Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Blaðsíða 19
É g gef mér að samtökin No Borders starfi í þeim anda, sem heiti samtakanna ber með sér, nefnilega að fólki skuli ekki torveldað að fara yfir landamæri og að þeir sem eru á flótta undan ranglæti fái hæli. Þetta eru virðingarverð markmið og mik- ilvægt að stjórnvöldum sé jafnan haldið við efnið í mannréttindamál- um. En á sama hátt og þessi málstað- ur þarf að njóta sannmælis þá þarf einnig að láta þá njóta sannmæl- is sem framfylgja þeim reglum sem við sem samfélag höfum sett okkur í samvinnu við aðrar þjóðir. Vöndum umræðuna Fjöldi fólks í heiminum er á flótta undan erfiðu hlutskipti, sumir hundeltir af harðstjórum í heima- landi sínu fyrir að taka þátt í mann- réttindabaráttu, aðrir jafnvel á flótta undan þrælahöldurum eins og full- yrt er um ungan mann frá Máritaníu en mál hans hefur verið til umfjöll- unar í íslenskum fjölmiðlum að und- anförnu. Síðan er hitt til líka að mis- indismenn eru á flótta undan réttvísi einsog dæmin sanna. Þess vegna er varasamt að alhæfa um hælisleitendur og mikilvægt að allir sem að umræðu um þessi við- kvæmu mál koma, vandi sig og byggi á eins traustum upplýsingum og kostur er. Það hefur ekki verið gert í þeirri opinberu umræðu sem fram hefur farið um málefni fyrrnefnds hælisleitanda frá Máritaníu. Réttarstaða hælisleitenda styrkt Nánast öll ríki í okkar heimshluta hafa fengið til sín fjölda hælisleit- enda sem óskað hafa eftir því að fá pólitískt hæli. Löggjöf í einstökum ríkjum er mismunandi en íslensk stjórnvöld hafa á síðustu misserum leitast við að styrkja réttarstöðu hæl- isleitenda bæði með laga- og reglu- gerðarbreytingum. Enn þarf að bæta regluverkið og alla framkvæmd og er unnið að því í innanríkisráðuneyt- inu. Svokallað Dyflinnarsamkomulag sem Íslendingar auk annarra ríkja á Schengen-svæðinu eiga aðild að felur í sér viðmið fyrir því hvaða að- ildarríki skuli bera ábyrgð á með- ferð umsóknar um hæli, þ. á. m. um fjölskyldusameiningu, hvar einstak- lingur hefur sótt fyrst um hæli, hvort einstaklingur hafi fengið útgefið dvalarleyfi eða áritun o.s.frv. Nokkur brögð eru að því að hæl- isleitendur reyni fyrir sér samtímis í mörgum löndum en Dyflinnarreglu- gerðin á að stuðla að því að einstak- lingurinn fái málefnalega umfjöll- un á einum stað. Að sjálfsögðu þarf að að vera tryggt að sú umfjöllun sé málefnaleg og í samræmi við mann- réttindareglur. Íslendingar og Norðmenn riðu á vaðið Ástæðan fyrir því að Íslendingar ákváðu – ásamt Norðmönnum – fyrstir þjóða að senda hælisleitendur ekki til Grikklands var einmitt sú að Mannréttindadómstóll Evrópu taldi ekki tryggt að hælisleitendur fengju þar viðunandi skoðun sinna mála og aðbúnaður þeirra væri ekki sem skyldi. Sá einstaklingur sem hefur ver- ið til umfjöllunar hér og er frá Mári- taníu sótti um hæli í Noregi og þar er hans mál til umfjöllunar. Við höfnun þar getur hann gert nákvæmlega það sama og hér á landi: hann getur kært niðurstöðuna fyrir dómstólum. Stað- reyndin er sú að málsmeðferð í Nor- egi er svipuð og hér á landi enda hafa Íslendingar sótt fyrirmynd til Noregs um lög og alla framkvæmd í málefn- um hælisleitenda. Norðmenn hafa staðið flestum þjóðum framar hvað varðar vandaða afgreiðslu mála en við þó sótt í okkur veðrið. Rangar ásakanir Ásakanir um að íslensk stjórnvöld séu að senda einstakling í þrældóm eða út í opinn dauðann eru graf- alvarlegar. Samkvæmt því sem ég best veit eru þær hins vegar sem betur fer rangar. Fyrir liggur að ekk- ert í gögnum, sem okkur hafa borist í þessu máli eða öðrum sem hafa ver- ið til umfjöllunar í Noregi, bendi til þess að málsmeðferð þar hafi verið ósanngjörn eða að umsóknir fái ekki vandaða og sanngjarna málsmeð- ferð í Noregi. Enda er almennt litið svo á að málsmeðferð norskra stjórn- valda í málefnum hælisleitenda sé í samræmi við alþjóðlegar skuldbind- ingar og þar sé farið eftir ákvæðum flóttamannasamningsins og mann- réttindasáttmála Evrópu. Þess vegna leyfi ég mér að trúa því að norskt réttarkerfi sendi ekki ungan mann í hendur þrælahaldara. Þá er rangt sem haldið er fram að ekki hafi verið reynt að veita viðkom- andi einstaklingi viðunandi túlka- þjónustu. Ég óskaði sérstaklega eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun um það efni. Þótt ekki væri hægt að finna túlk sem talaði bæði márit- anska tungumálið wolof og jafnframt íslensku tókst engu að síður að búa svo um hnúta með hjálp túlka, sam- kvæmt þeim upplýsingum sem mér hafa verið veittar, að aðilar skildu hvor annan á fullnægjandi hátt. Um kjarna máls Samkvæmt mínum upplýsingum var hælisleitandanum frá Máritaníu leiðbeint um hvernig hann ætti að bera sig að við að kæra úrskurð Út- lendingastofnunar og naut hann einnig aðstoðar Rauða krossins. Var honum skipaður talsmaður sem kærði ákvörðun Útlendingastofn- unar til innanríkisráðuneytisins. Þar var komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun Útlendingastofnunar hafi verið rétt en frekari kæra er síðan aft- ur til meðferðar í ráðuneytinu. Ekk- ert nýtt hefur hins vegar komið fram, samkvæmt mínum upplýsingum, sem sýnir fram á að þær forsendur sem byggt var á standist ekki; ef svo hefði verið hefði ráðuneytið endur- skoðað úrskurð sinn. Eftir stendur að hælisleitandanum beri að fara til Noregs og ljúka sínu máli þar. Sé það ekki íslenskra stjórnvalda að skerast í það ferli. En hvaða leið ætla Íslendingar að fara? Ætlum við að virða að vettugi málsmeðferð ríkja á borð við Noreg, sem sannanlega hafa verið að reyna að standa sig í mannréttindamálum? Ef við gerum það og tökum á móti öllum sem er hafnað í Noregi og þess vegna annars staðar, þá þarf að ger- ast kraftaverk til að við getum tek- ið sómasamlega á móti öllum þeim fjölda fólks sem til okkar myndi leita. Hinn kosturinn er að virða þessi ferli og bæta jafnframt réttarstöðu hæl- isleitenda hér á landi. Sá kostur er betri að mínu mati og þá leið erum við að feta þótt of hægt gangi. En þetta er kjarni máls. Rangfærslur og rangindi leið- rétt Venjan hefur verið sú að ráðuneyti ræði ekki málefni einstaklinga við aðstæður sem þessar. Það geri ég heldur ekki nema að takmörkuðu leyti. Þegar hins vegar stjórnvöldum er borið á brýn að brjóta freklega mannréttindi á einstaklingi, þá hlýt- ur það að kalla á viðbrögð. Annað er að málefnið er þess eðlis að þögn um það er varasöm. Iðulega eiga í hlut einstaklingar sem búa við erfið- ustu aðstæður sem hægt er að hugsa sér og geta varðað líf og dauða. Umræðuna vil ég því taka alvar- lega. Með opinni umræðu er einn- ig hægt að eyða misskilningi, leið- rétta ósannindi og þá hugsanlega einnig mistök sem kunna að eiga sér stað hjá öllum hlutaðeigandi. Þar er ég sjálfur að sjálfsögðu ekki undan- skilinn. Umræða | 19Mánudagur 25. júlí 2011 1 „Réttlætið varð undir“ Rök sögð hníga að því að Mark Kennedy hafi verið undirróðursmaður. 2 „Fangarnir biluðust og brotn-uðu“ Hlynur Þór Magnússon var fangavörður í Síðumúlafangelsinu þegar rannsókn Geirfinnsmálsins stóð sem hæst. 3 Kúlulánið tekið yfir eftir hrun Eigendur fjárfestingarfélagsins Sunds létu eignarhaldsfélagið yfirtaka nærri 240 milljóna króna skuld eignarhalds- félags eftir bankahrunið árið 2008. 4 „Ég vil bara lifa“ Flóttamaður í felum fyrir íslenskum yfirvöldum segist bara vilja fá að lifa. 5 Fjöldamorðinginn var frímúrari – gerður brottrækur í kjölfar ódæða Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik var rekinn úr frímúrarareglunni, „algjörlega á skjön við siðræn gildi reglunnar“. 6 Teitur í mynd um Kögunar-málið Teitur Atlason, blogg- ari og íslenskukennari, mun verða í aðalhlutverki í heimildamynd um Kögunarmálið svokallaða. 7 Sprengiefna leitað í Noregi Lögreglan hefur ekki fundið allan áburðinn. Mest lesið á dv.is Myndin Mínútu þögn Knattspyrnumenn og áhorfendur leikja í Pepsi-deild karla vottuðu fórnarlömbum fjöldamorðanna í Noregi virðingu sína með mínútu þögn fyrir leikina sem fram fóru í gær, sunnudag. Í Frostaskjóli mátti heyra saumnál detta. MyNd: GUNNaR GUNNaRssoN Maður dagsins Tíu daga ferð- ir uppi á há- lendi bestar Helgi Björnsson Plötur Helga Björnssonar og Reiðmanna vindanna hafa notið ótrúlegra vinsælda. Til marks um það gerðist það ótrúlega að allar þrjár plötur þeirra sem komið hafa út undanfarin þrjú ár voru á meðal þeirra tuttugu söluhæstu í síðustu viku sam- kvæmt tónlistanum. Sú nýjasta, Ég vil fara upp í sveit, var á toppnum, platan Þú komst í hlaðið frá árinu 2010 var í sjöunda sæti og platan Ríðum eins og fjandinn frá árinu 2008 sat í nítjánda sæti listans. Hver er maðurinn? „Helgi Björnsson heiti ég.“ Hvar ertu uppalinn? „Á Ísafirði.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Opna augun.“ Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? „Bleikja úr Þingvallavatni. Hvort sem ég veiði hana sjálfur eða einhver annar. Hún er rosalega bragðgóð, bæði rétt steikt og grilluð.“ Hvernig slakar þú á? „Með því að leggjast niður með góða bók. Það er besta slökunin.“ Ert þú búinn að ferðast eitthvað í sumar? „Já, frekar. Nú er ég í Færeyjum og í síðustu viku var ég í göngu á Jökulfjörðum. Þar áður var ég á Landsmóti og á Ísafirði á undan því. Fyrir það var ég í Berlín, þar áður Flatey og svo Breiðafirði. Á íslensku sumri reyni ég að vera sem mest úti á landi einhvers staðar úti í móa eða uppi á fjöllum. Í það minnsta uppi í sumarbústað.“ Hver er galdurinn á bak við þessar plötur? „Ætli hann felist nú ekki í lögunum og þeirri meðferð sem þau fá hjá okkur. Ég hef svona reynt að leyfa lögunum að njóta sín og ekki skreyta þau of mikið. Ég vil hafa þau svolítið lífræn. Þetta eru eiginlega lífrænt ræktaðar plötur.“ Bjóst þú við svona svakalegum viðbrögðum þegar þið lögðuð upp- haflega af stað í þetta verkefni? „Nei, alls ekki. Þetta kom nú bara svona að sjálfu sér. Það var búið að standa til lengi að gera hestamannaplötu. Maður er búinn að vera mikið í hestaferðum og þar er mikið sungið. Ég dreif mig því í að gera þetta árið 2008 og var ekki með neinar væntingar, vildi bara hafa gaman af þessu. Svo í framhaldi af fyrstu plötunni fór að verða eftirspurn og maður hefur svona orðið við henni.“ Eru hestamenn svona mikið söng- fólk? „Já, það er mikið sungið og hefur verið í gegnum tíðina. Best er þegar hestamenn sem kunna að syngja raddaðan, gamlan, íslenskan tví- og þrísöng. Það er það allra flottasta. En já, upp til hópa er mikið sungið í hestaferðum.“ Ríður þú mikið út? „Ekki nægilega mikið. Skemmtilegast finnst mér samt að fara í ferðir. Taka svona viku til tíu daga ferðir uppi á hálendi eða yfir Kjöl. Svona er gott að taka styttri túra inn á milli, helgarferðir og svona.“ Hvað átt þú marga hesta? „Hestamaður gefur aldrei upp fjöldann á hestunum sínum. Ég á nokkra. Segjum það.“ Er stefnt á fjórðu plötuna? „Nei, ég ætla mér það nú ekki endilega. Eigum við ekki bara að segja þetta gott í bili? Mér fannst fínt að byrja á svona þrennu og svo hvíla mig aðeins. Það er ekkert planað að gera aðra plötu svona einn, tveir og bingó. En maður má víst aldrei segja aldrei.“ Kjallari Ögmundur Jónasson Innanríkisráðherra Málefni hælisleitenda: Eyðum misskilningi og mistökum „Ásakanir um að ís­ lensk stjórnvöld séu að senda einstakling í þrældóm eða út í op­ inn dauðann eru graf­ alvarlegar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.