Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1969, Side 17
Verzlunarskýrslur 1968
15*
1. yfirlit sýnir innflutninr/ og útflutning í hverjum mánuði 1966—
1968 samkvæmt verzlunarskýrslum, en síðar í innganginum er yfirlit um
mánaðarlega skiptingu innflutnings (3. kafli) og útflutnings (4. kafli)
eftir vörudeildum.
3. Innfluttar vörur.
Imports.
Tafla IV (bls. 24—163) sýnir innflutning 1968 í hverju númeri toll-
skrárinnar og skiptingu hans á lönd. Sýnd er þyngd í tonnum (auk þess
stykkja- eða rúmmetratala nokkurra vörutegunda), fob-verð og cif-verð.
Taflan er í tollskrárnúmeraröð og vísast i því sambandi til skýringa i 1.
kafla þessa inngangs og við upphaf töflu IV á bls. 24.
í töflu I á bls. 2—3 er sýnd þyngd og verðmæti innflutningsins fob
og cif eftir vörudeildum hinnar endurskoðuðu vöruskrár hagstofu Sam-
einuðu þjóðanna. I töflu II á bls. 4—19 er sýnt verðmæti innflutningsins
cftir vöruflokkum sömu skrár með skiptingu á lönd.
í sambandi við fob-verðstölur innflutnings skal þetta tekið fram:
Mismunur cif-verðs og' fob-verðs er flutningskostnaður vörunnar frá út-
flutningsstaðnum ásamt vátryggingaiðgjaldi. Flutningskostnaður sá, sem
hér um ræðir, er ekki einvörðungu farmgjöld fyrir flutning á vörum frá
erlendri úlflutningshöfn til íslands, heldur er i sumum tilfellum líka um
að ræða farmgjöld með járnbrautum eða skipum frá sölustað til þeirrar
útflutningshafnar, þar sem vöru er síðast útskipað á leið til íslands. Ivem-
ur þá líka til umhleðslukostnaður o. fl. Fer þetta eftir því, við hvaða stað
eða höfn afhending vörunnar er miðuð. Eitthvað kveður að því, að vörur
séu seldar cif íslenzka innflutningshöfn. í slikum tilfellum er tilsvar-
andi fob-verð áætlað af tollvfirvöldum.
Frá og með Verzlunarskýrslum 1966 þarf innflutningur frá landi að
nema minnst 50 þús. kr„ til þess að hann sé tilgreindur sérstaklega í
töflu IV — nema um sé að ræða eitt land, sem svo er ástatt um. Áður
var þetta marlc við 25.000 kr. innflutning.
2. yfirlit sýnir verðmæti innflutningsvarannn bæði cif og fob eftir
vörudeildum. Ef skip og' flugvélar er undanskilið nemur fob-verðmæti
innflutningsins 1968 alls 6 420 295 þús. kr„ en cif-verðið 7 201 280 þús.
kr. Fob-verðmæti innflutningsins 1968 að undanskildum skipum og flug-
vélum var þannig 89.2% af cif-verðmætinu. — Ef litið er á einstaka
flokka, sést, að hlutfallið milli fob-verðs og cif-verðs er mjög mismun-
andi, og enn meiri verða frávikin til beggja handa, ef litið er á ein-
stakar vörutegudir.
Til þess að fá vitneskju um, hvernig mismunur cif- og fob-verðs
skiplist á vátryggingu og flutningskostnað, er tryggingaiðgjald áætlað
1 % af cif-verði flestra vara, nema á sekkjavöru í vörudeildum 04,06,08,
og 56, þar er tryggingaiðgjald reiknað 0,83% af cifverði. Svo er
einnig' á kolum (32). Tryggingaiðgjald á timbri í vörudeildum 24 og 63