Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1986, Blaðsíða 27
Verslunarskýrslur 1985
25
4. Útfluttar vörur.
Exports.
í töflu V (bls. 247—266) er sýndur útflutningur á hverri einstakri vörutegund
eftir löndum. Röð vörutegunda í þessari töflu fylgdi áður vöruskrá hagstofu
Sameinuðu þjóðanna, en frá og með 1970 er röð vörutegunda í þessari töflu
samkvæmt sérstakri vöruskrá Hagstofunnar fyrir útflutning. Um þetta vísast til
nánari skýringa í 1. kafla þessa inngangs og við upphaf töflu V á bls. 247.
í töflu I á bls. 2—3 er sýnd þyngd og verðmæti útflutningsins eftir
vörudeildum núgildandi vöruskrár hagstofu Sameinuðu þjóðanna. í töflu III á
bls. 20—27 eru verðmætistöflur útflutnings svarandi til 2ja fyrstu tölustafa
hinnar 6 stafa tákntölu hvers vöruliðs í vöruskrá Hagstofunnar fyrir útflutning,
með skiptingu á lönd.
í töflu VI á bls. 267 er verðmæti útflutnings skipt eftir vinnslugreinum hvert
áranna 1981—85. Er hér um að ræða sérstaka flokkun útflutnings, sem gerð
hefur verið ársfjórðungslega frá og með ársbyrjun 1970. Hefur þessi flokkun
verið birt í Hagtíðindum fyrir hvern ársfjórðung, en í verslunarskýrslum er hún
aðeins birt fyrir heil ár.
Eins og greint var frá í 1. kafla inngangsins, er útflutningurinn í verslunar-
skýrslum talinn á söluverði afurða með umbúðum, fluttur um borð í skip (fob) í
þeirri höfn, er þær fara fyrst frá samkvæmt sölureikningi útflytjanda. Þessi regla
getur ekki átt við ísfisk, sem íslensk skip selja í erlendum höfnum, og gilda því um
verðákvörðun hans í verslunarskýrslum sérstakar reglur. Til ársloka 1967 var,
auk löndunar- og sölukostnaðar o. fl., dregin frá brúttósöluandvirði ísfisks
ákveðin fjárhæð á tonn fyrir flutningskostnaði, en þessu var hætt frá og með
ársbyrjun 1968. Á árinu 1985 fylgdi Fiskifélag íslands þessum reglum við
útreikning á fob-verði ísfisks (og loðnu til bræðslu) út frá brúttósöluandvirði
hans, og var hann tekinn í útflutningsskýrslur samkvæmt því (hundraðstölur til-
greindar hér á eftir miðast allar við brúttósöluandvirði):
Danmörk: Á loðnu til bræðslu 0,5% heildarkostnaður. Fœreyjar: Á ísfiski
0,5% heildarkostnaður, á loðnu til bræðslu 0,5% heildarkostnaður. Noregur: Á
loðnu til bræðslu 0,5% heildarkostnaður. Bretland: Á ísfiski: Löndunar-
kostnaður og hafnargjöld 12%, tollur 5%, sölukostnaður 3%. Á loðnu til
bræðslu 10,5% heildarkostnaður. V-Pýskaland: Á ísfiski: Löndunarkostnaður
og hafnargjöld 12%, tollur 3%, sölukostnaður 2%.
Það skal tekið fram, að fiskiskip, sem selja ísfisk erlendis, nota stóran hluta af
andvirðinu til kaupa á rekstrarvörum, vistum o. fl., svo og til greiðslu á skips-
hafnarpeningum, en slíkt er ekki innifalið í áður nefndum frádrætti til
útreiknings á fob-verðmæti. Skortir því mjög mikið á, að gjaldeyri svarandi til
fob-verðs sé skilað til bankanna.
Útflutningsverðmœti 7 skipa, sem seld voru úr landi 1985 (í nr. 93.20.00 og
93.90.00 í töflu V), nam alls 99 871 þús. kr., og fer hér á eftir skrá yfir þau:
Rúmlestir Útflutn.verðm.
brúttó þús. kr.
Jón Finnsson til Chile, fiskiskip ..................................... 311 42 903
írafoss til Kýpur, farskip .......................................... 1 395 10 912
Mar til Brctlands til niðurrifs, farskip............................... 939 2 262
Mælifell til V-I>ýskalands, farskip ................................... 932 9 689
Langá til Panama, farskip .......................................... 1 276 7 817
Urriðafoss til Kýpúr, farskip....................................... 1 363 19 071
Laxá til Hondúras, farskip............................................. 932 7 217
Samtals
7 148
99 871