Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Blaðsíða 31
Vikublað 10.–12. júní 2014 Sport 31
30 ástæður til að horfa á hM
n Veislan hefst í Brasilíu á fimmtudag n Allir bestu fótboltamenn í heimi, nema Zlatan n Hverjir koma á óvart? n Hverjir valda vonbrigðum?
keppt um gullskóinn. Hann gæti líka
haft allt á hornum sér og ekkert gert
af viti. Það verður spennandi að sjá.
19 Edin Dzeko og Bosníu-menn Dzeko var í frábæru formi á síðustu metrunum í
ensku úrvalsdeildinni – og átti stór-
an þátt í því að tryggja Manchest-
er City titilinn. Dzeko er langþekkt-
asti leikmaður Bosníu-Hersegóvínu
og hefur alla burði til að gera Íran,
Nígeríu og jafnvel Argentínu skrá-
veifu í riðlinum.
20 Louis Van Gaal Fjöl-margir stuðningsmenn Man chester United munu
fylgjast með hverri hreyfingu nýráð-
ins þjálfara liðsins, Louis Van Gaal.
Hann þykir snjall „taktíker“ en hans
bíður það risavaxna verkefni að
stýra Hollendingum gegn sjálfum
heimsmeisturunum í fyrsta leik.
Hvernig ætli hann leggi leikinn upp?
Hvers mega stuðningsmenn United
vænta af þjálfaranum í alvöruleik?
21 Besti markvörðurinn Nokkrir af bestu mark-vörðum heims verða í eld-
línunni á HM. Nefna má Manuel
Neuer í þýska markinu, Thibaut
Cortois í því belgíska og Iker Casillas
í því spænska. Hver verður besti
markvörður mótsins? Slær Sergio
Romero, sá argentínski, kannski í
gegn?
22 Mót Afríkuþjóðanna? Michael Essien, leikmaður Gana, hefur látið hafa eftir
sér að HM í Brasilíu verði mót Afr-
íkuþjóðanna. Þeir muni slá í gegn.
Gana er líklega sterkasta Afríkuliðið
um þessar mundir en þeir munu
mæta bæði Þýskalandi og Portúgal í
riðlinum. Það væri gaman að sjá alla
vega eina Afríkuþjóð í 16 liða úrslit-
um. Getur Gana unnið Portúgal?
23 Enskir stuðningsmenn Bretar verða í Brasilíu í stórum stíl, eins og alltaf
þar sem landsliðið þeirra spilar.
Treysta má á að þeir verði áberandi
hvar sem þeir koma, eins og þeir
eru vanir. Þeir gera samt aldrei neitt
ólöglegt og verða örugglega þjóð
sinni til sóma, í hvívetna.
24 Kostaríka Kostaríkumenn gætu komið skemmtilega á óvart í riðlakeppninni. Liðið
er ekki hátt skrifað en þeir eru þó með
menn á borð við Bryan Ruiz og Joel
Campbell í sókninni. Þeir gætu auð-
veldlega strítt Englandi, Úrúgvæ og
Ítalíu og haft áhrif á það hvaða þjóðir
komast áfram. Áfram Kostaríka!
25 Risar berjast Bæði Þýska-land og Ítalía hafa mikla hefð á knattspyrnusviðinu.
Önnur þjóðin er að nálgast það að
gera tilkall til heimsmeistaratitils á
meðan hinnar bíða kynslóðaskipti.
Hvor þjóðin ætli fari lengra að þessu
sinni? Ítalir gætu þurft á öllu sínu
að halda til að komast áfram, enda
þurfa þeir bæði að hafa betur en
Úrúgvæ og England.
26 Neymar Fyrsta tímabilið er að baki með Barcelona. Áleitnar spurningar hafa
vaknað. Hefur Neymar það til að
bera að standa sig þegar mest ligg-
ur við? Getur hann skorað í stærstu
leikjunum? Brasilíumenn gera kröfu
um að Neymar leiði sóknarleikinn
og beri liðið uppi. Hefur hann burði
til þess?
27 Hverjir springa? Í leik-mannahópum Frakka og Hollendinga eru menn
sem geta stofnað til illinda í ein-
rúmi. Tekst þessum liðum að halda
einbeitingu út mótið? Frakkar hafa
verið afleitir á undanförnum stór-
mótum og Hollendingar geta verið
brothættir. Er þetta kannski mótið
þar sem þeir brotna?
28 Hvað gerir Roy Hodgson? Það eru lík-lega fáir undir meiri pressu
en landsliðsþjálfari Englendinga á
leið á HM. Nú er það Roy Hodgson.
Spurningin er hvernig hann höndl-
ar álagið. Mun hann blása til sókn-
ar eða spila varnarsinnað? Veðjar
hann á gömlu mennina (Gerrard og
Lampard) eða treystir hann þeim
yngri (Sterling og Lallana)? Sagan
segir að Hodgson muni fara varlega.
29 Dómarar með úðabrúsa Í það minnsta tvær nýj-ungar verða teknar í notk-
un á HM í knattspyrnu að þessu
sinni. Dómarar mega nú nota úða-
brúsa til að merkja staði á vellinum
– til dæmis þar sem aukaspyrnu
skal taka eða hvar varnarveggurinn
þarf að vera staðsettur. Þá verður
marklínutækni í fyrsta sinn tekin í
notkun á HM. Þetta verður því fyrir
ýmsar sakir sögulegt mót.
30 Úrslitaleikurinn Veð-bankar spá því að Brasilíu-menn leiki til úrslita á
heimavelli og vinni mótið. Hverjir
mæta þeim? Heimsmeistarar Spán-
verja? Nágrannarnir í Argentínu?
Sprækir Þjóðverjar? Úrslitaleikurinn
fer fram á Maracana-leikvanginum
í Ríó hinn 13. júlí. Af þeim viðburði
má enginn missa.