Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Blaðsíða 16
Alveg einstakt
n Lofið að þessu sinni fær fyrirtækið
Tölvuvinir á Langholtsvegi. „Ég fór
þangað með bilað lyklaborð og skjá
og það kom í ljós að viðgerðin mundi
kosta tæpar 24.000 krónur. Þegar
eigandinn heyrði að ég hefði ekki
efni á því brosti hann fallega
og sagðist lána mér fyrir við-
gerðinni. Ég varð mjög hissa
og sagði: „Þú þekkir mig ekki
neitt.“ Þá sagði hann að
við yrðum að trúa á það
góða í fólki og nú er ég
að borga til baka. Ég hef
aldrei vitað annað eins,
þetta var alveg einstakt.“
400 krónur fyrir gos
n Lastið fær Íslenski barinn fyrir okur
á gosi. „Við fórum þangað, vinkon-
urnar saman, um daginn og vorum
ánægðar með matinn þar. Höfum
oft komið þar við áður og alltaf verið
ánægðar. Í þetta skiptið ætluðum við
að splæsa á okkur kóki með matnum
en fengum þá upplýsingar um að lítil
kók í gleri kosti 400 krón-
ur. Þvílíkt okur. Maturinn
á hádegismatseðlinum
kostar 1.000 krónur og
því er kókið nær helm-
ingur af því verði. Ég
mun halda áfram að fá mér
vatn með matnum,“ segir við-
skiptavinur staðarins.
16 | Neytendur 25. júlí 2011 Mánudagur
E
ld
sn
ey
ti Bensín Dísilolía
Algengt verð 242,9 kr. 242,7 kr.
Algengt verð 242,5 kr. 242,5 kr.
Höfuðborgarsv. 242,4 kr. 242,4 kr.
Algengt verð 242,7 kr. 242,7 kr.
Algengt verð 244,8 kr. 242,9 kr.
Melabraut 242,6 kr. 242,6 kr.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
Ráð við innkaup
Það er alltaf hægt að tileinka sér nýj-
ar aðferðir þegar kemur að sparnaði.
Á matarkarfan.is er oft ýmis góð ráð
að finna og þar segir meðal annars
að ágætt sé að bera saman hve mikið
kíló af vöru kostar því stundum sé
hagkvæmara að kaupa minni pakkn-
ingar en stórar. Einnig sé gott að
skrifa niður verðið á eftirlætis- eða
mest keyptu vörunum. Þá leggist
verðið á minnið og verðvitund batni.
Verði breytingar á verði til hins verra
sé hugsanlega kominn tími til að líta
til samkeppnisaðilans og sjá hvaða
verð hann býður.
É
g verið viðskiptavinur Hrað-
peninga í nokkurn tíma en í
fyrra fór ég í vanskil með eina
skuld og samdi við fyrirtækið
um hana,“ segir viðskiptavinur
Hraðpeninga sem vill ekki láta nafn
síns getið. Fyrirtækið tók fyrir mis-
tök rúmar 60.000 krónur af reikningi
hans og skildu hann eftir peninga-
lausan yfir heila helgi. Þrátt fyrir að
hafa viðkennt mistök sín og endur-
greitt konunni stendur krafa enn í
heimabanka hennar og enn hefur
ekkert afsökunarbréf borist.
„Gat ekkert gert“
Konan segir að það hafi verið sjálf-
sagt mál að semja um skuldina og
að hún hafi borgað inn á hana jafnt
og þétt síðan þá. Það var svo í síð-
asta mánuði sem hún fékk reikn-
ing inn á heimabankann sinn upp
á 64.000 krónur vegna þessarar
skuldar. „Það er meira en heildar-
skuldin mín síðan í fyrra sem var
um 60.000 krónur og þar að auki
voru bara 21.000 krónur eftir af
skuldinni.“ Hún hafði samband
við fyrirtækið og segir útskýringar
þeirra hjá Hraðpeningum vera þær
að þetta væru mistök og öll upp-
hæðin hafi óvart farið inn á heima-
bankann sem skuld. Skuldin væri
21.000 og seðillinn myndi detta út
úr heimabankanum um leið og sú
upphæð væri greidd.
Það var 1. júlí sem 60.400 krónur
voru teknar af reikningi hennar. „Þeir
gáfu mér ekki möguleika á að semja
um eftirstöðvarnar og taka uppruna-
legu heildarupphæðina út af reikn-
ingnum mínum. Ég var peningalaus
alla helgina og gat ekkert gert,“ segir
hún.
Vildi skriflega afsökunarbeiðni
Hún var í sambandi við fyrirtækið,
mánudaginn eftir umrædda helgi,
sem greiddi henni mismuninn til
baka en bað hana ekki afsökunar. „Ég
hringdi síendurtekið í þá á mánudeg-
inum til að fá skýringar á þessu og fékk
alltaf þau svör að þeir ætluðu að at-
huga málið og hafa svo samband. Þeir
lofuðu að hringja í mig eftir skamma
stund en kukkan þrjár mínútur í sex
hringdi ég í þá þegar ég var ekkert
búin að heyra. Ég sagði að ég vildi líka
fá skriflegt afsökunarbréf sem ég gæti
sýnt bankanum sem sönnun fyrir því
að þetta væri ekki mér að kenna. Þá
voru mér boðnar 5.000 krónur gegn
því skilyrði að ég færi ekki með þetta
í blöðin. Eins konar sárabætur. Ég af-
þakkaði það og krafan er ennþá inni
í heimabankanum sem ég skil ekki.
Ég vil losna við hana strax,“ segir hún
að lokum og er mjög ósátt við vinnu-
brögð Hraðpeninga.
DV hefur ítrekað hefur reynt að ná
sambandi við forsvarsmann Hrað-
peninga til að fá útskýringu á þessu
en án árangurs.
Falla ekki undir lög um
neytendalán
Starfsmaður viðskipta- og efna-
hagsráðuneytisins segir að eins og
staðan er í dag þá falli smálánafyr-
irtækin ekki undir ráðuneytið. „Þau
falla ekki undir lög um neytendalán
og þetta er ekki eftirlitsskyld starf-
semi,“ segir hann. Ráðherra hafi
lagt fram frumvarp á síðasta þingi
sem átti að taka á þessu og fella
smálánafyrirtækin undir lög um
neytendalán. Það hafi hins vegar
stoppað í viðskiptanefnd. Aðspurð-
ur hvort það séu þá engar reglur um
fyrirtækin segir hann þær vera litlar
sem engar.
„Peningalaus
alla helgina“
n Hraðpeningar hf. innheimtu skuld af bankareikningi viðskiptavinar
n Tóku of mikið, fyrir mistök n Hafa ekki beðist afsökunar
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Ósátt við Hraðpeninga
Konan vill fá skriflega afsökunar-
beiðni frá lánafyrirtækinu.
MYND SIGTRYGGUR ARI
Árið 2009 vöruðu Neytendasamtökin
við smálánafyrirtækjum á heimasíðu
sinni.
„Lán sem þessi hafa verið harðlega
gagnrýnd í nágrannalöndum okkar,
enda beinist markaðssetningin aðallega
að yngri neytendum og þeim sem hafa
lítið handa á milli.
Þá er ekki hægt að kalla lánskjörin
neitt annað en okur. Jafnframt er örðugt
að sjá hvernig það leysir einhvern fjár-
hagsvanda að fá lán sem skal svo greiða
tilbaka með allt að 25% álagi innan 15
daga.
Neytendasamtökin vilja því vara
fólk eindregið við töku þessara lána og
hvetja yfirvöld jafnframt til aðgerða er
sporni við slíkum lánveitingum“
NS.IS 9.OkTÓbER 2009
Vara við smálánum
Neytendum er bent á að í skilmálum, sem
Hraðpeningar setja fyrir láni, er tekið fram
að viðskiptavinur
gefur þeim leyfi
til að gjaldfæra
kostnað á banka-
reikning.
„Viðskiptavinur
veitir Hraðpen-
ingum heimild að
gjaldfæra kostnað
á bankareikning
sinn á gjalddaga. Ef ekki reynist inn-
stæða á bankareikningi viðskiptavinar
til að greiða gjaldfelldan kostnað hafa
Hraðpeningar heimild til að gjaldfæra
eftirstöðvar kostnaðar á dags fresti á
bankareikning viðskiptavinar þar til allur
kostnaður viðskiptavinar er greiddur.“
AF HEIMASíÐU HRAÐpENINGA
Mega gjaldfæra
Tóku of mikla peninga Viðskiptavinur Hraðpeninga varð að eigin sögn fyrir miklum
óþægindum vegna þessa.