Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1986, Blaðsíða 316
Hagstofa íslands
gefur út eftirtalin rit:
Hagskýrslur íslands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar eru birtar
ýtarlegar skýrslur um efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar (Verslunarskýrslur,
Búnaðarskýrslur, Sveitarsjóðareikningar, Mannfjöldaskýrslur, Alþingiskosningar,
Dómsmálaskýrslur, Tölfræðihandbók o. fl.). í I. útgáfuflokki Hagskýrslna, sem hófst
1914, voru 132 rit, í II. útgáfuflokki, sem hófst 1951, hafa komið út 84 rit.
Hagtíðindi, mánaðarrit. Þar eru birtar mánaðarlegar eða ársfjórðungslegar skýrslur um
utanríkisverslun, fiskafla, framfærsluvísitölu og aðrar vísitölur, og árlegar skýrslur um
ýmisleg efni, sem ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslum. — Árlegt
áskriftargjald Hagtíðinda er 400 kr.
Ibúaskrá Reykjavíkur kemur út á hverju vori. í henni eru allir íbúar Reykjavíkur
næstliðinn 1. desember samkvæmt þjóðskrá, með þeim upplýsingum, sem hún hefur að
geyma um hvern mann. íbúaskrá Reykjavíkur 1. desember 1985 er 1 037 bls., og verð
3 000 kr. í bandi. Upplag þessarar bókar er mjög takmarkað, enda við það miðað, að hún
seljist upp.
Fyrirtækjaskrá. Einu sinni á ári, og oftar ef ástæða þykir til, kemur út skrá yfir þá aðila,
fyrirtæki, stofnanir, félagssamtök o. fl., sem hafa sérstakt auðkennisnúmer
(„nafnnúmer") í fyrirtækjaskrá Hagstofunnar. í síðustu útgáfu þessarar skrár, sem er
miðuð við miðjan júní 1986, eru rúmlega 20 600 aðilar. Hún kostar 1 200 kr.
Skrár yfir dána, með fæðingardegi, dánardegi, heimili og fleiri upplýsingum um dána,
koma út árlega í fjölrituðu hefti. Skrár yfir dána 1965—67 (eitt hefti) eru upp gengnar.
Bifreiðaskýrsla kemur út árlega í fjölrituðu hefti. með fjölþættum upplýsingum um
bifreiðaeign landsmanna.
í ritinu Skrá um stofnanaheiti, sem kom út, fjölritað, á árinu 1972, er dönsk og ensk
þýðing á heiti stofnana, embætta, félagssamtaka og starfsgreina. Uppsláttaratriði í riti
þessu eru um 1500 að tölu. Venjulegar orðabækur eru haldlitlar í þessu efni, og er þessu
riti ætlað að bæta úr þeirri vöntun.
NORRÆN TÖLFRÆÐIHANDBÓK 1985
Hagstofan annast dreifingu á íslandi á ársritinu Norrœn tölfrœðihandbók (Yearbook of
Nordic Statistics — Nordisk statistisk ársbok), sem Norðurlandaráð og Norræna
tölfræðistofnunin í Kaupmannahöfn gefa út. í riti þessu er mjög margvíslegur fróðleikur í
talnaformi um Norðurlönd og þjóðir þær sem þau byggja. Norræn tölfræðihandbók 1985
er 426 blaðsíður með 290 töflum, auk línurita og korta, og kostar 800 kr.
Afgreiðsla ofangreindra rita er í Hagstofunni, Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8—10 (3. hæð),
101 Reykjavík. Sími 26699. Póstgíróreikningur Hagstofunnar er nr. 26646. Rit eru send
gegn póstkröfu, sé þess óskað.