Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2014, Qupperneq 32
Vikublað 4.–6. mars 201424 Neytendur
Matvæla-
rekstrarfræði
á Bifröst
Boðið verður upp á nám í mat-
vælarekstrarfræði frá og með
næsta hausti við Háskólann á
Bifröst en samkvæmt fréttatil-
kynningu ætlar skólinn með því
að svara kalli atvinnulífsins um
land allt sem í vaxandi mæli hef-
ur áhuga á að auka nýsköpun og
framþróun á sviði matvælafram-
leiðslu. „Lögð er áhersla á alla
virðiskeðjuna frá frumfram-
leiðslu að sölu til hins endanlega
neytanda. Námið er 180 ECTS og
lýkur með BS gráðu í viðskipta-
fræði með áherslu á matvæla-
rekstur og hægt verður að stunda
það í fjarnámi og staðnámi eða
blöndu af þessu tvennu,“ segir í
tilkynningunni en námið verður
í samvinnu við Landbúnaðarhá-
skóla Íslands og kennslan m.a. í
samvinnu við Matís.
Lendingar-
gjöld hækka
Ný árstíðabundin gjaldskrá flug-
vallargjalda á Keflavíkurflug-
velli tekur gildi 1. nóvember
næstkomandi. Við breytinguna
munu notkunargjöld flugvallar-
ins lækka að meðaltali um 19%
yfir vetrarmánuðina en hækka
um 4–5% yfir sumarmánuðina.
Vetrargjaldskráin tekur gildi 1.
nóvember nk. en sumargjald-
skrá tekur fyrst gildi 1. júní 2015
og hafa breytingar því ekki áhrif
á komandi sumri. Breytingin fel-
ur í sér að lendingargjöld flug-
véla hækka en heildarfarþega-
gjöld lækka. Einnig er gerð sú
breyting að brottfarargjald verð-
ur innheimt af öllum farþegum
sem leið eiga um flugvöllinn,
bæði á leið úr landi og einnig
skiptifarþegum. Er áætlað að ár-
legar tekjur vegna þessa muni að
óbreyttu nema um 250 milljón-
um króna frá og með árinu 2015.
Næturálag í
verslun 10-11
Sérstakt næturálag verður lagt
á ákveðnar vörur í verslun 10-
11 í Austurstræti frá miðnætti til
klukkan sjö á morgnana. Þetta er
ekki raunin í öðrum verslunum
keðjunnar.
Árni Pétur Jónsson forstjóri
10-11 segir næturálagið að jafn-
aði um 8–9% ofan á almennt
verð. „Ástæðan fyrir auknu næt-
urálagi í þessari verslun er að
þar er mikil umferð á nóttinni,
sérstaklega á fimmtudögum til
og með sunnudegi. Á þeim tíma
aukum við öryggisgæsluna,“ segir
hann en vill ekki útlista öryggis-
mál nánar þar sem slíkar upplýs-
ingar eru eðli málsins samkvæmt
sjaldnast gefnar upp. „Afleiðingin
af þessu er sú að rekstrarkostn-
aðurinn á nóttinni í Austurstræti
eykst verulega. Til að mæta aukn-
um kostnaði höfum við farið
þessa leið, eins og áður segir að
hækka álagninguna í þessari einu
búð í takmarkaðan tíma. Með
þeim hætti má segja að þeir sem
nýta sér þjónustu 10-11 Austur-
stræti að nóttu til greiða fyrir
kostnaðaraukann,“ segir Árni.
Óheimilt að miða við 0% verðbólgu
N
eytendastofa telur að verð-
tryggð lán til neytenda séu að
fullu lögleg. Hins vegar kemst
stofnunin að þeirri niður-
stöðu að lánveitendum hafi verið
með öllu óheimilt að taka mið af 0%
verðbólgu við útreikninga árlegr-
ar hlutfallstölu kostnaðar, heildar-
lántökukostnaðar og framsetningu
á greiðsluáætlun. Það verklag brjóti
í bága við lög um neytendalán og
lög um eftirlit með óréttmætum
viðskiptaháttum og gagnsæi mark-
aðarins. Neytendastofa birti nýlega
ákvörðun í máli er varðar verðtryggt
húsnæðislán sem Íslandsbanki veitti
árið 2005.
Í tilkynningu frá Íslandsbanka
segir að bankinn sé ósammála
niðurstöðu Neytendastofu. Fyrir
gildistöku nýrra laga um neytenda-
lán árið 2013 byggði Íslandsbanki
framkvæmd sína við veitingu verð-
tryggðra lána á þeirri túlkun orð-
anna „óbreytt verðlag“ í 12. grein
laga um neytendalán að gera ætti ráð
fyrir óbreyttri vísitölu neysluverðs. Í
ákvörðun sinni túlkar Neytendastofa
fyrirmæli greinarinnar þannig
að gera skuli ráð fyrir sömu verð-
bólgu og var þann mánuð sem lán-
ið var veitt. „Þeirri túlkun er bankinn
ósammála“ segir í tilkynningunni en
Íslandsbanki hyggst áfrýja málinu til
áfrýjunarnefndar neytendamála.
Hagsmunasamtök heimilanna
fagna niðurstöðunni og segja flest ef
ekki öll verðtryggð neytendalán hér
á landi, þar með talin húsnæðislán,
brjóta í bága við umrædd lagaákvæði.
Ekki sé vitað um nein tilfelli þess að
lánveitendur verðtryggðra neytenda-
lána hafi á undangengnu tímabili
tekið mið af raunverulegri verðbólgu
við útreikning á árlegri hlutfalls-
tölu kostnaðar og heildarlántöku-
kostnaði. Að áliti Hagsmunasamtaka
heimilanna þýðir þessi niðurstaða að
lánveitendur þurfi að endurgreiða
allar verðbætur sem innheimtar hafa
verið á grundvelli verðtryggðra neyt-
endalánasamninga sem haldnir eru
sambærilegum ágöllum. n
fifa@dv.is
Úrskurður Neytendastofu varðandi lán frá Íslandsbanka
Íslandsbanki Bankinn
hyggst áfrýja málinu
til áfrýjunarnefndar
neytendamála.
Matvara gæti
lækkað um 25 %
n Áhrif ESB á neytendur n Tollar gagnvart öðrum gætu hækkað
N
eytendasamtökin hafa
ekki tekið afstöðu til þess
hvort Ísland eigi að ganga
í Evrópusambandið enda
liggur ekki samningur
fyrir,“ segir Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasamtakanna,
en hart er nú deilt um þá ákvörðun
stjórnvalda að hætta við aðildar-
umsókn að Evrópusambandinu.
Vaxtastig hátt
Árið 2008 létu samtökin vinna
skýrslu fyrir sig þar sem farið var
yfir áhrif aðildar á neytendur hér-
lendis. Jóhannes segir bankahrunið
hafa áhrif hér á. „Það sem hefur að-
allega breyst frá því skýrslan kom
út er verðlag hérna. Krónan hrap-
aði og það breytir einhverju varð-
andi vöruverð. Hins vegar stend-
ur ennþá að vaxtastig sé mjög hátt
hérna og að það myndi lækka með
inngöngu í Evrópusambandið,“
segir hann. „Síðan að sjálfsögðu ef
við gefum okkur að Ísland myndi
ganga í Evrópusambandið og taka
upp evru, það kostar okkur ákveðið
að vera með hana sem mynt en
með evru myndi viðskiptakostnað-
ur lækka.“
Verðmunur ekki jafn mikill
„En núna þegar við erum að bera
saman vöruverð hérna og vöru-
verð í öðrum löndum þá er þessi
samanburður með öðrum hætti en
hann var. Á meðan krónan var sterk
var samanburðurinn okkur mjög
í óhag. Krónan er miklu veikari
þannig að ef þú berð saman vöru-
verð hér miðað við gengi krónunnar
er verðmunurinn ekki jafn æpandi,“
segir hann.
Látið reyna á samning
„Hins vegar legg ég áherslu á það
að Neytendasamtökin gáfu út þessa
skýrslu en hvöttu til þess á þingi að
látið yrði á það reyna hvernig samn-
ingi við gætum náð við Evrópusam-
bandið og síðan færi það í þjóðar-
atkvæði. Það er erfitt að meta það á
meðan ekki liggur fyrir samningur,“
segir Jóhannes.
Tollabandalag lækkar verð
Í fyrrnefndri skýrslu segir meðal
annars: „Með aðild að ESB yrði Ís-
land um leið aðili að tollabanda-
lagi ESB. Því myndu þeir tollar sem
enn eru milli Íslands og ESB-land-
anna falla niður og munar þar mestu
um landbúnaðarvörur. Þetta myndi
skila sér í lægra verði á þessum vör-
um. Tollar gagnvart ríkjum utan ESB
gætu hins vegar í sumum tilvikum
hækkað.“
Þá segir að með aðild að tolla-
bandalaginu myndu netviðskipti
við fyrirtæki innan ESB verða ódýr-
ari og einfaldari. Slíkt myndi auka
samkeppni gagnvart ýmsum inn-
lendum fyrirtækjum.
Matvælaverð lækki
„Talið er að matvælaverð geti lækkað
um allt að 25% með inngöngu Ís-
lands í ESB,“ segir í skýrslunni en
eins og áður segir hafði hátt gengi
krónunnar fyrir hrun töluverð áhrif
hér á. Um vexti á lánum segir: „Með
aðild að myntbandalagi ESB má
gera ráð fyrir að vextir á íbúðalánum
myndu lækka töluvert. Erfitt er hins
vegar að segja til um hve mikil sú
lækkun yrði.“
Þá gerir skýrslan ráð fyrir aukinni
samkeppni vegna viðskipta og fjár-
festinga erlendra aðila hér á landi.
Að lokum segir að með aðild að ESB
myndu Íslendingar geta sótt í ýmsa
sjóði sem ekki er mögulegt í dag. Þar
má nefna styrki til landbúnaðar og til
byggðamála. Einnig yrði samstarf við
lönd ESB öflugra á ýmsum sviðum
eins og í mennta- og menningarmál-
um, rannsóknum og félagsmálum.
Þjóðin velji
„Það var mat þings Neytendasam-
takanna að hér sé um þannig mál
að ræða að við fáum ekki að vita fyrr
en með aðildarviðræðum hverjir séu
þeir kostir og gallar sem fylgja inn-
göngu okkar í ESB,“ segir Jóhannes
en leggur áherslu á að þjóðin sjálf
taki endanlega ákvörðun um þetta
stóra mál í þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Það er hins vegar hlutverk Neyt-
endasamtakanna að benda á hags-
muni heimilanna í þessu máli, enda
ber samtökunum að gæta hagsmuna
þeirra.“ n
Auður Alfífa Ketilsdóttir
fifa@dv.is
Jóhannes Gunnarsson
Formaður Neytendasamtak-
anna leggur áherslu á að látið
sé reyna á samning við Evrópu-
sambandið áður en ákvörðun
er tekin um inngöngu.