Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2012, Qupperneq 14
14 Fermingar 2.–4. mars 2012 Helgarblað
Ráð til að gera
veisluna ódýrari
A
ð halda fermingarveislu vex
mörgum foreldrum ferm-
ingarbarna í augum, þá sér-
staklega kostnaðarliðurinn.
Það er þó vel hægt að halda
upp á þennan áfanga í lífi barnsins
án þess að fara fram úr sér í kostnaði
og tæma pyngjuna alveg.
Það er algjör óþarfi að halda
hundrað og fimmtíu manna veislu
enda kemur fermingarbarnið þá
varla til með að þekkja helminginn af
gestunum.
Fjölskyldur eru vissulega mis-
munandi að stærð og gerð en skyn-
samlegast er að setjast niður og gera
gestalista og leyfa fermingarbarninu
að vera með í ráðum. Þannig er barn-
ið líka meðvitað um hverjum það er
að fara að taka á móti en kemur ekki
af fjöllum í veislunni þegar „ókunn-
ugar“ gamlar frænkur mæta með
opinn faðminn. Tilbúnar að knúsa
fermingarbarnið og kyssa.
Fáðu ættingjana til að aðstoða
Ef um er að ræða fimmtíu til sextíu
manna veislu, ætti að vera auðvelt að
halda hana í heimahúsi. Sem er auð-
vitað langhagkvæmasti kosturinn.
Ef foreldrar fermingarbarnsins hafa
ekki aðstöðu til að halda veislu af
þeirri stærðargráðu má alltaf kanna
hvort ættingjar eða vinir eru tilbúnir
til að bjóða fram húsnæði.
Ef sá möguleiki er ekki fyrir hendi
getur verið nauðsynlegt að sníða
veisluna að því plássi sem er til stað-
ar. Veislur í minni kantinum þar sem
nánustu ættingjar koma saman og
fagna með barninu bjóða líka upp
á meiri nálægð og hægt er að sinna
gestunum betur.
Ef íslenska vorveðrið sýnir sínar
bestu hliðar getur líka verið frábær
lausn að færa hluta veislunnar út í
garð eða á verönd, ef húsnæðið býð-
ur upp á það.
Súpa er ódýr kostur
Þegar kemur að veitingunum eru
möguleikarnir jafn margir og veisl-
urnar eru ólíkar. Ef um er að ræða
kökuveislu er tilvalið að biðja ætt-
ingja og vini um að taka að sér að
baka eina köku eða sjá um eitthvað
nasl. Það er jafnvel allt eins líklegt að
nánustu ættingjar og góðir vinir bjóði
sjálfir fram aðstoð sína. Þá er góður
tími til að brjóta odd af oflæti sínu og
þiggja alla þá aðstoð sem býðst.
Fyrir þá sem vilja frekar bjóða
upp á mat en kökur er tilvalið að
gera góða og matarmikla súpu með
ýmiss konar meðlæti. Súpur fara
yfirleitt vel í fólk, bæði unga sem
aldna og hráefnið getur verið ódýrt
sé það rétt valið. Í eftirrétt er svo
hægt að bjóða upp á smá kökus-
makk, svona til málamynda, enda
allir væntanlega vel saddir eftir mat-
armikla súpuna.
Skreyttu með fánum og
blöðrum
Flestum þykir nauðsynlegt að hafa
borðskreytingar á fermingarborðinu.
Þegar kemur að slíkum skreytingum
er um að gera að láta hugmynda-
flugið ráða en hafa einfaldleikann að
leiðarljósi. Blöðrur og litlir íslenskir
fánar eru ódýr og góð lausn á skreyt-
ingum. Falleg blóm lífga líka upp á
borðið og geta vel dugað sem skreyt-
ingar ein og sér. Páskaliljur eru til
dæmis mjög stílhreinar og guli litur-
inn er hlutlaus.
Og svo er
bara að skella
fallegum dúk á
borðið og raða
veitingunum
smekklega þar á.
solrun@dv.is
n Haldið veisluna í heimahúsi og bjóðið upp á súpu n Skreytið með
blómum og fánum n Leyfið fermingarbarninu að vera með í ráðum
„Skynsamlegast er
að setjast niður og
gera gestalista og leyfa
fermingarbarninu að vera
með í ráðum.
Ódýr kostur Matarmikil
súpa er ódýr og góður kostur í
fermingarveisluna.
Blöðrur
Einfaldar
skreytingar
eins og blöðrur
geta verið mjög
fallegur og
ódýr kostur á
fermingarborðið.
Síðumúla 20
www.blomabud.is
sími 553 1099
Persónuleg og fagleg
þjónusta í 45 ár
Öðruvísi og falleg fermingargjöf
Handmáluð
hnattlíkön
Handgerð hnattlíkön eru sniðug fyr-
ir þá sem langar til að gefa ferming-
arbarninu fallega og frumlega gjöf.
Á vef artonglobes.com má finna
einstök handmáluð hnattlíkön eftir
Wendy Gold, bandaríska listakonu
sem hefur getið sér gott orð fyrir fal-
lega hönnun.
Wendy málar fallegar mynd-
ir yfir gömul hnattlíkön og eru því
engir tveir hnettir eins. Hægt er að
sérpanta líkan og fá myndir og orð
á hnöttinn sem falla að smekk og
áhugamáli fermingarbarnsins, en
einnig má velja úr fallegri hönnun
sem þegar er til og má sjá á heima-
síðunni.
Verð fer eftir stærð hnattar-
ins og hversu mikið fólk vill sér-
sníða hann eftir eigin óskum. Verð
á hnattlíkönum fer eftir stærð og
hönnun en grunnverð er tæplega
45 þúsund án sendingarkostnaðar.
Ef pantað er hnattlíkan sem er al-
gjörlega sérsniðið að sérstökum
óskum kostar það rúmlega hundr-
að þúsund krónur án sendingar-
kostnaðar. Á heimasíðunni kemur
fram að biðtími eftir hnattlíkani
er um sex til átta vikur frá því að
pöntun er gerð og sendingarkostn-
aður er tæplega sjö þúsund krónur.
Ef fólk vill virkja listræna hæfi-
leika sína má líka kaupa sér gaml-
an hnött og spreyta sig sjálfur á
skreytingum.