Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2014, Blaðsíða 18
18 Skrýtið Vikublað 10.–12. júní 2014
R
ússneskur karlmaður er
frjáls ferða sinna þrátt fyrir
að hafa viðurkennt að hafa
borðað vin sinn í veiðiferð
í Síberíu. Það kom í ljós við
réttarhöldin yfir honum að hann
var ekki einu sinni svangur þegar
hann borðaði hann.
Eiginkona fórnarlambsins, hin
38 ára gamla Olga Kurochkin, var
dregin fram sem vitni við réttar
höldin en þar lýsti hún hryllingn
um sem blasti við henni þegar
henni voru afhentar líkamsleifar
eiginmanns síns. Um var að ræða
fót, einn fingur og hluta af höfuð
kúpu mannsins hennar, Andrei
Kurochkin.
Hann hafði farið í fiskveiðiferð
til Síberíu með vinum sínum, Alex
ei Gorulenko, Alexander Abdullaev
og Vladimir Komarov. Ferðin fór
alls ekki vel því þeirra var saknað
í fjóra mánuði. Þeir höfðu lagt af
stað í ágúst árið 2012 en tilkynnt var
um hvarf þeirra í nóvember sama
ár. Fjórmenningarnir höfðu leitað
skjóls í veiðikofa sem þeir dvöldu í
í nokkrar vikur þangað til maturinn
kláraðist.
Kjötið strípað af beinunum
Jeppi þeirra hafði sokkið í ísilagða
á og voru þeir fastir á einum af ein
angruðustu stöðum heimsins. Það
var í desember árið 2012 sem þeim
var bjargað og játuðu Gorulenko og
Abdullaev að hafa étið Kurochkin
til að halda lífi. Ekki er vitað hvað
varð af fjórða manninum, Vladimir
Komarov, og er hann talinn af.
Þegar líkamsleifar Kurochkin
fundust staðfestu yfirvöld að hann
hefði verið étinn af vinum sínum.
Kom fram í skýrslu meinafræðinga
að Kurochkin hefði verið slitinn í
sundur og kjötið strípað af bein
um hans. Það sem var óljóst í þessu
máli var hvort Kurochkin hefði
verið myrtur eða dáið úr kulda.
Gorulenko gaf þá skýringu að
Kurochkin hefði dáið úr kulda eft
ir að hafa særst á fæti. „Það var ekki
fyrr en hann hafði gefið upp öndina
sem við átum hann til að halda lífi,“
var haft eftir Gorulenko.
„Rústað líf mitt“
„Getið þið ímyndað ykkur hvað
ég á eftir af manninum mínum?“
sagði eiginkona Kurochkins, Olga.
„Einn fót með tám, einn fingur og
hnakkann af höfuðkúpunni með
hári. Það er allt og sumt. Hvern
ig á ég að kveðja manninn sem ég
elskaði? Þetta hefur rústað líf mitt,“
sagði Olga sem kallaði eftir því að
vinum eiginmanns síns yrði refsað
en var hrædd um að lögreglan yrði
treg til að rannsaka málið því lög í
Rússlandi ná trauðla yfir mannát að
hennar sögn.
Voru ekki svangir
Við réttarhöldin voru þeir Goru
lenko og Abdullaev kallaðir til vitn
is en þar viðurkenndu þeir að hafa
ekki einu sinni fundið til svengdar
þegar þeir lögðu Kurochkin sér til
munns. Saksóknarar héldu því fram
að Kurochkin hefði verið myrtur af
vinum sínum með höfuðhöggi og
hefðu síðan bútað hann niður og
eldað.
Rannsókn meinafræðinga sýndi
fram á að kjötið hefði verið skorið
varfærnislega af líki Kurochkin en
á móti slitu þeir liðina harkalega í
sundur. Fjölskylda Kurochkins vildi
að vinir hans yrðu ákærðir fyrir
morð en dómarinn við réttarhöldin
hafnaði því og var Alexei Gorulenko
dæmdur fyrir líkamsmeiðingar og
hlaut þriggja og hálfs árs skilorðs
bundinn fangelsisdóm.
Abdullaev hafði ekki stöðu sak
bornings og var einungis stuðst við
vitnisburð hans við réttarhöldin.
Abduallaev játaði að hafa étið
Kurochkin en ekki fyrr en hann
hafði dáið úr kulda. Hann viður
kenndi að hungur hefði ekki verið
ástæða þess að hann og Gurolenko
lögðu sér Kurochkin til munns
heldur var önnur ástæða að baki.
Þegar gengið var frekar á hann eft
ir útskýringum neitaði hann að gefa
upp ástæðuna.
„Furðu slegin“
Líkamsleifar Kurochkins voru ekki
þær einu á því svæði sem mennirnir
dvöldu á til að halda lífi. Einnig
fundust leifar af dýrum. „Hvers
vegna neyddust þeir til að éta
manninn minn fyrst þeir gátu drep
ið dýr?“ spurði Olga meðal annars
þegar fjölmiðlar ræddu við hana.
„Ég er furðu slegin vegna þessarar
niðurstöðu dómarans og allt annað
en sátt við rannsókn yfirvalda á
þessu máli. Hver hefði búist við því
að mannæta fengi að ganga laus?
Ég get ekki skilið hvernig dómurinn
komst að þessari niðurstöðu.“
Hún bendir á að þeir Rússar sem
beittu því neyðarúrræði í seinni
heimsstyrjöldinni að éta félaga sína
til að lifa af hefðu verið teknir af lífi.
„Rússland nútímans er með þessu
að segja þessum einstaklingum:
Verði ykkur að góðu,“ sagði Olga
sem segir Gurolenko hafa verið
æskuvin eiginmanns síns.
„Hann hefur ekki talað við mig,
hvað þá beðið mig afsökunar,“ segir
Olga sem fór með málið til Vladi
mirs Pútín, forseta Rússlands,
vegna ótta um að málið yrði ekki
rannsakað til hlítar. Hún hyggst
áfrýja niðurstöðu dómsins. n
Voru ekki svangir
þegar þeir átu vin
n Frjáls ferða sinna þrátt fyrir mannát n Eiginkona furðuslegin vegna dóms í málinu
Hjónin Olga og Alexei Kurochkin voru hamingjusamlega gift.
Var ekki svangur
Alexei Gorulenko
var ekki svangur
þegar hann lagði vin
sinn sér til munns.
Át vin sinn Alexendar Abdullaev var annar
þeirra sem átu vin sinn.
„Hvers vegna
neyddust þeir til
að éta manninn minn
fyrst þeir gátu drepið dýr?
„Það var ekki
fyrr en hann
hafði gefið upp
öndina sem við átum
hann til að halda lífi.