Fréttablaðið - 06.02.2015, Blaðsíða 24
6. febrúar 2015 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 24TÍMAMÓT
Elsku besti faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
HELGI ÓLAFUR ÞÓRARINSSON
læknir,
lést á heimili sínu í Kongsvinger 18. des-
em ber. Minningarathöfn verður haldin í
Árbæjar kirkju 9. febrúar kl. 13.00. Blóm og
kransar vinsamlegast afþökkuð en þeir sem
vildu minnast hins látna láti Einstök börn njóta þess.
Pétur Haukur Helgason Magdalena L. Gestsdóttir
Helena Helgadóttir Þorlákur Ingjaldsson
Helga Björk Helgadóttir Martin Hammer
Gunnar Þór Helgason Jenny Marie Ellingsæter
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JÓHANNA ANDREA LÚÐVÍGSDÓTTIR
áður til heimilis að Furugrund 71,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni þann
21. janúar. Útförin var haldin í kyrrþey þann
29. janúar, að ósk hinnar látnu.
Þökkum sýndan samhug.
Herdís Sveinsdóttir
Sveinn Andri Sveinsson
Katla Margrét Þorgeirsdóttir Jón Ragnar Jónsson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
KATRÍN R. MAGNÚSDÓTTIR
Hjúkrunarheimilinu Mörk,
áður til heimilis að Lynghaga 10,
Reykjavík,
andaðist 4. febrúar sl. Útför hennar fer fram
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
11. febrúar kl. 15.00.
Jón M. Björgvinsson Signý Guðmundsdóttir
Grétar Ó. Guðmundsson Erla S. Kristjánsdóttir
Inga Hanna Guðmundsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær móðir mín, systir okkar,
mágkona og frænka,
INGA MARÍA INGÓLFSDÓTTIR
Dalsgerði 4d,
Akureyri,
lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hlíð
föstudaginn 30. janúar sl. Útförin fer fram
frá Akureyrarkirkju 13. febrúar kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Heimahlynningu á
Akureyri.
Hörður Ingi Stefánsson
Bragi Ingólfsson
Sveinn Ingólfsson Ingibjörg Jóhannesdóttir
Anna Ingólfsdóttir Guðmundur Ómar Guðmundsson
systkinabörn og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
SIGRÚNAR MAGNÚSDÓTTUR
frá Hrauni, Grindavík,
Melgerði 21, Kópavogi.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjartadeildar
LSH fyrir góða umönnun og hlýlegt viðmót.
Sigurliði Guðmundsson Ríkey Guðmundsdóttir
Katrín Guðmundsdóttir
Anna Þórdís Guðmundsdóttir Jón Steinar Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru
GUÐRÚNAR ÓLAFSDÓTTUR – DÚNU
Básbryggju 5, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á
hjúkrunarheimilinu Skjóli, 5. hæð.
Gunnar Oddsson
Sif Gunnarsdóttir William A. Burhans jr.
Oddur Gunnarsson Guðný Kristín Erlingsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ODDNÝ E. THORSTEINSSON
áður til heimilis að Eiðistorgi 7, Seltjarnar-
nesi, lést miðvikudaginn 4. febrúar sl. á
hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Útför hennar
verður auglýst síðar.
Pétur G. Thorsteinsson Birna Hreiðarsdóttir
Björgólfur Thorsteinsson Elsa Guðmundsdóttir
Eiríkur Thorsteinsson Valborg Þ. Snævarr
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær kona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
RANNVEIG TRYGGVADÓTTIR
Hringbraut 50,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu, Grund, fimmtudaginn
5. febrúar. Útförin verður auglýst síðar.
Örnólfur Thorlacius
Valgeir Hallvarðsson Aðalbjörg Kristinsdóttir
Eva Hallvarðsdóttir Ásgeir Valdimarsson
Herdís Hallvarðsdóttir Gísli Helgason
Rannveig Hallvarðsdóttir Jóhannes Karl Jia
Tryggvi Hallvarðsson Þuríður Vilhjálmsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs
eiginmanns, föður, afa og langafa,
JÓNS GUÐMUNDSSONAR
frá Kleifastöðum.
Guðlaug Kristbjörnsdóttir
Valgerður Kristbjörg Jónsdóttir Sigurjón Karlsson
Margrét Jóna Jónsdóttir Ingi Þór Þorgrímsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Dagur íslensks prentiðnaðar er hald-
inn í fyrsta skipti í dag. Að baki honum
standa Félag bókagerðarmanna, Sam-
tök iðnaðarins og Iðan fræðslusetur.
„Við reynum að höfða til þeirra sem
starfa í prentiðnaðinum og prenttengd-
um greinum,“ segir Georg Páll Skúla-
son, formaður Félags íslenska bóka-
gerðarmanna.
Dagskráin fer fram í húsi Iðu í
Vatnagörðum 20. Á milli klukkan 15
og 18 verður boðið upp á nítján stutta
fyrirlestra þar sem kennir ýmissa
grasa.
Hægt er að sækja fyrirlestur um
WordPress-vefi, hvernig skal gera
smáforrit á tuttugu mínútum, læra á
tæknina bakvið UV-prentun og fjallað
verður um hvað sé heitt í hönnun. Að
fyrirlestrum loknum verður boðið upp
á léttar veitingar, lifandi tónlist og
skemmtidagskrá frá uppistandaranum
Ara Eldjárn.
„Þetta er í fyrsta skipti sem við höld-
um þennan dag með þessu nafni,“ segir
Georg en áður hefur verið boðið upp
á svokallaða Prentmessu. Georg telur
líklegt að ef vel tekst til verði unnið að
því að gera hann að árlegum viðburði.
Hann segir að bransinn telji um 800
manns og hann vonar að um fjórðung-
ur þeirra mæti.
„Við höfum rætt við fyrirtækin um
að veita sveigjanleika til að gefa starfs-
fólki möguleika á að mæta og það er
vonandi að sem flestir geri það.“
Umhverfið tengt prentmiðlum hefur
tekið miklum breytingum með nýrri
tækni. Georg segir það vera í stöðugri
mótun.
„Prentiðnaðurinn og grafíkin flæðir
með nýjustu tækni. Við reynum að
eyrnamerkja þetta sem minnst og opna
þetta helst upp á gátt.“
Hann bendir á að margir miðl-
ar komi sínu efni frá sér samtímis á
prenti og vef. Í því felst mikið samspil
og framtíðin liggur þar.
„Í breytingunum liggja tækifærin
og prentið mun aðlagast þeim. Það
hefur það gert og mun halda áfram að
gera. Þetta er alls ekki fyrsta og alls
ekki síðasta byltingin sem prentheim-
urinn mun ganga í gegnum,“ segir
Georg. johannoli@frettabladid.is
Dagur prentiðnaðar
haldinn í fyrsta sinn
Félag bókagerðarmanna, Samtök iðnaðarins og Iðan fræðslusetur standa að degi
prentiðnarins í sameiningu. Fjöldi viðburða er í boði fyrir þá sem hafa áhuga.
FORMAÐUR Georg Páll Skúlason fer fyrir Félagi bókagerðarmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í breytingunum liggja
tækifærin og prentið mun
aðlagast þeim. Það hefur
það gert og mun halda
áfram að gera.
MERKISATBURÐIR
1649 Hollenski landkönnuðurinn Abel Tasman finnur Fíjí-eyjar.
1819 Sir Thomas Stamford Raffles stofnar Singapúr.
1826 Stórbruni á Möðruvöllum í Hörgárdal.
1833 Otto verður fyrsti konungur Grikkja.
1918 Breskar konur, þrítugar og eldri, fá kosningarétt.
1958 Flugvél með liðsmenn Man. Utd hrapar í München.
1988 Fjölbrautaskóli Vesturlands Akranesi er stofnaður
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
F
3
-1
C
9
8
1
7
F
3
-1
B
5
C
1
7
F
3
-1
A
2
0
1
7
F
3
-1
8
E
4
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
0
6
4
s
_
5
2
2
0
1
5
C
M
Y
K