Fréttablaðið - 06.02.2015, Page 10

Fréttablaðið - 06.02.2015, Page 10
6. febrúar 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 SJÁVARÚTVEGUR Útgerðarmenn kalla eftir stöðugleika um fisk- veiðistjórnun. Líkt og Fréttablað- ið greindi frá í gær hefur Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ekki enn kynnt frumvarp um fiskveiðistjórn, en ágreiningur er á milli stjórnar- flokkanna um málið. „Við urðum, eins og aðrir, varir við fréttaflutning af þessu og vorum að reyna að hlera málin undir lok síðasta árs. Við bjugg- umst við því að frumvarp yrði lagt fram á haustþingi,“ segir Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Sam- taka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Hann segir sjávarútvegsfyr- irtæki vonast eftir útspili sem komi á stöðugleika fyrir atvinnugrein- ina, sem mikið skorti á. Fyrirtæk- in verði að búa við fyrirsjáanleika. „Þessi staða að kosið verði um þetta á fjögurra ára fresti og reglum um gjaldtöku sé breytt á ársfresti er ekki góð fyrir grein sem krefst eins mikillar fjárfest- ingar og sjávarútvegurinn gerir.“ Hættan sé sú að fyrirtæki haldi að sér höndum þegar kemur að nýfjár- festingum og endurnýjun tækja- kosts, segir Kolbeinn, og vísar til hás aldurs íslenska fiskiskipaflot- ans. Víðtæk sátt markmiðið Sigurður Ingi sagði á þingi í gær að meginmarkmið hans væri að ná víð- tækri sátt. Hann sagði að býsna vel hefði tekist að ræða við ólíka hags- munaaðila um þrjá meginþætti frumvarpsins; að þjóðin sé eigandi auðlindarinnar, að útgerðinni sé tryggður fyrirsjáanleiki til lengri tíma og að veiðigjöldin verði hluti af þeirri þríliðu, eins og ráðherra tók til orða. Hann brýndi þingmenn til dáða. „Það er auðvitað áskorun til okkar stjórnmálamanna, hvort við séum tilbúin til að taka þátt í slíku, að tryggja ákveðinn stöðugleika og fyrirsjáanleika fyrir atvinnugrein, að höggva á þau vandamál sem hafa snúið að því hvað varðar nýtingar- réttinn og að tryggja fyrirsjáanleik- ann hvað varðar veiðigjöldin einnig í rekstri fyrirtækjanna og tekjum almennings af auðlind sinni.“ Engin sátt í sjónmáli Hvað sem vilja ráðherra til sáttar líður er ljóst að sú sátt er fráleitt í sjónmáli. Hvað samráðið varðar segir framkvæmdastjóri SFS sam- tökin sitja og bíða frumvarpsins, en þau hafi ekki fengið að sjá það í heild sinni. „Við höfum séð einhverja hluta af því og höfum fengið að fylgjast með einhverjum þáttum, en það er varla hægt að segja meira en það.“ Kolbeinn segir hins vegar gríðar- lega mikilvægt að ná sátt um málið. Hann vonast því til að hægt verði að samþykkja frumvarp á yfir- standandi þingi. Útgerðarmenn bíða í óvissu Sjávarútvegsfyrirtæki kalla eftir stöðugleika í fiskveiðistjórnunarmálum. Mikilvægast sé þó að samþykkja frumvarp um veiðigjöld. Sjávarútvegsráðherra segir ólíka hagsmuni vera innan stjórnmálaflokka um málið. Stjórnarandstaðan býst við langri umræðu um málið. Í ÖRUGGRI HÖFN Seint verður sagt að sjávarútvegsráðherra sé kominn í var með frumvarp sitt um fiskveiðistjórnun. Óvíst er hvort það verður lagt fram á yfirstandandi þingi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þó oft og tíðum sé rætt um útgerðarmenn sem samstíga hóp, er raunin önnur. Í þeirra röðum ríkja ólík sjónarmið og sumir þeirra telja að ekki þurfi að hrófla mikið við kerfinu. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, er einn þeirra. „Það er ekkert að núverandi kerfi hvað varðar aflahlutdeild og afla- mark. Veiðigjöldin eru komin til að vera. Þjóðin þarf hins vegar að svara því hvort hún sé tilbúin til að taka afleiðingum þess að hafa þau gjöld há. Ef þú ætlar að innheimta há veiðigjöld verðurðu að leyfa sjávarútveg- inum að hagræða, svo hann geti staðið undir þeim háu gjöldum. Það þýðir að sum fyrirtæki, sum samfélög, verða undir. Er samfélagið reiðubúið til þess?“ SEGIR EKKERT AÐ NÚVERANDI KERFI Það er hins vegar engin launung á því að innan stjórn- málaflokkanna, og það kom berlega í ljós þegar ég var að kynna þetta fyrir stjórnarand- stöðunni, og auðvitað samstarfs- flokknum, að þar eru ólíkir hagsmunir. Sigurður Ingi Jónsson, sjávarútvegsráðherra Ráðherra dró þó enga fjöður yfir það að stjórnarflokkarnir væru ekki einhuga um málið. „Það er hins vegar engin laun- ung á því að innan stjórnmála- flokkanna, og það kom berlega í ljós þegar ég var að kynna þetta fyrir stjórnarandstöðunni, og auð- vitað samstarfsflokknum, að þar eru ólíkir hagsmunir. Og ein af ástæðunum fyrir því að málið er ekki komið hér inn ennþá er að við erum að leita eftir víðtækari sátt um að leysa þessi þrjú vandamál, þessi verkefni sem við höfum staðið frammi fyrir, á grundvelli sáttanefndarinnar í framhaldi af því.“ Stjórnarandstaðan eftir Nái stjórnarflokkarnir saman um málið er þó aðeins hálfur sigur unninn. Ljóst er að breytingar á fiskveiðistjórnun eru ekki mál sem stjórnarandstaðan mun láta fara umræðulaust gegnum þingið, svo ekki sé meira sagt. Helgi Hjörv- ar, þingflokksformaður Samfylk- ingarinnar, staðfestir það. „Fisk- urinn í sjónum er stærsta eign okkar Íslendinga. Við tökum varla stærstu ákvörðunina um hana í máli undir lok þings. Slíkar tillög- ur hljóta að koma fram að hausti og fá vandlega umfjöllun, því öllu skiptir, bæði fyrir atvinnugrein- ina og þjóðina, að það sé vandað til verka.“ Helgi er einnig ósáttur við hve lítið samráð ráðherra hafi haft við stjórnarandstöðuna um málið, segir það raunar ekkert hafa verið. „Þess vegna er það eina sem er á borðinu einhliða tillögur LÍÚ um að lögfesta um alla framtíð eign útgerðarmanna á því sem í dag er sameiginleg auðlind okkar. Auðvi- tað erum við í Samfylkingunni and- víg því, en það er líka mikill meiri- hluti þjóðarinnar. Það er í andstöðu við þjóðar- atkvæðagreiðsluna um sameign á auðlindum og erfitt að sjá fyrir sér annað en að um slíkar tillögur yrðu miklar deilur. Sjávarútvegur- inn þarf víðtæka sátt um skipulag sitt og það væri óskynsamlegt að pólitískar deilur sköpuðu óvissu frá einu kjörtímabili til annars um umhverfi hans.“ Veiðigjöldin mikilvægust Ljóst er að ráðherra bíður erfið vinna. Fyrst þarf hann að sætta andstæð sjónarmið milli stjórn- arflokkanna og þá bíður hans umræða á þingi um mál sem flest- allir þingmenn hafa sterkar skoð- anir á. Aðeins eru 38 fundardagar eftir á yfirstandandi þingi og því ljóst að tíminn er knappur. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður atvinnuveganefndar, lagði á það áherslu í Fréttablaðinu í gær að Alþingi næði að minnsta kosti að setja lög um veiðigjöld á yfirstand- andi þingi. Kolbeinn tekur undir að það sé mikilvægt. „Ég held að þetta sé mál sem þurfi töluverða umræðu á þinginu. Þetta varðar mikilvæga hagsmuni fyrir alla. Ef vel er á málum hald- ið ætti þessi tími að duga, en því meiri sem umræðan verður, því betra. Það má ekki afgreiða málið án þess að allir fái að skoða það frá öllum endum og köntum. Ég held að það sé ákaflega mik- ilvægt að fá einhverja lendingu í veiðigjaldamálið eitt og sér. Ef menn ná ekki að klára hitt, verða menn allavega að klára veiðigjöld- in.“ Afdrif endurskoðunar fiskveiði- stjórnunarkerfisins eru því óljós. Því má velta upp hvort einhvern tíma náist víðtæk sátt um jafn mik- ilvægt kerfi. Að kannski sé skásta niðurstaðan sú að allir séu jafn óánægðir og það þurfi einfaldlega að taka ákvörðun. Sigurður Ingi hvatti þingmenn til dáða í gær. „Og ég vona, og er búinn að vera að vona býsna lengi, að það sé möguleiki að taka þetta inn hér til gáfulegrar umræðu og efnislegrar umræðu hér í þinginu, en til þess að það náist víðtæk sátt um málið þá verða allir aðilar að vera tilbúnir að horfa á það sem þeir hafa verið að vinna að um nokkurt skeið og hafa kjark til að þora að ljúka málinu.“ MENNTUN Guðrún Nordal, for- stöðumaður Árnastofnunar, hyggst bjóða sig fram í embætti rektors Háskóla Íslands. Nýr rekt- or verður kjörinn um miðjan apríl. Jón Atli Benediktsson, prófessor við verkfræði- og náttúruvísinda- svið, býður sig einnig fram. Krist- ín Ingólfsdóttir rektor sækist ekki eftir endurkjöri. Ráðherra skipar rektor til fimm ára samkvæmt til- nefningu háskólaráðs að undan- gengnum almennum kosningum í háskólanum. - sks Tvö í rektorsframboð HÍ: Jón og Guðrún bjóða sig fram Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is SKATTAMÁL Samkvæmt skilyrðum fjármála- og efnahagsráðuneytisins getur skattrann- sóknarstjóri ekki skuldbundið ríkissjóð til greiðslu vegna gagna um Íslendinga í erlend- um skattaskjólum nema að undangengnu samþykki fjármála- og efnahagsráðuneytis- ins. Á síðasta ári hafði erlendur maður samband við skattrannsóknarstjóra og sendi sýnishorn af gögnum um nöfn Íslendinga í erlendum skattaskjólum. Maðurinn hefur farið fram á staðgreiðslu í reiðufé fyrir að afhenda gögnin. Samkvæmt skilyrðum ráðuneytisins kemur fram að eðlilegt sé að festa kaup á gögnunum ef þau verða til þess að aðstoða ráðuneytið við að afla tekna vegna tapaðra skatttekna, þó með þeim skilyrðum að þóknunin til seljand- ans nemi ákveðnu hámarkshlutfalli af þeim tekjum sem hlotist gætu af þeim skattakröf- um sem af gögnunum leiða. Þetta segir í til- kynningu fjármála- og efnahagsráðuneytis- ins. Að sögn Bryndísar Kristjánsdóttur skatt- rannsóknarstjóra er heilmikið að gerast í mál- inu þrátt fyrir að samkomulag við seljanda hafi ekki náðst en vísar enn fremur í tilkynn- ingu ráðuneytisins og að stofnun sín geti ekki skuldbundið ríkissjóð til fjárútláta. - srs Skattrannsóknarstjóri getur ekki skuldbundið fjármála- og efnahagsráðuneytið til greiðslu úr ríkissjóði: Vill staðgreiðslu í reiðufé fyrir skattagögn SKATTRANNSÓKNARSTJÓRI Getur ekki skuldbundið ráðuneytið. 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 7 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 F 2 -A 1 2 8 1 7 F 2 -9 F E C 1 7 F 2 -9 E B 0 1 7 F 2 -9 D 7 4 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 6 4 s _ 5 2 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.