Fréttablaðið - 06.02.2015, Blaðsíða 10
6. febrúar 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
SJÁVARÚTVEGUR Útgerðarmenn
kalla eftir stöðugleika um fisk-
veiðistjórnun. Líkt og Fréttablað-
ið greindi frá í gær hefur Sigurður
Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, ekki enn
kynnt frumvarp um fiskveiðistjórn,
en ágreiningur er á milli stjórnar-
flokkanna um málið.
„Við urðum, eins og aðrir, varir
við fréttaflutning af þessu og
vorum að reyna að hlera málin
undir lok síðasta árs. Við bjugg-
umst við því að frumvarp yrði lagt
fram á haustþingi,“ segir Kolbeinn
Árnason, framkvæmdastjóri Sam-
taka fyrirtækja í sjávarútvegi
(SFS). Hann segir sjávarútvegsfyr-
irtæki vonast eftir útspili sem komi
á stöðugleika fyrir atvinnugrein-
ina, sem mikið skorti á. Fyrirtæk-
in verði að búa við fyrirsjáanleika.
„Þessi staða að kosið verði um
þetta á fjögurra ára fresti og
reglum um gjaldtöku sé breytt á
ársfresti er ekki góð fyrir grein
sem krefst eins mikillar fjárfest-
ingar og sjávarútvegurinn gerir.“
Hættan sé sú að fyrirtæki haldi að
sér höndum þegar kemur að nýfjár-
festingum og endurnýjun tækja-
kosts, segir Kolbeinn, og vísar til
hás aldurs íslenska fiskiskipaflot-
ans.
Víðtæk sátt markmiðið
Sigurður Ingi sagði á þingi í gær að
meginmarkmið hans væri að ná víð-
tækri sátt. Hann sagði að býsna vel
hefði tekist að ræða við ólíka hags-
munaaðila um þrjá meginþætti
frumvarpsins; að þjóðin sé eigandi
auðlindarinnar, að útgerðinni sé
tryggður fyrirsjáanleiki til lengri
tíma og að veiðigjöldin verði hluti
af þeirri þríliðu, eins og ráðherra
tók til orða. Hann brýndi þingmenn
til dáða.
„Það er auðvitað áskorun til
okkar stjórnmálamanna, hvort við
séum tilbúin til að taka þátt í slíku,
að tryggja ákveðinn stöðugleika og
fyrirsjáanleika fyrir atvinnugrein,
að höggva á þau vandamál sem hafa
snúið að því hvað varðar nýtingar-
réttinn og að tryggja fyrirsjáanleik-
ann hvað varðar veiðigjöldin einnig
í rekstri fyrirtækjanna og tekjum
almennings af auðlind sinni.“
Engin sátt í sjónmáli
Hvað sem vilja ráðherra til sáttar
líður er ljóst að sú sátt er fráleitt
í sjónmáli. Hvað samráðið varðar
segir framkvæmdastjóri SFS sam-
tökin sitja og bíða frumvarpsins,
en þau hafi ekki fengið að sjá það
í heild sinni.
„Við höfum séð einhverja hluta af
því og höfum fengið að fylgjast með
einhverjum þáttum, en það er varla
hægt að segja meira en það.“
Kolbeinn segir hins vegar gríðar-
lega mikilvægt að ná sátt um málið.
Hann vonast því til að hægt verði
að samþykkja frumvarp á yfir-
standandi þingi.
Útgerðarmenn bíða í óvissu
Sjávarútvegsfyrirtæki kalla eftir stöðugleika í fiskveiðistjórnunarmálum. Mikilvægast sé þó að samþykkja frumvarp um veiðigjöld.
Sjávarútvegsráðherra segir ólíka hagsmuni vera innan stjórnmálaflokka um málið. Stjórnarandstaðan býst við langri umræðu um málið.
Í ÖRUGGRI HÖFN Seint verður sagt að sjávarútvegsráðherra sé kominn í var með frumvarp sitt um fiskveiðistjórnun. Óvíst er hvort það verður lagt fram á yfirstandandi
þingi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þó oft og tíðum sé rætt um útgerðarmenn sem samstíga hóp, er raunin
önnur. Í þeirra röðum ríkja ólík sjónarmið og sumir þeirra telja að ekki
þurfi að hrófla mikið við kerfinu. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri
Brims, er einn þeirra.
„Það er ekkert að núverandi kerfi hvað varðar aflahlutdeild og afla-
mark. Veiðigjöldin eru komin til að vera. Þjóðin þarf hins vegar að svara
því hvort hún sé tilbúin til að taka afleiðingum þess að hafa þau gjöld há.
Ef þú ætlar að innheimta há veiðigjöld verðurðu að leyfa sjávarútveg-
inum að hagræða, svo hann geti staðið undir þeim háu gjöldum. Það
þýðir að sum fyrirtæki, sum samfélög, verða undir. Er samfélagið reiðubúið til þess?“
SEGIR EKKERT AÐ NÚVERANDI KERFI Það er hins vegar engin
launung á því að innan stjórn-
málaflokkanna, og það kom
berlega í ljós þegar ég var að
kynna þetta fyrir stjórnarand-
stöðunni, og auðvitað samstarfs-
flokknum, að þar eru ólíkir
hagsmunir.
Sigurður Ingi Jónsson, sjávarútvegsráðherra
Ráðherra dró þó enga fjöður yfir
það að stjórnarflokkarnir væru
ekki einhuga um málið.
„Það er hins vegar engin laun-
ung á því að innan stjórnmála-
flokkanna, og það kom berlega í
ljós þegar ég var að kynna þetta
fyrir stjórnarandstöðunni, og auð-
vitað samstarfsflokknum, að þar
eru ólíkir hagsmunir.
Og ein af ástæðunum fyrir því
að málið er ekki komið hér inn
ennþá er að við erum að leita eftir
víðtækari sátt um að leysa þessi
þrjú vandamál, þessi verkefni sem
við höfum staðið frammi fyrir,
á grundvelli sáttanefndarinnar í
framhaldi af því.“
Stjórnarandstaðan eftir
Nái stjórnarflokkarnir saman um
málið er þó aðeins hálfur sigur
unninn. Ljóst er að breytingar á
fiskveiðistjórnun eru ekki mál sem
stjórnarandstaðan mun láta fara
umræðulaust gegnum þingið, svo
ekki sé meira sagt. Helgi Hjörv-
ar, þingflokksformaður Samfylk-
ingarinnar, staðfestir það. „Fisk-
urinn í sjónum er stærsta eign
okkar Íslendinga. Við tökum varla
stærstu ákvörðunina um hana í
máli undir lok þings. Slíkar tillög-
ur hljóta að koma fram að hausti
og fá vandlega umfjöllun, því öllu
skiptir, bæði fyrir atvinnugrein-
ina og þjóðina, að það sé vandað til
verka.“ Helgi er einnig ósáttur við
hve lítið samráð ráðherra hafi haft
við stjórnarandstöðuna um málið,
segir það raunar ekkert hafa verið.
„Þess vegna er það eina sem er
á borðinu einhliða tillögur LÍÚ um
að lögfesta um alla framtíð eign
útgerðarmanna á því sem í dag er
sameiginleg auðlind okkar. Auðvi-
tað erum við í Samfylkingunni and-
víg því, en það er líka mikill meiri-
hluti þjóðarinnar.
Það er í andstöðu við þjóðar-
atkvæðagreiðsluna um sameign
á auðlindum og erfitt að sjá fyrir
sér annað en að um slíkar tillögur
yrðu miklar deilur. Sjávarútvegur-
inn þarf víðtæka sátt um skipulag
sitt og það væri óskynsamlegt að
pólitískar deilur sköpuðu óvissu
frá einu kjörtímabili til annars um
umhverfi hans.“
Veiðigjöldin mikilvægust
Ljóst er að ráðherra bíður erfið
vinna. Fyrst þarf hann að sætta
andstæð sjónarmið milli stjórn-
arflokkanna og þá bíður hans
umræða á þingi um mál sem flest-
allir þingmenn hafa sterkar skoð-
anir á. Aðeins eru 38 fundardagar
eftir á yfirstandandi þingi og því
ljóst að tíminn er knappur.
Jón Gunnarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og formaður
atvinnuveganefndar, lagði á það
áherslu í Fréttablaðinu í gær að
Alþingi næði að minnsta kosti að
setja lög um veiðigjöld á yfirstand-
andi þingi. Kolbeinn tekur undir að
það sé mikilvægt.
„Ég held að þetta sé mál sem
þurfi töluverða umræðu á þinginu.
Þetta varðar mikilvæga hagsmuni
fyrir alla. Ef vel er á málum hald-
ið ætti þessi tími að duga, en því
meiri sem umræðan verður, því
betra. Það má ekki afgreiða málið
án þess að allir fái að skoða það frá
öllum endum og köntum.
Ég held að það sé ákaflega mik-
ilvægt að fá einhverja lendingu
í veiðigjaldamálið eitt og sér. Ef
menn ná ekki að klára hitt, verða
menn allavega að klára veiðigjöld-
in.“
Afdrif endurskoðunar fiskveiði-
stjórnunarkerfisins eru því óljós.
Því má velta upp hvort einhvern
tíma náist víðtæk sátt um jafn mik-
ilvægt kerfi. Að kannski sé skásta
niðurstaðan sú að allir séu jafn
óánægðir og það þurfi einfaldlega
að taka ákvörðun. Sigurður Ingi
hvatti þingmenn til dáða í gær.
„Og ég vona, og er búinn að vera
að vona býsna lengi, að það sé
möguleiki að taka þetta inn hér til
gáfulegrar umræðu og efnislegrar
umræðu hér í þinginu, en til þess að
það náist víðtæk sátt um málið þá
verða allir aðilar að vera tilbúnir að
horfa á það sem þeir hafa verið að
vinna að um nokkurt skeið og hafa
kjark til að þora að ljúka málinu.“
MENNTUN Guðrún Nordal, for-
stöðumaður Árnastofnunar,
hyggst bjóða sig fram í embætti
rektors Háskóla Íslands. Nýr rekt-
or verður kjörinn um miðjan apríl.
Jón Atli Benediktsson, prófessor
við verkfræði- og náttúruvísinda-
svið, býður sig einnig fram. Krist-
ín Ingólfsdóttir rektor sækist ekki
eftir endurkjöri. Ráðherra skipar
rektor til fimm ára samkvæmt til-
nefningu háskólaráðs að undan-
gengnum almennum kosningum í
háskólanum. - sks
Tvö í rektorsframboð HÍ:
Jón og Guðrún
bjóða sig fram
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
SKATTAMÁL Samkvæmt skilyrðum fjármála-
og efnahagsráðuneytisins getur skattrann-
sóknarstjóri ekki skuldbundið ríkissjóð til
greiðslu vegna gagna um Íslendinga í erlend-
um skattaskjólum nema að undangengnu
samþykki fjármála- og efnahagsráðuneytis-
ins.
Á síðasta ári hafði erlendur maður samband
við skattrannsóknarstjóra og sendi sýnishorn
af gögnum um nöfn Íslendinga í erlendum
skattaskjólum. Maðurinn hefur farið fram á
staðgreiðslu í reiðufé fyrir að afhenda gögnin.
Samkvæmt skilyrðum ráðuneytisins kemur
fram að eðlilegt sé að festa kaup á gögnunum
ef þau verða til þess að aðstoða ráðuneytið við
að afla tekna vegna tapaðra skatttekna, þó
með þeim skilyrðum að þóknunin til seljand-
ans nemi ákveðnu hámarkshlutfalli af þeim
tekjum sem hlotist gætu af þeim skattakröf-
um sem af gögnunum leiða. Þetta segir í til-
kynningu fjármála- og efnahagsráðuneytis-
ins.
Að sögn Bryndísar Kristjánsdóttur skatt-
rannsóknarstjóra er heilmikið að gerast í mál-
inu þrátt fyrir að samkomulag við seljanda
hafi ekki náðst en vísar enn fremur í tilkynn-
ingu ráðuneytisins og að stofnun sín geti ekki
skuldbundið ríkissjóð til fjárútláta. - srs
Skattrannsóknarstjóri getur ekki skuldbundið fjármála- og efnahagsráðuneytið til greiðslu úr ríkissjóði:
Vill staðgreiðslu í reiðufé fyrir skattagögn
SKATTRANNSÓKNARSTJÓRI Getur ekki skuldbundið
ráðuneytið.
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
F
2
-A
1
2
8
1
7
F
2
-9
F
E
C
1
7
F
2
-9
E
B
0
1
7
F
2
-9
D
7
4
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
6
4
s
_
5
2
2
0
1
5
C
M
Y
K