Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1919, Page 7
Inngangur.
Introdudion.
I. Búpeningur.
Le bétail.
Framteljendur búpenings hafa verið laldir í búnaðarskýrsl-
unum svo sem hjer segir:
1913 .... 10 878
1914 .... 11 086
1915 .... 11070
1916 .... 11443
1917 .... 11-925
Hefur framteljendum samkvæmt þessu fjölgað töluvert mikið
tvö síðuslu árin.
í fardögum 1917 var sauðfjenaður talinn samkvæmt bún-
aðarskýrslunum nál. 604 þúsund. Reynslan liefur sýnt það undan-
farið, að fjártalan í búnaðarskýrslunum er æfinlega töluvert of lág.
Þannig reyndist sauðfjenaðurinn við fjárskoðunina veturinn 1906—07
um 109 þúsundum fleiri en fram var lalið í búnaðarskýrslunum
vorið eftir (1907). En með því að ekki virðist ástæða til að ætla,
að framtalið muni vera mun betra eða lakara eitt árið heldur en
annað, mun líklega óhætt að byggja á búnaðarskýrslunum saman-
burð milli ára um liltölulega fjölgun eða fækkun.
Vorið 1916 löldu búnaðarskýrslurnar sauðfjenaðinn 589 þús.
Hefur lionum því fjölgað fardagaárið 1916—17 um rúml. 14 þúsund
eða 2.4°/o. Vorið 1915 var sauðfjenaðurinn talinn 556 þúsund, svo
að á báðum árunum næstu þar á eftir liefur fjölgunin verið alls 48
þúsund. Þessi fjölgun vegur samt ekki nærri upp á móti fækkun-
inni tvö næstu árin á undan, sem var alls 79 þúsund. Fyrir fjár-
fellinn var fjártalan komin upp í 635 þúsund (vorið 1913).