Fréttablaðið - 06.02.2015, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 06.02.2015, Blaðsíða 8
6. febrúar 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTAVIÐTAL | 8 „Þessi bið er svo erfið. Að vita ekki hvað verður. Hvort við fáum að vera hér eins og okkur langar. Hvort börnin mín eigi örugga framtíð,“ segir hælisleitandinn Feriane Amrouni. Hún sótti um hæli hér á landi 5. febrúar 2013. Hún kom til landsins frá heimalandi sínu, Alsír, með millilendingu í Frakklandi. Með henni í för voru tvö börn hennar, fædd 2008 og 2012, en auk þess var hún komin um þrjá mánuði á leið með þriðja barn sitt. Í Frakklandi fékk hún Schengen C-áritun inn á Schengen-svæðið sem var útgefin af frönskum yfirvöldum. Síðan þá hefur hún beðið svara um það hvort hún fái hæli hér- lendis. Í júní 2013 tók Útlendingastofnun þá ákvörðun að hún skyldi send til Frakklands aftur ásamt börnum sínum. Sú ákvörðun var kærð samdægurs til innanríkisráðuneytis- ins. Síðan þá hafa ekki borist nein svör fyrir utan að innanríkisráðuneytið sendi henni bréf 15. janúar síðastliðinn þar sem kom fram að kærunefnd útlendingamála sem tók við mála- flokknum í janúar væri með málið til með- ferðar. Hún hefur því beðið í tvö ár í óvissu um það hvort hún megi setjast að hér á landi með börn sín þrjú. Á þeim tíma hafa þau búið í Keflavík. Eldri börnin eru í skóla og leik- skóla og eru farin að tala íslensku. „Ég er hrædd um að verða send úr landi. Mig langar ekki að búa í Frakklandi, aðstæð- ur hælisleitenda þar eru ekki góðar. Þeir búa margir á götunni þar og ég þarf að tryggja öryggi barnanna minna,“ segir Feriane þar sem hún er stödd á skrifstofu lögfræðings síns, Leifs Runólfssonar. Með henni í för er yngsta dóttir hennar og annar hælisleitandi, Adam Pasha, sem túlkar fyrir hana þar sem hún talar ekki nógu góða ensku né íslensku. Feriane segist hafa búið við ofríki eigin- manns síns í Alsír. Hann hafi verið öfgatrúar- maður og viljað að hún klæddist búrku og héldi sig inni á heimilinu. Áður en hún eign- aðist börn starfaði hún sem blaðamaður og langaði að fara að vinna aftur úti en maður- inn hennar hafi ekki viljað það. „Við bjuggum við slæmar aðstæður. Ég átti bara að vera heima og mátti ekki fara út án samþykkis hans. Ég hefði ekki getað beðið um skilnað því að í Alsír þá fær maðurinn börnin við skilnaðinn. Þá hefði ég bara endað á götunni og ekki fengið að vera með börnunum mínum. Ástandið þarna er slæmt og mig langaði að búa á öruggum stað með börnin mín. Maður- inn minn vildi ekki fara til Íslands en ég seldi allt sem ég átti til þess að koma hingað.“ Hún flaug með eldri börnin tvö til Frakk- lands og þaðan til Íslands. Hún sótti strax um hæli hérlendis en nokkrum mánuð- um síðar kom úrskurður um að senda ætti umsóknir hennar um hæli til Frakklands. Síðan þá hefur ekkert gerst í hennar málum. „Okkur líður vel á Íslandi. Elsta barnið er í skóla og miðbarnið í leikskóla. Þau tala íslensku og hér langar okkur að vera. Við erum búin að kynnast góðu fólki. Mig langar að fara að vinna, það er meira að segja tvisv- ar búið að bjóða mér vinnu en ég hef ekki getað tekið henni því ég má ekki vinna meðan staðan er svona,“ segir hún. „Mig dreymir um að fara í háskólanám hér og læra sál- fræði. Fá að búa börnunum mínum örugga framtíð hér.“ Eiginmaður Feriane kom hingað til lands í fyrra til þess að reyna að fá hana aftur með sér út. Hann var hér á landi í tvo mánuði og fór þá aftur til Alsírs. „Ég vil ekki fara til baka. Ég get átt á hættu að verða sett í fang- elsi og að börnin verði tekin af mér. Ég get ekki hugsað það til enda. Ég bið um miskunn stjórnvalda um að við fáum einhver svör og fáum að vera hér,“ segir hún alvarleg. Feriane er með gilda pappíra og vegabréf en vegna þess að hún kom fyrst til Frakk- lands eiga yfirvöld þar að fjalla um mál hennar. „Það eru samt undanþágur í Dyflinn- arsamningnum sem segja til dæmis að það megi ekki senda fólk þangað sem það er ekki öruggt. Hún er með þrjú börn og eitt fætt hér. Hún óttast það að fara til Frakklands og vill ekki búa þar,“ segir Leifur Runólfsson lög- fræðingur hennar. Aðspurður hvers vegna hann haldi að mál hennar hafi tafist svo lengi segir hann það vera sinnuleysi stjórnvalda gagnvart þessum málaflokki. „Innanríkis- ráðuneytið hefur verið afskaplega hægfara í þessum málum. Það er ekkert sem bendir til annars en að hún sé að segja sannleikann og hafi alltaf gert það,“ segir Leifur og bend- ir á að samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni eigi hún að fara þangað sem hún fékk áritun. Það séu hins vegar undantekningarákvæði í reglugerðinni þar sem meðal annars kemur fram að ekki megi senda fólk þangað sem það sé ekki öruggt og tryggja þurfi öryggi barna. Leifur fer með mál fleiri hælisleitenda og hafa sumir þeirra beðið eftir svörum álíka lengi og Feriane, einn í þrjú ár. Óttast um öryggi barnanna sinna Feriane Amrouni kom til Íslands fyrir tveimur árum sem hælisleitandi. Hún segist hafa flúið ofríki eiginmanns síns og slæmar aðstæður í heimalandinu. Með henni í för voru tvö börn hennar auk þess sem hún var ólétt að því þriðja. Yngsta barnið fæddist á Íslandi fyrir 17 mánuðum en stjórnvöld hafa enn ekki gefið henni svör um það hvort hún fái hæli hérlendis. TVÖ ÁR Í BIÐ Feriane hefur beðið í tvö ár eftir svörum frá stjórnvöldum um hvort hún og börnin hennar fái að búa hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI VILL TRYGGJA ÖRYGGI Feriane segist hafa flúið til að tryggja öryggi barna sinna. Hér er hún ásamt vini sínum, Adam, sem er einnig hælisleitandi og sá um að túlka fyrir hana, yngsta barni sínu, sem fæddist hér á landi í ágúst 2013, og lögmanni sínum, Leifi Runólfssyni. FRÉTTA- BLAÐIÐ/VALLI Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 7 F B 0 6 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 F 2 -C 8 A 8 1 7 F 2 -C 7 6 C 1 7 F 2 -C 6 3 0 1 7 F 2 -C 4 F 4 2 8 0 X 4 0 0 7 B F B 0 6 4 s _ 5 2 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.