Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Síða 19
É
g gef mér að samtökin No
Borders starfi í þeim anda,
sem heiti samtakanna ber
með sér, nefnilega að fólki
skuli ekki torveldað að fara
yfir landamæri og að þeir sem eru á
flótta undan ranglæti fái hæli. Þetta
eru virðingarverð markmið og mik-
ilvægt að stjórnvöldum sé jafnan
haldið við efnið í mannréttindamál-
um. En á sama hátt og þessi málstað-
ur þarf að njóta sannmælis þá þarf
einnig að láta þá njóta sannmæl-
is sem framfylgja þeim reglum sem
við sem samfélag höfum sett okkur í
samvinnu við aðrar þjóðir.
Vöndum umræðuna
Fjöldi fólks í heiminum er á flótta
undan erfiðu hlutskipti, sumir
hundeltir af harðstjórum í heima-
landi sínu fyrir að taka þátt í mann-
réttindabaráttu, aðrir jafnvel á flótta
undan þrælahöldurum eins og full-
yrt er um ungan mann frá Máritaníu
en mál hans hefur verið til umfjöll-
unar í íslenskum fjölmiðlum að und-
anförnu. Síðan er hitt til líka að mis-
indismenn eru á flótta undan réttvísi
einsog dæmin sanna.
Þess vegna er varasamt að alhæfa
um hælisleitendur og mikilvægt að
allir sem að umræðu um þessi við-
kvæmu mál koma, vandi sig og byggi
á eins traustum upplýsingum og
kostur er. Það hefur ekki verið gert í
þeirri opinberu umræðu sem fram
hefur farið um málefni fyrrnefnds
hælisleitanda frá Máritaníu.
Réttarstaða hælisleitenda
styrkt
Nánast öll ríki í okkar heimshluta
hafa fengið til sín fjölda hælisleit-
enda sem óskað hafa eftir því að fá
pólitískt hæli. Löggjöf í einstökum
ríkjum er mismunandi en íslensk
stjórnvöld hafa á síðustu misserum
leitast við að styrkja réttarstöðu hæl-
isleitenda bæði með laga- og reglu-
gerðarbreytingum. Enn þarf að bæta
regluverkið og alla framkvæmd og er
unnið að því í innanríkisráðuneyt-
inu.
Svokallað Dyflinnarsamkomulag
sem Íslendingar auk annarra ríkja
á Schengen-svæðinu eiga aðild að
felur í sér viðmið fyrir því hvaða að-
ildarríki skuli bera ábyrgð á með-
ferð umsóknar um hæli, þ. á. m. um
fjölskyldusameiningu, hvar einstak-
lingur hefur sótt fyrst um hæli, hvort
einstaklingur hafi fengið útgefið
dvalarleyfi eða áritun o.s.frv.
Nokkur brögð eru að því að hæl-
isleitendur reyni fyrir sér samtímis í
mörgum löndum en Dyflinnarreglu-
gerðin á að stuðla að því að einstak-
lingurinn fái málefnalega umfjöll-
un á einum stað. Að sjálfsögðu þarf
að að vera tryggt að sú umfjöllun sé
málefnaleg og í samræmi við mann-
réttindareglur.
Íslendingar og Norðmenn riðu
á vaðið
Ástæðan fyrir því að Íslendingar
ákváðu – ásamt Norðmönnum –
fyrstir þjóða að senda hælisleitendur
ekki til Grikklands var einmitt sú að
Mannréttindadómstóll Evrópu taldi
ekki tryggt að hælisleitendur fengju
þar viðunandi skoðun sinna mála
og aðbúnaður þeirra væri ekki sem
skyldi.
Sá einstaklingur sem hefur ver-
ið til umfjöllunar hér og er frá Mári-
taníu sótti um hæli í Noregi og þar er
hans mál til umfjöllunar. Við höfnun
þar getur hann gert nákvæmlega það
sama og hér á landi: hann getur kært
niðurstöðuna fyrir dómstólum. Stað-
reyndin er sú að málsmeðferð í Nor-
egi er svipuð og hér á landi enda hafa
Íslendingar sótt fyrirmynd til Noregs
um lög og alla framkvæmd í málefn-
um hælisleitenda. Norðmenn hafa
staðið flestum þjóðum framar hvað
varðar vandaða afgreiðslu mála en
við þó sótt í okkur veðrið.
Rangar ásakanir
Ásakanir um að íslensk stjórnvöld
séu að senda einstakling í þrældóm
eða út í opinn dauðann eru graf-
alvarlegar. Samkvæmt því sem ég
best veit eru þær hins vegar sem
betur fer rangar. Fyrir liggur að ekk-
ert í gögnum, sem okkur hafa borist í
þessu máli eða öðrum sem hafa ver-
ið til umfjöllunar í Noregi, bendi til
þess að málsmeðferð þar hafi verið
ósanngjörn eða að umsóknir fái ekki
vandaða og sanngjarna málsmeð-
ferð í Noregi. Enda er almennt litið
svo á að málsmeðferð norskra stjórn-
valda í málefnum hælisleitenda sé í
samræmi við alþjóðlegar skuldbind-
ingar og þar sé farið eftir ákvæðum
flóttamannasamningsins og mann-
réttindasáttmála Evrópu. Þess vegna
leyfi ég mér að trúa því að norskt
réttarkerfi sendi ekki ungan mann í
hendur þrælahaldara.
Þá er rangt sem haldið er fram að
ekki hafi verið reynt að veita viðkom-
andi einstaklingi viðunandi túlka-
þjónustu. Ég óskaði sérstaklega eftir
upplýsingum frá Útlendingastofnun
um það efni. Þótt ekki væri hægt að
finna túlk sem talaði bæði márit-
anska tungumálið wolof og jafnframt
íslensku tókst engu að síður að búa
svo um hnúta með hjálp túlka, sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem mér
hafa verið veittar, að aðilar skildu
hvor annan á fullnægjandi hátt.
Um kjarna máls
Samkvæmt mínum upplýsingum
var hælisleitandanum frá Máritaníu
leiðbeint um hvernig hann ætti að
bera sig að við að kæra úrskurð Út-
lendingastofnunar og naut hann
einnig aðstoðar Rauða krossins. Var
honum skipaður talsmaður sem
kærði ákvörðun Útlendingastofn-
unar til innanríkisráðuneytisins. Þar
var komist að þeirri niðurstöðu að
ákvörðun Útlendingastofnunar hafi
verið rétt en frekari kæra er síðan aft-
ur til meðferðar í ráðuneytinu. Ekk-
ert nýtt hefur hins vegar komið fram,
samkvæmt mínum upplýsingum,
sem sýnir fram á að þær forsendur
sem byggt var á standist ekki; ef svo
hefði verið hefði ráðuneytið endur-
skoðað úrskurð sinn. Eftir stendur
að hælisleitandanum beri að fara til
Noregs og ljúka sínu máli þar. Sé það
ekki íslenskra stjórnvalda að skerast
í það ferli.
En hvaða leið ætla Íslendingar að
fara? Ætlum við að virða að vettugi
málsmeðferð ríkja á borð við Noreg,
sem sannanlega hafa verið að reyna
að standa sig í mannréttindamálum?
Ef við gerum það og tökum á móti
öllum sem er hafnað í Noregi og þess
vegna annars staðar, þá þarf að ger-
ast kraftaverk til að við getum tek-
ið sómasamlega á móti öllum þeim
fjölda fólks sem til okkar myndi leita.
Hinn kosturinn er að virða þessi ferli
og bæta jafnframt réttarstöðu hæl-
isleitenda hér á landi. Sá kostur er
betri að mínu mati og þá leið erum
við að feta þótt of hægt gangi. En
þetta er kjarni máls.
Rangfærslur og rangindi leið-
rétt
Venjan hefur verið sú að ráðuneyti
ræði ekki málefni einstaklinga við
aðstæður sem þessar. Það geri ég
heldur ekki nema að takmörkuðu
leyti. Þegar hins vegar stjórnvöldum
er borið á brýn að brjóta freklega
mannréttindi á einstaklingi, þá hlýt-
ur það að kalla á viðbrögð. Annað
er að málefnið er þess eðlis að þögn
um það er varasöm. Iðulega eiga í
hlut einstaklingar sem búa við erfið-
ustu aðstæður sem hægt er að hugsa
sér og geta varðað líf og dauða.
Umræðuna vil ég því taka alvar-
lega. Með opinni umræðu er einn-
ig hægt að eyða misskilningi, leið-
rétta ósannindi og þá hugsanlega
einnig mistök sem kunna að eiga sér
stað hjá öllum hlutaðeigandi. Þar er
ég sjálfur að sjálfsögðu ekki undan-
skilinn.
Umræða | 19Mánudagur 25. júlí 2011
1 „Réttlætið varð undir“ Rök sögð hníga að því að Mark Kennedy hafi
verið undirróðursmaður.
2 „Fangarnir biluðust og brotn-uðu“ Hlynur Þór Magnússon var
fangavörður í Síðumúlafangelsinu
þegar rannsókn Geirfinnsmálsins stóð
sem hæst.
3 Kúlulánið tekið yfir eftir hrun Eigendur fjárfestingarfélagsins Sunds
létu eignarhaldsfélagið yfirtaka nærri
240 milljóna króna skuld eignarhalds-
félags eftir bankahrunið árið 2008.
4 „Ég vil bara lifa“ Flóttamaður í felum fyrir íslenskum yfirvöldum
segist bara vilja fá að lifa.
5 Fjöldamorðinginn var frímúrari – gerður brottrækur í kjölfar
ódæða Norski fjöldamorðinginn
Anders Behring Breivik var rekinn úr
frímúrarareglunni, „algjörlega á skjön
við siðræn gildi reglunnar“. 6 Teitur í mynd um Kögunar-málið Teitur Atlason, blogg-
ari og íslenskukennari, mun verða
í aðalhlutverki í heimildamynd um
Kögunarmálið svokallaða.
7 Sprengiefna leitað í Noregi Lögreglan hefur ekki fundið allan
áburðinn.
Mest lesið á dv.is
Myndin Mínútu þögn Knattspyrnumenn og áhorfendur leikja í Pepsi-deild karla vottuðu fórnarlömbum fjöldamorðanna í Noregi
virðingu sína með mínútu þögn fyrir leikina sem fram fóru í gær, sunnudag. Í Frostaskjóli mátti heyra saumnál detta.
MyNd: GUNNaR GUNNaRssoN
Maður dagsins
Tíu daga ferð-
ir uppi á há-
lendi bestar
Helgi Björnsson
Plötur Helga Björnssonar og Reiðmanna
vindanna hafa notið ótrúlegra vinsælda.
Til marks um það gerðist það ótrúlega að
allar þrjár plötur þeirra sem komið hafa
út undanfarin þrjú ár voru á meðal þeirra
tuttugu söluhæstu í síðustu viku sam-
kvæmt tónlistanum. Sú nýjasta, Ég vil fara
upp í sveit, var á toppnum, platan Þú komst
í hlaðið frá árinu 2010 var í sjöunda sæti
og platan Ríðum eins og fjandinn frá árinu
2008 sat í nítjánda sæti listans.
Hver er maðurinn?
„Helgi Björnsson heiti ég.“
Hvar ertu uppalinn?
„Á Ísafirði.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á
morgnana?
„Opna augun.“
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
„Bleikja úr Þingvallavatni. Hvort sem ég
veiði hana sjálfur eða einhver annar. Hún
er rosalega bragðgóð, bæði rétt steikt og
grilluð.“
Hvernig slakar þú á?
„Með því að leggjast niður með góða bók.
Það er besta slökunin.“
Ert þú búinn að ferðast eitthvað í
sumar?
„Já, frekar. Nú er ég í Færeyjum og í síðustu
viku var ég í göngu á Jökulfjörðum. Þar áður
var ég á Landsmóti og á Ísafirði á undan því.
Fyrir það var ég í Berlín, þar áður Flatey og
svo Breiðafirði. Á íslensku sumri reyni ég að
vera sem mest úti á landi einhvers staðar úti
í móa eða uppi á fjöllum. Í það minnsta uppi
í sumarbústað.“
Hver er galdurinn á bak við þessar
plötur?
„Ætli hann felist nú ekki í lögunum og þeirri
meðferð sem þau fá hjá okkur. Ég hef svona
reynt að leyfa lögunum að njóta sín og ekki
skreyta þau of mikið. Ég vil hafa þau svolítið
lífræn. Þetta eru eiginlega lífrænt ræktaðar
plötur.“
Bjóst þú við svona svakalegum
viðbrögðum þegar þið lögðuð upp-
haflega af stað í þetta verkefni?
„Nei, alls ekki. Þetta kom nú bara svona að
sjálfu sér. Það var búið að standa til lengi
að gera hestamannaplötu. Maður er búinn
að vera mikið í hestaferðum og þar er mikið
sungið. Ég dreif mig því í að gera þetta árið
2008 og var ekki með neinar væntingar, vildi
bara hafa gaman af þessu. Svo í framhaldi
af fyrstu plötunni fór að verða eftirspurn og
maður hefur svona orðið við henni.“
Eru hestamenn svona mikið söng-
fólk?
„Já, það er mikið sungið og hefur verið í
gegnum tíðina. Best er þegar hestamenn
sem kunna að syngja raddaðan, gamlan,
íslenskan tví- og þrísöng. Það er það allra
flottasta. En já, upp til hópa er mikið sungið
í hestaferðum.“
Ríður þú mikið út?
„Ekki nægilega mikið. Skemmtilegast finnst
mér samt að fara í ferðir. Taka svona viku til
tíu daga ferðir uppi á hálendi eða yfir Kjöl.
Svona er gott að taka styttri túra inn á milli,
helgarferðir og svona.“
Hvað átt þú marga hesta?
„Hestamaður gefur aldrei upp fjöldann á
hestunum sínum. Ég á nokkra. Segjum það.“
Er stefnt á fjórðu plötuna?
„Nei, ég ætla mér það nú ekki endilega.
Eigum við ekki bara að segja þetta gott í
bili? Mér fannst fínt að byrja á svona þrennu
og svo hvíla mig aðeins. Það er ekkert
planað að gera aðra plötu svona einn, tveir
og bingó. En maður má víst aldrei segja
aldrei.“
Kjallari
Ögmundur Jónasson
Innanríkisráðherra
Málefni hælisleitenda: Eyðum
misskilningi og mistökum
„Ásakanir um að ís
lensk stjórnvöld
séu að senda einstakling
í þrældóm eða út í op
inn dauðann eru graf
alvarlegar.