Fréttablaðið - 06.02.2015, Page 58
6. febrúar 2015 FÖSTUDAGUR| SPORT | 42
Spretthlauparinn Hrafnhild Eir R. Hermóðsdóttir og langstökkvarinn Þor-
steinn Ingvarsson fögnuðu bæði sigri í sínum greinum á Stórmóti ÍR um
síðustu helgi og tryggðu sér einnig bæði þátttökurétt á Nordic Challenge
sem fer fram í Bærum í Noregi 14. febrúar næstkomandi.
Þau toppuðu bæði á sama tíma því Hrafnhild var aðeins tveimur
sekúndubrotum frá Íslandsmetinu í 60 metra hlaupi í sínu besta hlaupi á
ferlinum og Þorsteinn bætti sinn besta árangur í langstökki á árinu með
því að stökkva 7,33 metra.
Hrafnhild og Þorsteinn eru kærustupar og það var því örugglega mjög
góð stemning á heimilinu eftir árangurinn um síðustu helgi.
„Það er gaman að geta verið í þessu saman en við náum yfirleitt ekki að
fylgjast með hvort öðru þegar við erum að keppa því þá erum við sjálf að
keppa,“ segir Hrafnhild. Þau æfa vanalega á sama tíma eftir að Þorsteinn
kom yfir í ÍR fyrir stuttu.
Góð helgi fyrir kærustuparið
FRJÁLSAR Það munar tæpri hálfri
öld á yngsta og elsta keppendanum
á Meistaramóti Íslands í frjáls-
um íþróttum sem fer fram í nýju
frjálsíþróttahúsi í Kaplakrika í
Hafnarfirði um helgina.
Blikinn Kristján Gissurarson
hefur skráð sig í stangarstökk
karla en hann er fæddur árið 1953
og fagnar því 62 ára afmæli sínu í
júní næstkomandi.
Kristján Gissurarson hefur
verið að keppa á stórmótum öld-
unga undanfarin ár og á meðal
annars Norðurlandamótið í flokki
55 til 59 ára sem er stökk upp á
4,11 metra.
Yngstu keppendurnir eru ÍR-
stelpurnar Guðbjörg Jóna Bjarna-
dóttir og Helga Margrét Haralds-
dóttir sem eru báðar fæddar árið
2001 sem þýðir að þær eru 48
árum yngri en Kristján.
Fríða Rún Þórðardóttir í ÍR er
elsta konan en hún verður 45 ára
um næstu helgi. Fríða Rún tekur
þátt í tveimur greinum á mótinu,
1500 metra hlaupi og 3000 metra
hlaupi.
Aðrir keppendur sem hafa skráð
sig til leiks og eru komnir á fimm-
tugsaldurinn eru Ólafur Guð-
mundsson úr HSK (45 ára), Eva
Skarpaas Einarsdóttir úr ÍR (43),
Ágúst Bergur Kárason úr UFA
(42) og Hörður Jóhann Halldórs-
son úr FH (40).
Mótið um helgina er fyrsta
Meistaramótið sem fer fram í
nýrri frjálsíþróttahöll FH-inga.
Mikill fjöldi keppenda er skráður
á mótið og þar á meðal allt okkar
besta íþróttafólk. FH-ingar búast
við góðum árangri við þessa glæ-
nýju keppniaðstöðu. „Búast má
bæði við metum og bætingum um
helgina og ekki ólíklegt miðað við
framfarir síðustu móta, að Íslands-
met falli,“ segir í frétt um mótið á
frjálsíþróttasíðu FH-inga. - óój
Er 48 árum eldri en
þær yngstu á mótinu
Kristján Gissurarson keppir í stangarstökki karla.
ENN AÐ KEPPA Stangarstökkvarinn
Kristján Gissurarson hefur verið að í
marga áraugi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Eins árs afmælis þáttur
Tetriz er mánaðarlegur old school
hip-hop þáttur í umsjá benna b ruff.
Fyrsta föstudag hvers mánaðar
klukkan 12:00
FRJÁLSAR ÍR-ingurinn Hrafnhild Eir R. Her-
móðsdóttir kom í mark á 7,56 sekúndum í
60 metra hlaupi á Stórmóti ÍR um síðustu
helgi og er farin að ógna verulega 19 ára
Íslandsmeti Geirlaugar B. Geirlaugsdóttur.
Hrafnhild bætti sig þarna verulega og er nú
orðin önnur fljótasta íslenska konan í þess-
ari grein frá upphafi.
„Það er alltaf gaman að ná góðu hlaupi og
það hefur verið markmiðið lengi að komast
nálægt þessu Íslandsmeti,“ segir Hrafnhild
Eir sem vann Hafdísi Sigurðar dóttur eftir
spennandi hlaup.
Hefur keppt lengi við Hafdísi
„Við Hafdís erum góðar vinkonur og búnar
að keppa lengi hvor við aðra eða bara síðan
ég byrjaði í frjálsum. Sigurinn er alltaf
sætur og þá sérstaklega þegar maður eru að
keppa á móti svona góðum andstæðingi því
þá er þetta ennþá sætara,“ segir Hrafnhild.
Það er líka stutt á milli móta þessa dag-
ana og um komandi helgi fer Meistaramót
Íslands fram í Kaplakrika. „Takmarkið er
bara að gera enn betur en um síðustu helgi.
Draumurinn er að komast á EM,“ segir
Hrafnhild en lágmarkið inn á EM er 7,55
sekúndur. Mmet Geirlaugar er 7,54 sek.
„Á ég ekki bara setja stefnuna á það að ná
þessu hvoru tveggja. Það væri gaman. Að
sjálfsögðu verður maður að láta sig dreyma
og setja sér markmið ef maður ætlar að ná
eitthvað langt. Ég hef sett mér það markmið
að stefna á það og leyfi mér að dreyma um
það,“ segir Hrafnhild.
Hrafnhild og Hafdís munu berjast um
gullið í 60 metra hlaupinu og 200 metra
hlaupinu um helgina og það verður ekki í
fyrsta sinn. „Við höfum oftar en einu sinni
verið herbergisfélagar í landsliðsferðum.
Ég held að við séum alveg að toga hvor
aðra áfram. Við vitum hvor af annarri og
þá verður keppnin meiri og betri árangur
kemur fyrir vikið,“ segir Hrafnhild.
Hrafnhild kom frekar seint inn í frjáls-
íþróttirnar á sínum tíma. „Ég æfði hand-
bolta í sjö ár eða alveg þangað til að ég varð
sautján ára. Ég hætti þá í handboltanum og
besta vinkona mín var að æfa frjálsar. Ég
ákvað að skella mér á æfingu og þá varð
ekki aftur snúið,“ segir Hrafnhild sem var
væntanlega öflug í hraðaupphlaupunum í
handboltanum. „Ég átti nokkur góð hraða-
upphlaup á sínum tíma,“ segir hún.
Spyr bara kærastann
Hún viðurkennir að hún viti ekki mikið um
frjálsar og að hún sé ekki með sína tíma á
hreinu. Næsta æfing og næsta hlaup skipti
mestu máli. „Oft þegar ég er spurð um
hvaða tíma ég á best í hlaupum þá þarf ég
yfirleitt að spyrja einhvern annan. Ég man
aldrei á hvaða tímum ég er að hlaupa. Ég
man svona sirka en ég spyr oft kærastann.
Hann er líka í frjálsum og heldur utan um
þetta,“ segir Hrafnhild en kærasti hennar
er langstökkvarinn Þorsteinn Ingvarsson.
Hrafnhild ber sérstakt nafn og það hefur
sína sögu. „Ég er sú eina á Íslandi sem heit-
ir Hrafnhild. Amma mín er hálfur Sami og
heitir Ragnhild. Þetta kemur þaðan. Það
mátti ekki skýra mig þessu nefni á sínum
tíma og mamma mín lenti í miklu basli við
að fá þetta í gegn,“ segir Hrafnhild en hún
segir ennfremur að nafn hennar hafi fengið
alls kyns meðferð í gegnum tíðina.
„Ótrúlegt en satt, þá er það eiginlega
hætt að pirra mig því ég lendi svo oft í því.
Það pirrar meira fólkið í kringum mig. Ég
er búin að heita mörgum nöfnum á ýmsum
stöðum,“ segir Hrafnhild.
Hrafnhild segir að árangurinn í ár sé því
mikið að þakka að hún hefur getað æft í um
tvö ár án þess að meiðast. „Það hefur ekk-
ert verið að stoppa mig. Ég held að það sé
að skila sér núna að geta æft reglulega og
þurfa ekki að vera að halda aftur af sér,“
segir Hrafnhild. Hún þakkar líka þjálfara
sínum, Jóni Oddssyni. „Ég er með ótrúlega
góðan þjálfara og er heppin að hann á frá-
bæra konu en þau hafa reynst mér ótrúlega
vel,“ segir Hrafnhild. Hún viðurkennir samt
að það hafi verið smá svekkjandi að hafa
ekki náð lágmarkinu inn á EM þrátt fyrir
frábært hlaup um síðustu helgi.
„Þetta var gleðihelgi en smá svona „ah,
bara eitt sekúndubrot.“,“ segir Hrafnhild
hlæjandi en bætir svo við að lokum: „Þetta
er bara einn stoppustaður á leiðinni.“
ooj@frettabladid.is
Búin að heita mörgum nöfnum
Hrafnhild Eir R. Hermóðsdóttir hætti í handbolta þegar hún var sautján ára og skellti sér á sína fyrstu frjálsíþróttaæfi ngu. Um síðustu
helgi var hún aðeins tveimur sekúndubrotum frá því að setja nýtt Íslandsmet í 60 metra hlaupi. Metið og sæti á EM er markmiðið.
EKKERT MÁ
KLIKKA Í RÁS-
MARKINU
Hrafnhild Eir R.
Hermóðsdóttir
hefur byrjað
innanhússtíma-
bilið mjög vel.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
2
8
-1
2
-2
0
1
5
0
0
:5
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
F
2
-A
1
2
8
1
7
F
2
-9
F
E
C
1
7
F
2
-9
E
B
0
1
7
F
2
-9
D
7
4
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
6
4
s
_
5
2
2
0
1
5
C
M
Y
K