönn-
um – enda er landið ægifagurt og stórbrotið.
Fjármálin eru einnig í góðu lagi – ólíkt því
sem viðgengst hjá mörgum öðrum ríkjum á
listanum. Nýsjálendingar skora hátt á flestum
mælikvörðum.
8 Finnland
Heilsufar: 8,2
Fjárhagur: 6,8
Lífsgæði: 8,3
Efnisleg hagsæld: 8,1
n Frændur okkar Finnar eru í góðum málum
– eins og aðrar Norðurlandaþjóðir. Þessi fimm
milljóna manna þjóð státar af besta mennta-
kerfi í heimi – samkvæmt OECD. Mælingar sýna
að Finnar eru ánægðir með lífið og þar eru engin
stór samfélagsleg vandamál. Rétt er þó að vara
eldri borgara við því að hlutfallslega eru hvergi
fleiri þungarokkshljómsveitir en í Finnlandi.
7 Þýskaland
Heilsufar: 8,8
Fjárhagur: 6,3
Lífsgæði: 8,5
Efnisleg hagsæld: 8,2
n Þjóðverjar eru þekktir fyrir ráðdeild
sína í fjármálum og mikinn stöðugleika í
efnahagslífinu. Það er frábært að eldast í
Þýskalandi og leiguverð er til að mynda mun
lægra en í Bandaríkjunum. Heilbrigðiskerfið
þýska er mjög gott og nálægt því að vera á
pari við það franska – sem þykir það besta
í heimi.
4 Svíþjóð
Heilsufar: 8,3
Fjárhagur: 6,8
Lífsgæði:8,7
Efnisleg hagsæld: 8,2
n Það kostar álíka mikið að búa í Stokk-
hólmi og San Francisco í Bandaríkjunum,
sum sé mjög dýrt. En ef þú vilt búa í borg
og vilt jafnframt hafa náttúruna í nálægð
er Stokkhólmur frábær kostur. Fáar borgir
búa yfir jafn mörgum „grænum svæðum“ og
Stokkhólmur, en þess má geta að borgin fékk
sérstök verðlaun fyrir það af Evrópusam-
bandinu árið 2010.
3 Austurríki
Heilsufar: 9,0
Fjárhagur: 6,3
Lífsgæði: 8,6
Efnisleg hagsæld: 8,9
n Lífsgæði eru hvergi meiri en í Vínarborg
af öllum borgum heimsins, samkvæmt
úttekt greiningarfyrirtækisins Mercer. Í
Austurríki er það ekki bara menningar-
borgin Vín sem skarar fram úr. Austurrík-
ismenn búa að einstöku heilbrigðiskerfi
og lífsgæði eru almennt mikil í Austurríki.
Austurríki hefur færst upp á við á listanum
tvö ár í röð.
Hamingja í ellinni
Norðurlöndin eru góður staður til að verja
síðustu árunum, samkvæmt Business
Insider. Mynd SHuttErStock