Fréttablaðið - 06.02.2015, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 06.02.2015, Blaðsíða 34
8 • LÍFIÐ 6. FEBRÚAR 2015 Í dag hefst sala á Fokk ofbeldi armbandi UN Women. Armband- inu er ætlað að vekja fólk til vit- undar um útbreiddasta mannrétt- indabrot heims í dag: Kynbundið ofbeldi. Fleiri konur deyja eða missa heilsu vegna ofbeldis heldur en vegna malaríu, um- ferðarslysa, HIV og krabbameins hvert ár. Sterk- asta vopnið í bar- áttu gegn ofbeldi gegn konum er að styrkja konur til efnahagslegr- ar og pólitískrar valdeflingar. Hanna Eiríks- dóttir, starfandi fram- kvæmdastýra UN Women á Íslandi, segir samtökin vinna öt- ullega gegn kynbundnu ofbeldi og stuðningur almennings leikur þar stórt hlutverk þar sem samtökin treysta einungis á frjáls framlög. „Allur ágóði armbandanna renn- ur í Styrktarsjóð Sameinuðu þjóð- anna til afnáms ofbeldis gegn konum. Sjóðurinn er sá eini innan Sameinuðu þjóðanna sem vinn- ur eingöngu að því að draga úr og útrýma ofbeldi gegn konum og stúlkum. Sjóðurinn styrkir nú um 80 verkefni í 70 löndum og snert- ir líf milljóna kvenna og fjöl- skyldna þeirra í fátækustu lönd- um heims. Við hjá UN Women trúum því að forvarnir, fræðsla, aðgengi að réttri þjónustu og bætt löggjöf séu skilvirk- ustu leiðirnar til þess að stemma stigu við ofbeldi. Öll verkefni UN Women miða að því að styðja við og veita þolend- um ofbeldis heild- ræna þjónustu með það að mark- miði að þau verði virkir samfélagsþegn- ar á ný. Áhrifin eru því ómælanleg,“ segir Hanna. Fokk ofbeldi herferðin UN Women á Íslandi hefur unnið náið með Kötlu Rós Völudóttur, Ragnari Má Nikulássyni og Sögu Sig ljósmyndara í gegnum tíð- ina. Þau áttu hugmyndina að her- ferðinni og fengu danshöfundinn Siggu Soffíu Níelsdóttur og dans- arana Ásgeir Helga Magnússon og Snædísi Lilju Ingadóttur til að mynda í sameiningu orðin FOKK OFBELDI með líkömum sínum. Armböndin er hægt að nálg- ast í apótekum Lyfju og Heilsu- húsinu. Þá eru allir sem vettlingi geta valdið hvattir til að taka þátt í Milljarður rís 13. febrú- ar næstkomandi þar sem dansað er gegn kynbundnu ofbeldi. Við- burðurinn fer fram víða um land og verður í Hörpu í Reykjavík, í Hofi á Akureyri, á Seyðisfirði og á Ísafirði. Með hækkandi sól er alltaf gaman að huga að því að fara út að hlaupa. Snjórinn fer að bráðna svo það verður auð- veldara að komast leiðar sinn- ar, kuldinn minnkar og sólin er lengur á lofti svo það gefst meiri tími í birtu. Hlaup eru líka til- valin íþrótt til þess að stunda á bjartari árstíðum þar sem maður getur hlaupið hvar og hvenær sem er, svo lengi sem maður er með skóna með sér, og fengið smá frískt loft og sól á kroppinn í leiðinni. Þeir sem stunda hlaupaíþrótt- ina ættu með öllu móti að reyna að stunda styrktaræfingar með hlaupunum til þess að halda líkamanum í góðu jafnvægi. Hlaup, og þá sérstaklega lang- hlaup, reyna mikið á bæði þol og styrk og því er mjög mikilvægt að gleyma ekki að æfa styrk- inn líka, því sterkari vöðvar geta jú hlaupið hraðar, byggt upp fleiri vöðvaþræði og geta jafn- vel hækkað mjólkursýruþrösk- uldinn. Styrktarþjálfunin byggir ekki einungis upp vöðva heldur styrkir hún einnig liðbönd, bein og sinar. Hún minnkar líkurn- ar á álagsmeiðslum sem geta oft fylgt hlaupunum þar sem sömu vöðvarnir eru notaðir aftur og aftur í sömu hreyfingunni. Hættan á áverkum eins og t.d. tognun, sem getur orðið vegna ójafnvægis í vöðvastyrk, minnk- ar einnig við styrktarþjálfun þar sem maður getur styrkt alla vöðvana jafnt. Nanna Árnadóttir íþróttafræðingur FOKK OFBELDI OG FÁÐU ÞÉR ARMBAND UN Women hvetja alla til að fá sér armband og standa saman gegn kynbundnu ofbeldi. Armböndin fást frá og með deginum í dag. UNDIRBÚNINGUR FYRIR ÁTÖKIN Það skiptir miklu máli að undirbúa sig vel áður en rokið er út að hlaupa, ef það er ekki gert er hætta á meiðslum og öðrum leiðindum sem verða til þess að þú hættir að hlaupa. ● Gerðu styrktaræfingar á þeim dögum sem þú hleypur ekki eða á þeim dögum sem þú hleypur stutt. Styrktaræfingar krefjast heilmikill- ar orku sem þarf að nýta til þess að geta gert æfingarnar rétt og með góðri líkamsstöðu. Passaðu þó alltaf að eiga inni einn hvíldardag í viku. ● Ef þú hefur ekki stundað styrktar- æfingar áður byrjaðu þá hægt og notaðu æfingar sem miða að eigin líkamsþyngd. Byrjaðu svo hægt og rólega að bæta við þyngdum og þegar líkaminn hefur vanist æfing- unum, hækkaðu þá þyngdirnar og lyftu frekar þungu. ● Gerðu æfingar sem miða að því að fara í gegnum fleiri en ein liða- mót, þ.e. æfingar sem ættu að hjálpa þér í daglegum athöfnum. Þessar æfingar eru t.d. hnébeygja, réttstöðulyfta, upphífingar, dýfur, armbeygjur, uppstig, framstig, róður og fleira. ● Ekki gleyma kjarnaæfingunum. Kjarnaæfingar, eins og t.d. planki, taka á öllum vöðvunum sem halda líkamanum uppréttum, þ.e. kviðn- um, bakinu, mjöðmum og axla- grind. Góðir kjarnavöðvar eru uppistaðan í því að geta fram- kvæmt styrktaræfingar vel. ● Passaðu að styrkja allan líkamann jafn vel. Rassvöðvarnir þurfa alveg jafn mikla æfingu og lærvöðvarn- ir og brjóstkassinn. Enginn vöðva- hópur má gleymast. ● Að lokum er mikilvægt í öllum styrktaræfingum að teygja vel. Þegar vöðvinn dregst saman, þá styttist hann. Þess vegna er mikilvægt að teygja vel eftir æfingar til þess að halda teygjan- leikanum og lengdinni í vöðvun- um svo þeir verði ekki stífir og það skapist ekki ójafnvægi í vöðvum sem getur leitt til ósamræmis í líkamsstöðu. HÉR ERU NOKKUR GÓÐ RÁÐ VIÐ STYRKTARÞJÁLFUN FYRIR HLAUPARA. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 F 1 -1 1 3 8 1 7 F 1 -0 F F C 1 7 F 1 -0 E C 0 1 7 F 1 -0 D 8 4 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 6 4 s _ 5 2 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.