Fréttablaðið - 06.02.2015, Blaðsíða 4
TÝNDIST Talið
er að Ólöf Þor-
björg hafi verið
í bílnum í allt
að sjö tíma.
Sérstök úttekt
verður gerð á
máli hennar.
6. febrúar 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR |
Sérstök úttekt verður gerð á alvar-
legu máli Ólafar Þorbjargar Pét-
ursdóttur hjá Reykjavíkurborg
og hjá lögreglunni á höfuðborg-
arsvæðinu. Ólöf Þorbjörg fannst
í bifreið ferðaþjónustu fatlaðra
eftir að víðtæk leit hafði verið
gerð að henni í borginni á mið-
vikudagskvöld. Hún er mállaus og
þroska skert með mjög takmarkaða
hreyfigetu. Talið er að hún hafi
verið í bifreiðinni í allt að sjö tíma.
Lögregla hyggst ræða við öku-
mann bifreiðarinnar í dag. Í gær
fylgdi hún ábendingum frá vitn-
um um atburðarás dagsins. Innri
endurskoðun Reykjavíkurborgar
hefur verið falið að gera óháða
úttekt á aðdraganda, innleiðingu
og framkvæmd ferðaþjónustu fatl-
aðs fólks hjá Strætó.
Mikið af mistökum
Fjölmörg mistök hafa orðið á síð-
ustu mánuðum í þjónustu ferða-
þjónustu fatlaðra. Í byrjun árs var
fatlaður maður skilinn eftir fyrir
utan heimili sitt. Bílstjórinn neit-
aði að aka bæði honum og bróð-
ur hans frá heimili þeirra til for-
eldra þeirra. Mennirnir, sem eru
þrítugir, voru á leið í mat til for-
eldra sinna og höfðu báðir pantað
sér far með ferðaþjónustunni en
þeir eru búsettir á sama stað.
Þann 22. janúar var þroska-
hömluð og einhverf stúlka skil-
in ein eftir af ferðaþjónustu fatl-
aðra þrátt fyrir skýr fyrirmæli
um annað. Stúlkunni var ekið úr
skammtímavistun, þar sem hún
fer í hvíldarinnlögn einu sinni
í mánuði, og heim til hennar í
Foldahverfi í Grafarvogi þar sem
hún var skilin eftir fyrir utan
heimilið. Þá hafa fatlaðir oltið úr
hjólastólum og illa hefur gengið
að koma þeim á áfangastað. Hafa
fjölmargir misst af læknistímum,
sjúkraþjálfun og öðru. Mistökin
eru svo mörg að Strætó bað not-
endur þjónustunnar opinberlega
afsökunar.
Edda Heiðrún Backman leik-
kona sagði frá því í viðtali við
Morgunblaðið að hún hefði lent í
því að panta bíl til þess að kom-
ast í sundtíma sem er henni mjög
mikilvægur. Bíllinn kom klukku-
tíma of seint og því missti hún af
tímanum. Seinna sama dag þurfti
hún aftur að panta bíl. Í samtali
við Morgunblaðið lýsir hún atvik-
inu sem tók mjög á hana á þennan
hátt: „Þá þurfti ég líka að bíða og
bíða. Ég beið svo lengi að ég missti
af kló sett ferð og átti bara að bíða
og pissa á mig.“
Fylltust miklum ótta
Ólöf Þorbjörg gengur í Fjölbrauta-
skólann við Ármúla. Þaðan fer
hún í skipulagt tómstundastarf á
vegum Hins hússins ásamt fleira
ungu fólki með fötlun. Foreldr-
ar hennar eru ánægðir með það
starf sem er á vegum Hins húss-
ins og starfsmenn þar í húsi voru
þeim hjálplegir bæði á meðan Ólöf
Þorbjörg var týnd og eftir að hún
fannst.
Móðir Ólafar Þorbjargar segir
hins vegar að allt hafi farið
úrskeiðis sem mögulegt var í gær.
Þannig tók starfsfólk Hins hússins
ekki eftir því að stúlkan var ekki
með í félagsstarfinu þann daginn.
Vanalega eru þau afar grandvör og
hringja í foreldrana ef hún er sein
í Hitt húsið.
„Starfinu lýkur klukkan fjögur
í Hinu húsinu. Aksturinn tekur
hins vegar um klukkustund. Við
höfðum því engar áhyggjur fyrr
en klukkan var orðin fimm. Þegar
hún var ekki komin heim um tíu
mínútur yfir fimm þá hringjum
við í Hitt húsið. Þá er okkur sagt
að hún hafi aldrei komið þangað.
Ég fylltist miklum ótta þegar í
stað,“ segir móðir hennar og seg-
ist hafa strax öskrað á eiginmann
sinn. Viðbrögð þeirra hafi verið
skjót enda dóttir þeirra bjargar-
laus með öllu.
„Pétur hringdi í lögregluna og
það var strax byrjað að leita að
henni.“
Ætlar að starfa áfram ef það býðst
Þegar Fréttablaðið náði tali af bíl-
stjóranum, Valdimari Jónssyni,
sagðist hann ekki vilja tjá sig þar
sem hann biði eftir yfirlýsingu
vegna málsins. Maðurinn hefur
mikla reynslu af akstri, hann byrj-
aði nýlega að keyra aftur fyrir
ferðaþjónustu fatlaðra en hann
hefur einnig keyrt strætó. Hann
segir mikið álag hafa verið á bíl-
stjórum ferðaþjónustu fatlaðra
undanfarnar vikur.
„Þetta verður kannski kornið
sem fyllti mælirinn eins og borg-
arstjórinn sagði og það verður
farið að lagfæra eitthvað. Ég bara
hef unnið mína vinnu eða reynt
það, það sýnir sig á þessu í gær
að það hefur ekki verið fullkomið.
Þetta er ekki það sem maður óskar
eftir allavega.“ Valdimar segist
ætla halda áfram að starfa fyrir
ferðaþjónustuna bjóðist honum
það. „Það er ekki búið að segja mér
upp þannig ég veit ekkert enn þá.
Ef mér stendur til boða að halda
áfram þá geri ég það.“
Mannréttindabrot gegn fötluðum
Ellen Calmon, formaður Öryrkja-
bandalags Íslands, segir breytt
fyrirkomulag ferðaþjónustunnar
hafa verið illa hugsaða aðgerð þar
sem bókhald hafi verið tekið fram
yfir fólk.
„Það var búið að benda á að það
myndi henta betur að gera þetta að
sumri til en það var ekki hlustað
á það og þeir hljóta að hafa litið
á það þannig að það væri betra
fyrir bókhaldið að gera þetta á
nýju bókhaldsári. Og núna er þetta
Allt fór úrskeiðis sem mögulegt var
Mál Ólafar Þorbjargar dregur dilk á eftir sér. Lögregla og Reykjavíkurborg gera úttekt á málinu. Bílstjórinn segist ætla að halda áfram
að keyra fyrir ferðaþjónustu fatlaðra standi það til boða. Formaður Öryrkjabandalagsins segir mannréttindi brotin gegn fötluðum.
12.40 Stúlkan sótt ásamt sjö öðrum í
Fjölbrautaskólann við Ármúla– bílstjór-
inn ekur þeim í sextán sæta Ford Transit
niður í miðbæ Reykjavíkur.
13.00 Hópnum skipt
í tvennt þar sem
lyftan niður í kjallara
Hins hússins tekur
aðeins fjóra. Ólöf er í
seinni hópnum.
13.20 Bílstjórinn ekur af stað, að eigin
sögn í þeirri trú að allir úr hópnum séu í
kjallara Hins hússins.
16.00 Starfi Hins hússins lokið. Krakk-
arnir sjö sóttir og ekið heim. Ólöf er ekki
þar á meðal.
16.00–17.00 Akstur ungmennanna
heim tekur um klukkustund. Foreldrar
Ólafar hafa ekki áhyggjur á þessum tíma.
17.10 Ólöf er ekki komin heim og móðir
hennar ákveður að hringja í Hitt húsið
til að athuga hvort þeim hafi seinkað
heim á leið. Þá er henni sagt að Ólöf hafi
aldrei komið í Hitt húsið.
17.30 Foreldrarnir bregðast strax við.
Hringja í ferðaþjónustu fatlaðra til að fá
svör. Þá er haft samband við ökumann
og hann spurður um Ólöfu. Hann segist
hafa séð hana fara úr bifreiðinni.
18.07 Faðir Ólafar hefur samband við
lögregluna og vill láta leita að Ólöfu.
18.25 Óskað eftir aðstoð björgunar-
sveitar. Yfir hundrað leitarmenn leita
að Ólöfu í miðborginni. Leitin beinist
helst að hafnarsvæðinu.
19.11 Lýst er eftir Ólöfu í fjöl-
miðlum landsins.
19.45 Ólöf finnst í sendibifreiðinni. Hún
er spennt í belti. Bílstjórinn bíður með
henni í bílnum þar til lögregla kemur á
vettvang.
20.00 Lög-
regla fylgir
Ólöfu
heim til
foreldra
sinna.
FERÐ ÓLAFAR FRÁ ÞVÍ HÚN VAR SÓTT ÞAR TIL HÚN FANNST
ASKÝRING | 4
FERÐAÞJÓNUSTA FATLAÐRA
12.00 13.00 14.00 15.00 16.00 17.00 18.00 19.00 20.00
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjanabjorg@frettabladid.is
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@frettabladid.is
allt á skítafloti.“ Hún segir einnig
illa hafa verið staðið að því þegar
starfsmönnum í þjónustuveri hafi
verið sagt upp en þar hafi horfið
dýrmæt þekking. „Meðal annars
þekking á því hvaða fötlun viðkom-
andi einstaklingur búi yfir. Þetta
eru ólíkir hópar og það hentar ekki
það sama öllum.“ Ellen segir það í
raun vera mannréttindabrot gegn
fötluðum hvernig sé staðið að þess-
um málum.
Hún hafi heyrt af fjölmörgum
óhöppum og slysum á undanförn-
um vikum.
Neyðarstjórn skipuð
Í gær var haldinn sameiginlegur
fundur eigenda og stjórnar Strætó
í Ráðhúsi Reykjavíkur. Á honum
var lagt til að skipuð yrði sérstök
stjórn yfir ferðaþjónustu fatlaðs
fólks undir forystu Stefáns Eiríks-
sonar, sviðsstjóra Velferðarsviðs
Reykjavíkurborgar.
Í samtali við Fréttablaðið sagð-
ist Stefán leggja til hliðar önnur
verkefni til að einbeita sér að því
að koma þjónustunni í lag. Stjórnin
verður með aðild fulltrúa Öryrkja-
bandalagsins, Sjálfsbjargar og
Þroskahjálpar.
„Við gefum okkur fjórar vikur
til þess að vinna að þessum málum.
Okkar hlutverk er að tryggja
örugga þjónustu,“ sagði Stefán og
sagði stjórnina hafa fullt umboð til
þess að gera þær breytingar sem
hún telur nauðsynlegar til að bæta
úr í þjónustu og framkvæmd. Þá
hefur hún einnig fullt umboð til
að gera tillögur um breytingar á
fyrir komulagi eða framkvæmd
þjónustunnar til framtíðar.
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein-
grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402:
Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson
jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Soff ía Sveinsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
VINDASAMT Í dag má búast við 15-20 m/s vestan til fyrripart dags en síðan hvessir
einnig norðanlands og suðaustan til og búast má við stormi um tíma í flestum
landshlutum. Á morgun dregur úr vindi en á sunnudaginn bætir í vind á nýjan leik.
0°
20
m/s
1°
18
m/s
2°
14
m/s
5°
16
m/s
Allhvasst
N-til en
5-10 m/s
syðra.
Víða
stormur
N-til og
allhvasst
V-til.
Gildistími korta er um hádegi
-3°
17°
-5°
2°
15°
3°
0°
2°
2°
18°
5°
8°
11°
17°
3°
-1°
3°
1°
3°
13
m/s
6°
15
m/s
5°
10
m/s
4°
12
m/s
2°
14
m/s
1°
15
m/s
-2°
14
m/s
5°
6°
2°
3°
2°
4°
2°
2°
2°
2°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
SUNNUDAGUR
Á MORGUN
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
F
1
-6
A
1
8
1
7
F
1
-6
8
D
C
1
7
F
1
-6
7
A
0
1
7
F
1
-6
6
6
4
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
6
4
s
_
5
2
2
0
1
5
C
M
Y
K