Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1965, Blaðsíða 25
Búnaðarskýrslur 1961—63
23*
Síðan Hagstofan tók að safna skýrslum um búsafurðir, hefur fram
talin mjólk verið sem hér segir:
Heimanotað Selt Samtals
1946 1000 1 29 939 30 669 60 608
1947 »» 29 580 34 129 63 709
1948 „ 27 491 35 593 63 084
1949 »» »» 27 654 38 627 66 281
1950 27 208 42 453 69 661
1951 „ »» 29 060 41 721 70 781
1954 1000 kg .... 24 864 56 078 80 942
1955 »» 23 754 57 630 81 384
1956 »» »» • • • • 23 195 62 701 85 896
1957 »» »* 22 925 69 785 92 710
1958 „ »* 21 414 72 489 93 903
1959 »» »* 20 433 73 281 93 714
1960 *» »» 18 951 78 721 97 672
1961 „ »» 18 455 85 436 103 891
1962 »» 17 616 91 516 109 132
1963 „ 16 080 98 265 114 345
Breyting sú, er gerð var á framtali mjóliíur 1954, að telja í kg í stað
lítrum áður, er ekki raunveruleg nema að nokkru leyti. Mjóík hefur
alltaf ýmist verið mæld eða vegin, og menn almennt ekki gert sér grein
fyrir mun á því, nema í mjólkurstöðvunum, og þar hefur jafnvel ekki
verið fylgt sömu reglu alls staðar. Þannig hefur, líka síðan 1954, næst-
stærsta mjólkurstöðin, Mjólkurstöð K.E.A. á Akureyri, talið innvegna
mjólk í litrum, og framleiðendur þá talið hana þannig, og nær þetta til
allrar Eyjafjarðarsýslu og til innsveita Suður-Þingeyjarsýslu. Hver litri
er talinn vera 1,03 kg.
I búnaðarskýrslum til Hagstofunnar er seld mjólk talin í einu lagi,
hvort sem hún er seld heint til neytenda eða lögð inn í mjólkurstöð. Ef
innvegin mjólk í mjólkurstöðvar, eins og hún er fram talin í skýrslum
stöðvanna, er dregin frá allri seldri mjólk, sem talin er fram á búnaðar-
skýrslum, ætti að koma fram sem mismunur sú mjólk, sem seld er
utan mjólkurbúa, svo framarlega sem öll sölumjólk er fram talin. Árin
1960—63 var þessi mismunur sem hér segir:
Framtalin Innvegið hjá
sölumjólk, mjólkurbúum, Mismunur,
1000 1 eða kg 1000 1 eða kg 1000 1 eða kg
1960 ...................... 78 721 75 914 2 807
1961 ...................... 85 436 81 998 3 438
1962 ...................... 91 516 88 656 2 860
1963 ...................... 98 265 94 658 3 607
Samkvæmt skýrslum um niðurgreiðslu á mjólk seldri utan mjólkur-
stöðva nam hins vegar sú mjólk 5 800 þús. kg 1960, 6 040 þús. kg 1961,
6 100 þús. kg 1962 og 6 200 þús. kg. 1963. Framtalin sölumjólk virðist því
hafa verið vantalin í búnaðarskýrslum um 3,0 millj. kg 1960, 2,6 millj.
kg 1961, 3,4 millj. kg 1962 og 2,6 millj. kg 1963. Heimanotuð mjólk mun
einnig vera eitthvað vantalin, einkum rnjólk, sem notuð er til fóðurs,
enda hefur lítið verið hirt um að vanda til framtals á henni fyrr en síð-