Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1969, Síða 7
Inngangur.
Introduction.
1. Greinargerð um tilhögun verzlunarskýrslnamia.
General statement.
Flokkun vörutegunda í verzlunarskýrslum. 1. niai 1963 varð hin
svo nefnda Briissel-skrá (Brussel-nomenclature) grundvöllur tollunar
innfluttra vara, samkvæmt lögum nr. 7/1963, um tollskrá o. fl. Briissel-
skráin er alþjóðlegur tollskrárrammi, sein samþykkt var gerð um á al-
þjóðlegri ráðstefnu i Briissel í desember 1950. Var með henni stefnt að
samræmingu á tollskrám þeirra landa, sem að samþykktinni stóðu.
Þeirra á meðal var ísland, en aðild þess var háð fullgildingu, sein ekki
hefur enn farið frain. Um 1960 var svo komið, að öll lönd Vestur-Evr-
ópu, önnur en ísland, höfðu lögleitt Briissel-skrána, og alls liöfðu þá um
50 ríki tekið liana upp.
í Brussel-skránni er 21 flokkur vörutegunda, sem er aftur skipt í 99
kafla með alls 1095 vörunúmerum upphaflega, auk rúmlega 200 númera,
sem siðar var bætt við af ástæðum, sem vikið verður að hér á eftir. Þau
ríki, sem fullgilda Briissel-skrána, skulu lögfesta vöruflokkun hennar
ásamt þeim athugasemdum, sem fylgja hverjum flokki og kafla, og sama
g'ildir um almenn inngangsákvæði urn notkun skrárinnar. Eru aðildar-
ríkin bundin af skilgreiningu Brússel-skrárinnar á öllum vörunúmerum
hennar, en hins vegar getur hver aðili skipt hverju númeri i eins marga
undirliði og henta þykir, ef aðeins mörkin milli Briissel-núinera raskast
ekki. Við samningu íslenzku tollskrárinnar var farið skammt í þessu efni
og Brussel-númerum yfirleitt aðeins skipt þar, sem ákveðnir voru mis-
munandi tollar á vörum í sama Brussel-númeri eða talin var þörf á
skiptingu til upplýsingar í verzlunarskýrslum, enda getur sundurgreining
Hagstofunnar á vöruinnflutningi ekki orðið meiri en tollskrárinnar.
í Brússel-skránni eru vörur flokkaðar eftir efninu í þeim eins og
venja er í tollskrám. Hin tölufræðilega vöruskrá hagstofu Sameinuðu
þjóðanna (Standard International Trade Classification, skammstafað
SITC) er hins vegar miðuð við þarfir hagskýrslugerðar og' hagrannsókna,
og því öðru vísi uppbyggð. Röð vörutegunda er þar önnur, því að flokkun
hennar er meira rniðuð við notkun vara og vinnslustig en efni. Þessi töl-
fræðilega vöruskrá var gefin út á árinu 1950 og hefur hún verið notuð
siðan af flestum löndum, fyrst og fremst við skýrslugerð i þágu alþjóða-
stofnana og við samanburð hagtalna utanríkisverzlunar milli landa. Fram-
an af var ekki um að ræða fullt samræmi milli Brússel-skrárinnar