Fréttablaðið - 06.02.2015, Page 32
6 • LÍFIÐ 6. FEBRÚAR 2015
H
ún er björt og falleg
á að líta, konan sem
sest fyrir framan mig
á kaffihúsinu á Kjar-
valsstöðum. Það vott-
ar ekki fyrir óöryggi hjá þessari
konu og ég finn strax að mér líkar
við þessa yfirveguðu nærveru sem
hún ber með sér. Samtal okkar
byrjar á kurteisishjali og ég skynja
að þarna er á ferðinni yfirburða-
greind kona sem fer óskaplega vel
með íslenska tungu þrátt fyrir að
hafa verið alin upp í ferðatösku,
heimshorna á milli. „Ég var búin
að flytja ellefu sinnum þegar ég
var fimmtán ára og fékk alþjóðlegt
uppeldi. Pabbi minn er skurðlækn-
ir og títt með lækna að þeir sæki
sér menntun erlendis. Við fluttum
til New Hampshire í Bandaríkj-
unum og svo til Helsingborg í Sví-
þjóð og aftur heim í stutta stund
áður en að við fluttum aftur til Sví-
þjóðar. Þar bjuggum við í fjögur
ár í innflytjendahverfi í Malmö og
þá sá ég fullt af félagslegu misrétti
undir nefinu á mér. Vinkona mín er
ættleidd frá Indlandi og lenti hún í
miklum rasisma á þessum tíma og
einnig einstaklingar í mínum bekk
sem tilheyrðu strangtrúuðum fjöl-
skyldum og voru jafnvel gefnir
öðrum í hjónaband ungir að árum.
Þetta hefði ég síður séð hérna á Ís-
landi og hefur vafalaust átt þátt
í því að móta mig,“ segir Þórdís
Elva sem án efa hefur verið svo-
lítið skondinn krakki, hugmynda-
rík og með sterka réttlætiskennd.
„Réttlætiskenndin hefur alltaf
fylgt mér, ég man eftir því að hafa
skrifað Vigdísi Finnbogadóttur, þá-
verandi forseta, opið bréf um um-
hverfismál þegar ég var tíu ára og
svo tók ég að mér að sjá um bætta
umhverfisvitund jafnaldra minna,
safnaði fyrir regnskógunum og
rak ánamaðkasjúkrahús á tímabili
þar sem ég gerði út krakka í hverf-
inu til þess að bjarga ánamöðkum
sem villst höfðu af leið,“ segir Þór-
dís Elva með bros á vör.
„Ber það sem eftir er“
Þórdís Elva stendur fyrir þarfri
fræðsluherferð í samstarfi við
fjarskiptafyrirtækið Vodafone sem
ber nafnið „Ber það sem eftir er“
en þar fer hún yfir málefni sem
varða samskipti ungs fólks á net-
inu sem og í símanum. „Þetta er
átak sem kennir foreldrum hnút-
ana. Það vill verða kynslóðagjá í
þessum efnum og foreldrar eiga
erfitt með að fylgjast með hvað
er í tísku og þess háttar. Krakk-
ar eru löngu hættir á Facebook því
þar eru foreldrarnir sjálfir, afi,
amma og kennarar krakkanna.
Þau hafa þau fært sig yfir á aðra
miðla eins og Instagram, Tumblr
og Vine,“ segir Þórdís. Fyrir þá
sem vita ekki hvað Vine er þá er
það eins konar opin myndbanda-
veita þar sem notendur geta sett
inn myndband af sínum hugðar-
efnum. Þess er skemmst að minn-
ast þegar Vine-stjarnan Jerome
Jarre kom til Íslands og unglingar
þessa lands þyrptust í þúsunda tali
í Smáralindina til að berja hann
augum. Átroðningurinn var það
mikill að hættuástand skapaðist.
„Á þessu tímabili höfðu fáir yfir
tvítugu nokkurn tímann heyrt um
Vine,“ segir Þórdís.
Á fyrirlestrunum gefur Þórdís
Elva foreldrum innsýn í þennan
nýja heim og hvernig megi bregð-
ast við á réttan hátt þegar erfið
mál koma upp. „Þessi fræðsluher-
ferð gengur svolítið út á að brúa
bilið á milli kynslóðanna og búa
til skilning. Þegar koma upp erfið
mál eins og hefndarklám, þar sem
verið er að dreifa nektarmyndum
án samþykkis einstaklinga, getur
það haft gríðarlega neikvæðar af-
leiðingar fyrir félagslega stöðu og
framtíðarmöguleika þolandans.
Þegar svona erfið mál hafa komið
upp þá hefur skort töluvert upp á
að krökkum finnist þeir geta leit-
að til fullorðinna og þar af leiðandi
einangrast þeir í eigin heimi með
þessi mál. Þegar verst lætur finnst
þeim sjálfsvíg vera eina lausnin.“
Áður en internetið og almenn
farsímaeign kom til sögunnar var
rómantískum áhuga komið á fram-
færi með öðrum hætti. Í sumum
tilfellum voru vinirnir fengnir til
að bera skilaboðin áfram, hringt í
heimasíma viðkomandi og í flest-
um tilfellum lauk hringingunni
áður en svarað var. Já, ástin var
öðruvísi í gamla daga. „Núna eru
boðleiðirnar svo allt öðruvísi,
sumum finnst auðveldara að senda
sms en að treysta vinkonu til að
ganga á milli með þennan róman-
tíska áhuga. Ég held að í botninn
og grunninn séu alveg skiljanlegar
og mannlegar hvatir á baki hluta
eins og „sexting“. Það er eðlilegt
og skiljanlegt að krakkar standi
í þessu en hins vegar held ég að
margir geri sér ekki grein fyrir
hvað það er mikil áhætta sem felst
í þessum samskiptum, enda sýna
rannsóknir að allt að 25% þeirra
sem fá send sexting-boð áfram-
senda þau á þriðja aðila.“
Trúverðugar heilaslettur
Þórdís Elva er mörgum hæfileik-
um gædd bæði á riti og ræðu. Í dag
er hún boðberi betri samskipta og
vinnur að bættu samfélagi en upp-
runalega leitaði hugur okkar konu
í leikhúsheiminn og sótti hún nám í
þeim geira til Georgíu í Bandaríkj-
unum. „Ég hef alltaf verið afburða-
nemandi og fékk styrk til náms í
skóla sem heitir UGA og er einn
stærsti opinberi háskólinn í Suður-
ríkjunum en í honum voru 33.000
nemendur. Maður er svo vanur fá-
menninu hérna á Íslandi þann-
ig að þetta voru mikil viðbrigði.“
Að námi loknu kom Þórdís heim
og tók þátt í nokkrum uppsetning-
um í leikhúsi sem og í sjónvarpi.
Glöggir muna kannski eftir henni
úr dönsku sjónvarpsþáttaröðinni
Erninum sem sýnd var á Íslandi
við góðar móttökur. „Ég var reynd-
ar skotin í höfuðið í þeirri seríu.
Móðir mín átti mjög erfitt með að
horfa upp á barnið sitt skotið en
Friðrika Hjördís
Geirsdóttir
Umsjónarkona Lífsins | rikka@365.isUPPLÝST
SAMFÉLAG
STERKASTA
VOPNIÐ
Þórdís Elva fékk sterka réttlætiskennd í vöggugjöf
og lætur ekki sitt eftir liggja í uppbyggingu betra
samfélags með hugsjón og ástríðu að vopni.
„Það er eðlilegt og
skiljanlegt að krakkar standi
í þessu en hins vegar held
ég að margir geri sér ekki
grein fyrir hvað það er mikil
áhætta sem felst í þessum
samskiptum.“
Plokkfiskur
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
F
0
-D
F
D
8
1
7
F
0
-D
E
9
C
1
7
F
0
-D
D
6
0
1
7
F
0
-D
C
2
4
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
6
4
s
_
5
2
2
0
1
5
C
M
Y
K