Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1969, Side 228
Hagstofa Islands
gefur út eftirtalin rit:
1. Hagskýrslur íslands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar
eru birtar ýtarlegar skýrslur um efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar (Verzlun-
arskýrslur, Búnaðarskýrslur, Iðnaðarskýrslur, Manntal, Mannfjöldaskýrslur,
Alþingiskosningar, Sveitarsjóðareikningar, o. íl.). í I. útgáfuflokki Hagskýrslna,
sem hófst 1914, voru 132 rit, í II. útgáfuflokki, sem liófst 1951, hafa komið
út 46 rit. — Áskrifendum Hagskýrslna er tilkynnt útkoma rita jafnóðum og þau
koma út, og þeir eru bcðnir að senda greiðslu. Að henni móttekinni eru rit
send þeim í pósti.
2. Hagskýrslur íslands, aukaflokk. í honum eru sams konar rit og í aðalflokki Hag-
skýrslna, nema hvað þau eru í öðru broti (kvartbroti) og ,,off-set“-fjölrituð.
3. Hagtiðindi,mánaðarrit. Þar erubirtar mánaðarlegar skýrslur um utanríkisverzlun,
fískafla, þróun peningamála, framfærsluvísitölu o. fl., og árlegar skýrslur um
ýmisleg efni, sem ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslum. — Ár-
legt áskriftargjald Hagtíðinda er 150 kr.
4. Statistical Bulletiu er sameiginlegt rit Hagstofunnar og Seðlabanka íslands. Það
er á ensku — enda ætlað útlendingum — og kemur út ársfjórðungslega (frá og
með 1963, þar áður var það mánaðarrit). — í Statistical Bulletin eru birtar
ýmsar töflur úr Hagtíðindum, og úr Fjármálatíðindum, riti Seðlabanka íslands.
— Erlendir áskrifendur þessa rits fá það ókeypis, en innanlands er árlegt áskrift-
argjald þess 85 kr.
5. íbúaskrá Reykjavíkur kemur út á bverju vori. í henni eru allir íbúar Reykjavíkur
næstbðinn 1. desember samkvæmt þjóðskrá, með þeim upplýsingum, sem hún
liefur að geyma um bvern mann. íbúaskrá Reykjavíkur 1. desember 1968 var
1340 bls., og verð 2200 kr. í bandi. Upplag þessarar bókar er mjög takmarkað,
enda við það miðað, að bún seljist upp.
6. Skrár yfir dána, með fæðingardegi, dánardegi, lieimih og fleiri upplýsingum
um dána, koma út árlega í fjölrituðu befti. Fyrsta beftið, með dánum 1965
—67, kostar 130 kr., en skrár yfir dána 1968 kosta 65 kr.
Afgreiðsla ofan grcindra rita er í Hagstofunni, ArnarhvoU (inngangur frá Lindar-
götu), Reykjavík. Sími 24460. — Rit eru send gegn póstkröfu, ef þess er óskað.