Fréttablaðið - 06.02.2015, Page 37

Fréttablaðið - 06.02.2015, Page 37
LÍFIÐ 6. FEBRÚAR 2015 • 11 AUGLÝSING: ICECARE KYNNIR BETRI AF BLÖÐRUBÓLGUNNI ICECARE KYNNIR Bio-Kult Pro Cyan er háþróuð þrívirk formúla sem tryggir heilbrigða þvagrás. Guðlaug Jóna Matthíasdóttir hefur fengið endurteknar þvagfærasýkingar en er nú betri eftir að hún fór að taka Bio-Kult Pro Cyan. Þvagfærasýking er algengt vandamál og mun algengari hjá konum en körlum og er helsta ástæða þess að styttri leið er upp í þvagrás kvenna. Algengt er að sýkingin sé af völdum E. coli-bakteríunnar. Ein af hverjum þremur konum hefur þjáðst af þvagfæra- sýkingu fyrir 24 ára aldur og að minnsta kosti helmingur allra kvenna fær þvagfærasýkingu einu sinni á ævinni. Fjórðungur þeirra fær endurteknar sýkingar. Guðlaug Jóna Matthíasdóttir er ein þeirra. „Ég hef verið með króníska blöðrubólgu í rúmlega tvö ár og hefur það valdið mér mikilli vanlíðan og óþægindum. Ég gat til dæmis aldrei farið í heitan pott eða verið úti í miklu frosti því það olli mér strax mikilli vanlíðan. Þar sem ég stunda hestamennsku og þarf oft að vera á ferðinni í vinnu þá var þetta mjög óþægilegt og haml- andi fyrir mig. Læknarnir vildu setja mig á sýklalyfjakúr í tólf mán- uði en ég var ekki alveg tilbúin til þess. Því ákvað ég að prófa Bio-Kult Pro Cyan þegar ég sá umfjöllun um það í blöðunum. Ég fann fljótlega að það virkaði mjög vel gegn blöðrubólgunni. Í fyrstu tók ég bara eitt hylki á dag, eða þegar ég fann að ég fékk einkenni, en núna tek ég tvö hylki um leið og ég finn fyrir óþægindum og stundum nokkrum sinnum yfir daginn þegar ég er verst.“ Tryggir heilbrigða þvagrás Orsakir þvagfærasýkingar eru nokkr- ar, meðal annars utanaðkomandi áhrif á þarmaflóruna, breyttur lífsstíll, aukið stress, ýmsir sjúkdómar og aukin lyfja- notkun. Einkenni sýkingarinnar eru meðal annars tíð þvaglát, aukin þörf fyrir þvaglát án þess að kasta af sér þvagi, verkir við þvaglát og óeðlileg lykt og litur á þvaginu. Trönuber hafa löngum verið þekkt fyrir að virka vel sem fyrir- byggjandi meðhöndlun gegn þvagfæra- sýkingum. Trönuber hindra að E. coli- bakterían nái fótfestu við slímhúð þvag- rásar. Þau drepa ekki bakteríuna heldur skolast hún út með þvaginu. Bio-Kult Pro Cyan er háþróuð þrívirk formúla sem tryggir heilbrigða þvag- rás. Hylkin innihalda trönuberja-ex- trakt, vinveitta gerla og A-vítamín. Hlut- verk A-vítamíns og vinveittu gerlanna er að hjálpa líkamanum að viðhalda eðli- legri bakteríu flóru í þörmum og einn- ig að viðhalda eðlilegri starfsemi í þvag- rásarkerfinu. BIO-KULT PRO CYAN Hylkin innihalda trönuberja-ex- trakt, vinveitta gerla og A- vítamín. Ég er 65 ára og undanfarin ár hef ég þurft að hafa þvaglát allt að þrisvar á nóttu. Þetta hvim- leiða vandamál var alltaf að ágerast, það olli mér vanlíðan og ég náði ekki að hvílast eins og ég þurfti,“ segir Finnur Eiríksson. „Eftir að ég fór að taka inn Brizo-hylk- in hefur líðan mín gjörbreyst. Ég þarf miklu sjaldnar að vakna á nóttunni og er því út- hvíldur að morgni. Sviðinn sem einnig angr- aði mig er nánast horfinn. Ég mæli hiklaust með Brizo fyrir karlmenn á mínum aldri sem eiga við þetta vandamál að etja,“ segir Finn- ur. Virkar vel Skúli Sigurðsson tekur í sama streng. „Ég hef notað Brizo í nokkra mánuði og er ánægður með hversu vel það virkar á mig. Ég er 66 ára og var farinn að finna fyrir því að ég þurfti að kasta oft af mér þvagi og náði sjaldnast að tæma blöðr- una. Mér fannst þetta mjög óþægilegt. Samt vildi ég ekki nota lyf, frekar eitthvað náttúrulegt. Mér bauðst fyrir nokkrum mán- uðum að prófa einn mánuð af Brizo og fann strax að það létti á þrýstingi á þvagrásina. Nú hef ég notað Brizo í nokkra mánuði sam- fleytt og er mjög ánægður með hvernig mér líður af því. Ég hef fulla trú á svona náttúru legum lausnum í staðinn fyrir lyf,“ segir Skúli. VAKNA ÚTSOFINN OG VEL HVÍLDUR Brizo er fæðubótarefni sem er ætlað að létta á óþægilegum einkennum frá neðri þvagfærum vegna stækkunar á blöðruhálskirtli, sem er algengur fylgikvilli þegar karlmenn eldast og kallast góðkynja stækkun á blöðruhálskirtli. ÁNÆGÐUR Skúli Sigurðsson er ánægður með hvað Brizo virkar vel. BETRI LÍÐAN Finnur Eiríksson hefur sofið miklu betur eftir að hann fór að taka Brizo. ÓÞÆGILEGT Þegar menn eldast geta þeir fundið fyrir óþægilegum einkennum frá neðri þvagfærum. VIRKAR VEL Guðlaug Jóna tekur Bio-Kult Pro Cyan þegar hún finnur fyrir einkennum þvagfærasýkingar og virkar það vel. MYND/GVA SÖLUSTAÐIR OG UPPLÝSINGAR Vörurnar eru fáanlegar í öllum apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu IceCare, www.icecare.is. 2 8 -1 2 -2 0 1 5 0 0 :5 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 F 2 -4 D 3 8 1 7 F 2 -4 B F C 1 7 F 2 -4 A C 0 1 7 F 2 -4 9 8 4 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 6 4 s _ 5 2 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.