Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2014, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2014, Blaðsíða 44
36 Fólk Vikublað 4.–6. mars 2014 Pantaðar Pítsur og sjálfsmyndir Óskarsverðlaunin voru hin besta skemmtun Ó skarsverðlaunahátíðin fór fram með pomp og prakt á sunnudagskvöldið, en þetta var í 86. sinn sem hátíðin er haldin. Mikið var um dýrð- ir í Dolby-leikhúsinu enda voru allar helstu stjörnur Hollywood mættar til að heiðra það besta í kvikmyndum á árinu sem var að líða. Ellen fór á kostum Ellen DeGeneres fór á kostum sem kynnir kvöldsins. Hún gerði góð- látlegt grín að helstu stjörnum há- tíðarinnar og fékk áhorfendur líka til að taka virkan þátt í sýningunni. Þannig tók hún til að mynda stjörn- um prýdda sjálfsmynd sem hefur far- ið eins og eldur í sinu um netið og sló meira að segja nýtt met, en hátt í 2,5 milljónir manns hafa „endurtístað“ myndinni á Twitter sem er það mesta í sögu samskiptamiðilsins. Eins tók Ellen upp á því að panta pítsu fyrir svangar stjörnurnar, en Brad Pitt tók að sér að dreifa plastdiskum á með- an spjallþáttadrottningin gekk um og útdeildi pítsusneiðum. Til að borga fyrir veitingarnar gekk hún svo á milli stjarnanna og safnaði peningum í hattinn hans Pharrells Williams. Jared Leto stal senunni Það var hinn bandaríski Jared Leto sem hlaut fyrstu verðlaun kvöldsins, en hann hreppti hnossið fyrir leik sinn í Dallas Buyers Club. Leto þótti af mörgum bera af í ræðuhöldum, en hann hélt afar hjartnæma ræðu þar sem hann þakkaði móður sinni og bróður sérstaklega. Leto endaði ræðuna svo á þessum fallegu orðum: „Þetta er fyrir þær 36 milljónir manna sem hafa tapað í baráttunni við alnæmi og þau ykkar þarna úti sem hafið fundið fyrir óréttlæti af því hver þið eruð eða hvern þið elskið. Í kvöld stend ég hér fyrir framan heim- inn, með ykkur og fyrir ykkur.“ Leto þótti einnig stela senunni á rauða dreglinum, en hann klæddist hvítum jakka við hvíta skyrtu, svart- ar buxur og eldrauða slaufu auk þess sem hann skartaði sínu fallega, síða rokkarahári. Þakkaði Woody Allen Annar senuþjófur á verðlaununum var hin gullfallega Lupita Nyong‘o. Hún þótti einstaklega falleg í ljós- bláum kjól frá Prada auk þess sem hún hélt bæði einlæga og hjartnæma þakkarræðu. Nyong‘o var valin besta leikkona í aukahlutverki fyrir myndina 12 Years a Slave, sem einnig var valin besta myndin, og endaði ræðu sína á þessum fallegu orðum: „Þegar ég lít á þessa gylltu styttu, megi hún minna mig og öll lítil börn á að sama hvaðan þú ert þá eru draumar þínir fullgildir.“ Þakkarræða áströlsku leikkon- unnar Cate Blanchett vakti einnig athygli, en hún var valin best leik- kona í aðalhlutverki fyrir myndina Blue Jasmine. Margir biðu þess með eftirvæntingu að sjá hvort og hvern- ig Blanchett myndi þakka leikstjór- anum Woody Allen, en sem kunn- ugt er skrifaði fyrrverandi stjúpdóttir hans, Dylan Farrow, opið bréf fyrir skemmstu þar sem hún sakaði Allen um að misnota sig kynferðislega sem barn. Í bréfinu minntist Farrow með- al annars á Blanchett og fleiri leik- ara sem hún telur hafa tekið afstöðu með Allen, en í ræðu sinni þakk- aði Blanchett leikstjóranum fyrir að hafa valið sig í hlutverkið. Þá nýtti hún tækifærið og gagnrýndi skort á myndum með konum í aðalhlutverki og benti á að slíkar myndir væru vin- sælar og þénuðu mikla peninga. Williams í stuttbuxum Á rauða dreglinum gerðist líka ýmislegt skemmtilegt. Jennifer Lawrence endurtók leikinn frá því í fyrra en hún datt um umferðarkeilu á rauða dreglinum, en það er flestum enn í fersku minni þegar Lawrence datt á leiðinni upp á svið til að taka við verðlaununum sínum. Hún náði þó að bjarga sér frá falli í þetta sinn með því að grípa í óþekkta konu sem stóð fyrir framan hana. Pharrell Williams vakti líka nokkra athygli á sunnudaginn, en hann mætti á rauða dregilinn íklæddur jakkafatajakka og stutt buxum. Söngvarinn tók svo lagið Happy, sem hann var einmitt tilnefndur fyrir, og brá á leik með því að stíga út í salinn og fá stjörnurnar til að stíga með sér nokkur dansspor, en meðal þeirra sem stóðu upp og dilluðu sér voru Lupita Nyong‘o, Meryl Streep og Amy Adams. n Hörn Heiðarsdóttir horn@dv.is Sjálfsmyndin fræga Ellen DeGeneres safnaði saman nokkrum af stærstu stjörnum Hollywood á eina sjálfsmynd. Flottur Jared Leto þótti bera af í ræðuhöld- um kvöldsins sem og á rauða dreglinum. Fagnað Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar 12 Years a Slave var valin besta myndin. Tók lagið Pharrell Williams fékk Meryl Streep til að dilla sér við lagið Happy. Útdeildu pítsum Ellen DeGeneres gaf svöngum leikurum pítsusneiðar á meðan Brad Pitt útdeildi plastdiskum. MyndIR REuTERS Glæsileg Lupita Nyong'o bar af á rauða dreglinum í þessum fallega kjól.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.