Hagskýrslur um landbúnað - 01.02.1945, Blaðsíða 120
Hagstofa Islands
gefur út eftirfarandi rit:
I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ítarlegar skýrslur um þau
efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í
sjálfstæðum heftum, og fást þau keypt einstök. Menn geta líka
gerst áskrifendur að Hagskýrslunum með því að snúa sér beinl
til Hagstofunnar. Áskriftargjald er 12 krónur um árið.
Á hverju ári kemiir út eitt hefti af verzlunarskýrslum, bún-
aðarskýrslum og íiskiskýrslum og venjulega auk þess eitt hefti
um önnur efni.
II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um
innflutning og úlílutning, smásöluverð og ýmislegt íleira, sem
ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslunum.
Ennfremur bráðabirgðaskýrslur um ýmislegt, sem siðar koma
um ítarlcgri skýrslur. Áskriftargjald er 5 krónur um árið.
r r
III. Arbólc Hagstofu Islands. Er þar birtur útdráttur úr þeim töl-
fræðiupplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess farið
sé mikið út í einstök atriði. Ennfremur eru þar allmargar töflur
með alþjóðlegum yfxrlitum. Af árbókinni er út kominn 1. árg.
1930.
IV. Manntal a íslandi árið 1703, tekið að tilhlutun Árna Magnús-
sonar og Páls Vídalin. Iíomin eru út 16 hefti, og er í þeim allt
manntalið frá 1703, en í viðauka er birt manntal í 3 sj'slum frá
árinu 1729, og er enn eftir nokkur hluti hans.