Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2011, Page 13
Fréttir | 13Mánudagur 25. júlí 2011
fimm á fundinn þannig að allir
fengu eitthvert hlutverk. Hann
var varaformaður og formaður
í sinni deild.“
Óheppinn í viðskiptum
Breivik reyndi fyrir sér í Versl-
unarskólanum í Osló (Hand-
elsgymnasium) og stundaði
einnig nám í gegnum netið við
American InterContinental
University án þess þó að ljúka
námi. Hann stundaði síðar
nám við BI-viðskiptaháskól-
ann, sem er sá stærsti sinn-
ar tegundar í Noregi. Á fyrstu
árum 21. aldarinnar reyndi
hann fyrir sér í viðskiptum og
setti nokkur fyrirtæki á lagg-
irnar en ekkert þeirra varð
langlíft. Eitt þessara fyrirtækja
var tölvusala, og komst hann
þannig í góð kynni við nútíma
upplýsingatækni sem hann átti
síðar eftir að nota til að dreifa
áróðri sem beindist helst gegn
fjölmenningu, sér í lagi mús-
limum. Honum gramdist sér-
staklega að heilu íbúðablokk-
irnar í Osló voru undirlagðar
af sómölskum innflytjendum
og taldi það hneyksli að þeir
skyldu hafa hlotið norskan
ríkisborgararétt. Breivik var á
þeirri skoðun að þessir inn-
flytjendur gerðu ekkert nema
sitja á sófum sínum og hirða
félagslegar bætur. Hann taldi
innflytjendurna því næst
senda hluta bótanna á heima-
slóðir þar sem þeir styddu við
bakið á hryðjuverkasamtökum
múslima.
Lifði tvöföldu lífi
Árið 2006 virðist Breivik hafa
gefist upp á viðskiptaævintýr-
um um sinn. Hann fluttist úr
íbúð sinni og tók sér búsetu
í íbúð móður sinnar þar sem
hann ólst upp í vesturhluta
Osló. Í handbók Breivik, 1.500
síðna stefnuyfirlýsingu og dag-
bók, gerir hann grein fyrir því
að það hafi verið fjárhagslegir
erfiðleikar sem neyddu hann
til að flytjast aftur til móð-
ur sinnar. Þar þurfti hann að
lifa tvöföldu lífi til leyna móð-
ur sína áætlunum sínum, en
hann hafði þá þegar hafið und-
irbúning á fjöldamorðunum
sem hann framkvæmdi síð-
an á föstudaginn. Í stefnuyfir-
lýsingu sinni, sem ber titilinn:
2083 – Evrópsk sjálfstæðisyfir-
lýsing, er undirbúningi hans
lýst nákvæmlega og urðu þær
lýsingar æ nákvæmari eftir því
sem styttist í voðaverkin sjálf.
Til að byrja með mun hann
hafa skipt áætlun sinni í marga
hluta. Til að fela slóð sína safn-
aði hann ætíð upplýsingum
á USB-minnislykil fyrir hvern
hluta áætlunarinnar. Þegar
hver hluti var tilbúinn eyddi
hann minniskubbnum. Hann
náði að verða sér úti um skot-
vopn, Glock-skammbyssu og
hálfsjálfvirkan riffil auk hagla-
byssu. Hann setti skotvopnin
í kistu sem hann gróf í skógi
svo móður hans myndi ekkert
gruna. Hann pantaði sér einn-
ig dulargervi, lögreglubúning,
sem hann gróf í kistu. Enginn
mátti vita um fyrirætlanir Brei-
vik.
Tók stera og varð
vænisjúkur
Á þessu ári hóf Breivik að neyta
stera í miklu mæli svo hann
yrði betur í stakk búinn líkam-
lega til að fremja fjöldamorðin.
Við það varð hann mjög væn-
isjúkur en hann virðist á sama
tíma hafa áttað sig á auka-
verkunun-
um. Hann
skráði það
í dagbók sína að hann hefði
áhyggjur af árásargirni sinni,
að hann væri orðinn fljótur að
skipta skapi og einnig að hann
hefði áhyggjur af ástandi lifrar
sinnar.
Vænisýki hans var umtals-
verð en hann var meðal ann-
ars viss um að Deltasveit lög-
reglunnar hefði hann undir
eftirliti. Eftir að hann fluttist til
Rena og hóf að búa til sprengj-
ur fékk hann áhyggjur af því að
hjón sem leigðu honum hús
ættu eftir að uppgötva sann-
leikann um hvað hann væri
að gera. „Ég er í djúpum skít!“
skrifaði hann í dagbók sína
þann 18. júní þegar hann átti
von á heimsókn frá frúnni sem
þurfti að sækja eitthvað í bíl-
skúrinn þar sem sprengjugerð-
in fór fram. Hann náði að fresta
heimsókninni og breiða yfir
sprengjurnar í tæka tíð. Breivik
sleit einnig öllum samskiptum
við vini sína í Osló, ella myndu
þeir ef til vill heimsækja hann
til Rena og sjá áburðarsprengj-
urnar.
Sprengdi tilraunasprengju
Breivik lýsti því af nákvæmni
hvernig hann hafi smíðað
fyrstu sprengjuna sína sem
ófreskjan
í eyjunni
„Hann skaut á mig með skammbyssu.
Ég fann kúluna þeytast fram hjá mér
en hún hafnaði í steinum fyrir aftan mig. Ég
bara hljóp. Fólk var skotið niður allt í kringum
mig. Hann gætti þess að skjóta alla tvisvar.
Hann skaut á vini mína sem syntu frá eynni,
og hann skaut á þá sem að reyndu að fela
sig í tjöldum eða í skóginum.
Thorbjørn Vereide
Framhald á næstu opnu
Stoltenberg í minningarathöfn „Ef einn maður getur sýnt svo mikið
hatur, hugsið ykkur alla ástina sem við getum sýnt.“
„Ég drep
ykkur öll