Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Qupperneq 3
Vikublað 10.–12. júní 2014 Fréttir 3
EyeSlices augnpúðar
Ferskari augu á 5 mínútum
Púðana má nota í 10 skipti
facebook.com/Eyeslices/IcelandUpplýsingar um sölustaði:
Lokað á heimild fyrir
aðgerðinni í vetur
n Guðmundur Felix enn í Frakklandi n Bíður eftir ágræðslu á nýjum höndum
G
uðmundur Felix Grétarsson
bíður eftir nýjum höndum
í Frakklandi en hann missti
báða handleggina við öxl í
vinnuslysi árið 1998. Til stóð
að hann færi í aðgerðina í byrjun árs
en tímasetningar hafa stöðugt verið
að breytast. Síðastliðinn nóvember
mátaði hann skurðarborð sem var
sérsmíðað fyrir aðgerðina. Nú er hins
vegar ljóst að Guðmundur Felix þarf
að bíða fram á haust hið minnsta eftir
að ágræðslan geti átt sér stað.
Verklagsreglur endurskrifaðar
„Af því að ég passa ekki inn í verk
lagsreglur fyrir svona aðgerðir þarf
að endurskrifa þær,“ útskýrir hann
í samtali við blaðamann. „Áður var
gat í kerfinu sem gerði mér kleift að
fara á svig við hefðbundnar verklags
reglur um það hvernig svona aðgerð
ir eru gerðar, hverjir geta fengið slík
ar aðgerðir og annað. Ég passaði ekki
inn í neitt slíkt, bæði af því að það
vantar meira á mig en almennt er
þegar svona aðgerðir eru gerðar og
annað. Þá þarf að bera væntanlegan
árangur saman við áhættuna og
meta hvort hún sé þess virði. Áhætt
an felst fyrst og fremst í því að það
þarf að setja mig á ónæmisbælandi
lyf en af því að það er búið að skipta
um lifur í mér þá er ég búin að vera á
slíkum lyfjum og engin ástæða til að
hafa áhyggjur af því. Þetta var engu
að síður inni í þessum verklags
reglum. Læknarnir ætluðu að nýta
sér heimild til að gera aðgerðina af
mannúðarástæðum en það var lokað
fyrir það með lagabreytingum í vetur.
Þannig að það er ekki hægt. Í staðinn
voru verklagsreglurnar endurskrif
aðar út frá mér.“
Skriffinnskan „djöfulleg“
Málið er nú til meðferðar hjá eftir
litsstofnuninni ANSM í Frakklandi.
„Þannig að það verður ekki hægt að
gera þetta fyrr en í haust hið fyrsta.
Það fara allir í sumarleyfi. Borgin
tæmist bara í júlí og ágúst og það er
ekki hægt að hafa mig á mannlausu
sjúkrahúsi. Þannig að stefnan er sett
á að ég geti farið á biðlista eftir sum
arið.“ Sjö ár eru síðan Guðmundur
Felix byrjaði að vinna í því að kom
ast í þessa aðgerð. Árið 2011 fékk
hann loks jákvætt svar. Núna hefur
hann verið úti í Frakklandi í heilt ár
að bíða. Þrátt fyrir að lokað hafi ver
ið fyrir þann möguleika að gera að
gerðina af mannúðarástæðum er
Guðmundur Felix hvergi banginn,
enda viss um að aðgerðin mun eiga
sér stað, fyrr en síðar. „Ég var nú
úti að borða læknunum þeim fyr
ir nokkrum dögum síðan. Þeir hafa
engar áhyggjur af því að þetta verði
ekki samþykkt. Skriffinnskan í Frakk
landi er bara djöfulleg.“
Brotnaði ansi víða
Það var hinn 12. janúar 1998 sem
Guðmundur slasaðist. Hann hafði
fyrir misskilning klifrað upp í mastur
Úlfarsfellslínu þar sem hann kom við
rafstreng með ellefu þúsund volta
spennu. Guðmundur féll niður átta
metra úr mastrinu og slasaðist alvar
lega. Auk þess sem hann missti báða
handleggina brotnaði hann ansi
víða, þar á meðal á hrygg, og fékk
áverka á bæði lungu og lifur. „Það var
strax nokkuð augljóst að lúkurnar
voru farnar. Lifrin á mér fór í kjölfar
ið. Svo segja allir að ég sé óttalegur
fáviti, ég veit ekki hvort ég hafi verið
það áður,“ segir hann hlæjandi. „Það
sem gerðist með lifrina var að það
varð svo mikill frumudauði eftir
slysið og dauðir vefir söfnuðust í lifr
inni og stífluðu hana og eyðilögðu.
Þar fyrir utan hef ég verið í þokka
legu standi,“ segir Guðmundur Felix,
sem er í dag við hestaheilsu: „Annars
væri ég ekki að fara í þessa aðgerð.
Fyrstu árin voru erfiðust, í fjögur ár
var ég alveg í steik en síðan hefur
þetta allt legið upp á við.“ n
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
ingibjorg@dv.is
„Það er ekki
hægt að
hafa mig á mann-
lausu sjúkrahúsi
Með læknunum Guðmundur Felix fór út að borða með læknunum sem standa að að-
gerðinni, móður sinni og dóttur.
Í góðum gír Guð-
mundur Felix mætir
örlögum sínum af
hógværð með þolin-
mæði að vopni. Í sjö ár
hefur hann unnið að
því að komast í þessa
aðgerð og nú er ljóst að
hann þarf að bíða fram
á haust hið minnsta.
Hann stýrir hér hraðbát
eins og ekkert sé.