Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Blaðsíða 10
10 | Fréttir 25. júlí 2011 Mánudagur
Heldur þú að Eden verði endurreist?
„Já,vonandi.“
Guðmundur Erlingsson
48 ára, starfsmaður Kjöríss
„Það er ekki spurning, það verður að endur-
byggja þetta og það í anda Braga gamla.“
Sigurður Blöndal
57 ára, kennari
„Já, það ætla ég að vona. Þetta var sál
bæjarins og mikil saga þarna.“
Guðbjörg Gunnlaugsdóttir
61 árs, öryrki
„Það skulum við vona. Þetta er alltof stór
hluti af sögu bæjarins til þess að það verði
ekki gert.“
Guðjón Árnason
62 ára, kennari
„Ég veit það ekki, það verður bara að koma
í ljós.“
Njörður Sigurðsson
37 ára, sagnfræðingur
Dómstóll götunnar
Eden var eitt best þekkta vörumerki
íslenskrar ferðaþjónustu og bæði ís
lenskir og erlendir ferðamenn voru
duglegir að sækja staðinn. Eden var
stofnað árið 1958, upprunalega sem
garðyrkjustöð en í seinni tíð hef
ur staðurinn verið veitingastaður
og verslun. Eden brann til grunna í
miklum eldsvoða fyrir helgi. Engin
slys urðu á fólki en tveir páfagaukar
drápust.
Margir listamenn hafa sýnt verk
sín í Eden og á meðal verka sem
hafa verið til sýnis þar eru listaverk
eftir Kjarval. Þá hafa fjölmargar ís
lenskar fjölskyldur lagt leið sína
þangað; rúntur frá höfuðborginni
til Hveragerðis varð að hefð hjá
mörgum þeirra, með viðkomu í
Eden.
Vinsæll ferðamannastaður
Um 300 þúsund gestir hafa árlega
heimsótt Eden. Bragi Einarsson
stofnaði fyrirtækið sumardaginn
fyrsta 1958 og rak það til ársins 2006,
eða í 48 ár. Hann seldi þá rekstur
inn og nýir aðilar komu að honum.
Þeir urðu gjaldþrota árið 2008 og þá
tók Sparisjóður Suðurlands við eign
hússins en reksturinn var í hönd
um einkaaðila. Þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir DV til að ná í núverandi
rekstraraðila hefur það ekki gengið.
Bragi Einarsson er látinn en hann
varð álíka þekktur sem faðir Eden og
vörumerkið Eden er. Hann lést stuttu
eftir að hann seldi reksturinn árið
2006. Bragi gerði Eden að einum af
miðpunktum íslenskrar ferðaþjón
ustu. Saga fyrirtækisins er samofin
sögu Hveragerðis, enda laðaði Eden
að fjölda ferðamanna. Staðurinn
varð að föstum punkti í ferðaþjón
ustu og varð hluti gullna hringsins
svokallaða.
Eden var í fyrstu gróðrarstöð en
Bragi stofnaði fyrirtækið þegar hann
keypti tvö gróðurhús í Hveragerði, en
hann mun hafa verið of seinn fyrir til
að sá þar og setti aðeins niður gul
rætur fyrsta árið. Þær seldust vel og
boltinn fór að rúlla hjá fyrirtækinu.
Í kringum 1970 var komið upp kaffi
stofu þar og urðu þá kaflaskil í sögu
fyrirtækisins og það fór að mótast í
þá mynd sem það tók á sig síðar. Um
svipað leyti var þjóðvegurinn aust
ur fyrir fjall einnig malbikaður og
þá jókst umferðin til Hveragerðis til
muna.
Listamiðstöð
Listaverk prýddu Eden og lista
menn voru duglegir við að sýna
verk sín þar. Nokkrir listamenn
voru þar fastagestir, en Bragi Ein
arsson var mjög listrænn og teikn
aði andlitsmyndir af landsfrægu
fólki sem og gestum og gangandi í
Eden. Myndir hans prýddu gjarnan
veggina þar. Árið 1983 sagði Bragi
frá því í blaðaviðtali að listasýning
ar væru bókaðar tvö ár fram í tím
ann í Eden.
Á síðustu árum hefur fyrirtæk
ið Eden starfað sem veitingasala og
selt ferðamannavarning. Á staðnum
var mikið af listaverkum og listmun
um, en einnig bjuggu þar tveir lif
andi páfagaukar sem kunnu að tala
og vélknúni apinn Bóbó.
Þurftu að hörfa frá eldinum
„Þá var enginn eldur kominn upp
úr þakinu en það stóð mikil reykjar
súla upp úr þakinu á gróðurhúsinu,“
segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjar
stjóri Hveragerðis, en hún varð elds
ins vör þegar hún var á göngu rétt
fyrir miðnættið. Ekki er ljóst hvern
ig eldurinn kviknaði en allt bendir
til þess að hann hafi átti upptök sín
í eldhúsi veitingaskálans. Hún segir
að eldurinn hafi skyndilega breiðst
yfir í anddyri hússins og mikil eld
sprenging hafi orðið. Slökkvilið gat
ekki farið inn í húsið, svo mikill var
eldurinn. Þeir þurftu að hörfa nokkra
metra þar sem hætt var við að eld
urinn næði að teygja sig í tækja
búnað slökkviliðsins. Mikill elds
matur var inni í húsinu, en það var
að hluta til plastklætt og timburhús
að grunni. „Hann breiddist út yfir
stóra veitingasalinn og fljótlega eftir
það kom slökkviliðið. Svo varð eins
og eld sprenging í húsinu og eldur
inn dreifðist á örskammri stundu út
um allan veitingasalinn og læsti sig
svo í anddyrið og þá stóð húsið bara í
björtu báli,“ segir Aldís.
Mikið eldhaf
Kolsvartir reykjarbólstrar teygðu sig
til himins og eldglæringarnar voru
miklar. Eins og sjá má á meðfylgjandi
myndum var eldurinn gríðarlegur
og reykjarkófið mikið. Eldurinn sást
alla leið til Þorlákshafnar, svo mik
ið var eldhafið. Eldurinn mun hafa
verið mun meiri en þegar eldsvoði
varð í flugeldageymslu í bænum fyrir
nokkrum árum.
Eden er brunarústir einar eftir
brunann og það eina sem eftir stend
ur eru nokkrir steyptir veggir. Elds
upptök eru þó enn ókunn. Hjá lög
reglunni á Selfossi fékkst það staðfest
að boð frá brunavarnakerfi hefði ekki
borist í nótt líkt og hefði átt að gerast
að sögn varðstjóra. Brunavarnakerfi
í húsinu mun þó hafa verið í fullum
gangi þegar slökkvilið kom á vett
vang.
„Edenmerkið og hurðin brenna
ekki. Það er táknrænt,“ segir Aldís,
en bæjarbúar og bæjarstjóri Hvera
gerðis voru sammála um það að
Eden væri of dýrmætt fyrir Hvera
gerði til þess að það yrði ekki endur
reist. Aldís segir ljóst að Eden væri
eitt best þekkta vörumerki íslenskrar
ferðaþjónustu og það væri alveg klárt
að Eden yrði byggt upp að nýju. Það
að bæði merki Eden og hurðir stað
arins stæðu enn töldu bæjarbúar
sem DV ræddi við vera skýrt merki
um að staðurinn yrði endurbyggður.
Hvernig staðið verður að uppbygg
ingu staðarins mun koma í ljós þeg
ar rannsóknarstörfum lýkur. Þangað
til verður Eden minnst sem hluta af
sögu Hveragerðis og íslenskrar ferða
þjónustu.
Hörfuðu Eldurinn breiddist hratt út og
slökkvilið þurfti að hörfa svo tækjabúnaður
bráðnaði ekki. MyNd ÖSp ViLBErG
Ekkert eftir Veitingaskálinn er gjörónýtur
en eldurinn mun hafa átt upptök sín þar.
Ekkert var eftir af honum nema undirstöður.
Stendur enn „Eden-merkið og hurðin
brenna ekki. Það er táknrænt,“ sagði Aldís
Hafsteinsdóttir bæjarstjóri Hveragerðis.
Sá eldinn Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri
var á kvöldgöngu þegar hún varð eldsins vör.
Á huldu Rannsókn lögreglu og slökkviliðs
er ólokið og ekki er vitað hvað það var sem
olli eldinum.
Paradísin sem brann
n Eitt best þekkta vörumerki íslenskrar ferðaþjónustu n Fastur punktur í lífi íslenskra fjölskyldna
n 300 þúsund gestir árlega n Eden verður endurbyggt n Táknrænt að sjá merkið óbrunnið
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is
„Bæjarbúar og
bæjarstjóri Hvera-
gerðis voru sammála um
að Eden væri of dýrmætt
fyrir Hveragerði til þess
að það yrði ekki endur-
reist.
„Á ég að segja þér brandara?“
„Ertu að flýta þér“
„Gleymdu ekki gjöfinni“
Ódauðlegir frasar vélknúna apans
Bóbós sem sagði brandara fyrir 50 kr.
Hans er nú sárt saknað miðað við við-
tökur vina hans á Facebook en rúmlega
4.000 höfðu skráð sig á minningarsíðu
Bóbós á föstudag. Bæði Eden og Bóbó
áttu greinilega marga vini.
Sást til Þorlákshafnar Íbúar í Þorlákshöfn gátu séð eldinn. Kolsvartir reykjarbólstrar
teygðu sig til himins og eldglæringarnar voru miklar. MyNd ÖSp ViLBErG
M
y
N
d
ir
G
U
N
N
A
r
G
U
N
N
A
r
SS
O
N