Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1965, Side 33
Búnaðarskýrslur 1961—63
31*
var verðreiknuð til bænda við stöðvarvegg mjólkurbús eða á mjólkur-
sölustað, frá kr. 5,45 til 5,75 á kg. Aðrar afurðir af nautgripum voru
þannig reiknaðar, að kýr til förgunar var metin á 2 300 kr, geldneyti á
3 850 kr. og kálfur á 610 kr. Verðlagning þessi er við það miðuð, að
meðalfall af kú sé 137 kg og af geldneyti 144 kg. Síðan var reiknað með
meðalkjötverði og meðalverði húða samkvæmt skýrslum Framleiðslu-
ráðs. Gert er ráð fyrir, að í framtali kálfa sé urn 6% alikálfar.
Sláturafurðir sauðfjár voru hér reiknaðar til verðs eftir meðalfall-
þunga sláturfjár i hverri sýslu, eins og fallþunginn er reiknaður hér að
framan (sjá bls. XX), og eftir meðalverði afurðanna á öllu landinu eftir
skýrslu Framleiðsluráðs.
Afurðir af hrossum voru reiknaðar þannig, að hvert fullorðið slátur-
hross var virt á 2 300 kr., tryppi á 2 000 kr. og folald á 1 400 kr.
Um verðmæti garðávaxta er það eitt að segja, að fram taldar kart-
öflur og gulrófur voru reiknaðar á verði samkvæmt verðlagsgrundvelli
landbúnaðarvara, en aðrar garðjurtir og gróðurhúsaframleiðsla eru taldar
fram í krónuin, og er þar engu breytt.
Aðrar búsafurðir, svo og hlunnindi, var reynt að reikna með al-
gengu söluverði þeirra úr hendi framleiðenda sem seljanda, og sama er
að segja um fóður, þar sem það var selt. Bústofnsauki (og bústofns-
skerðing) var reiknaður sem næst skattmati, en sumt þó virt lítið eitt
hærra. Athuga ber, að bústofnsaukinn er ekki sundurliðaður eftir bú-
fjártegundum.
Sams konar töflur um verðmæti landbúnaðarframleiðslu bænda hafa
áður verið gerðar og birtar fjnir árin 1954 (tafla XI B í Búnaðarskýrsl-
um 1952—54), 1957 (tafla XI B í Búnaðarskýrslum 1955—57) og 1960
(tafla XIII B í Búnaðarskýrslum 1958—60). Fer hér á eftir samanburður
á verðmæti þessarar framleiðslu, eins og hún kemur fram í töflum þessum:
1954 1957 1960 1963
1000 kr. 1000 kr. 1000 kr. 1000 kr.
Afurðir af nautgripum .... 207 944 300 225 394 417 656 224
„ „ sauðfé 88 659 175 071 243 938 415 272
„ „ hrossum 6 989 7 217 5 313 8 595
„ „ alifuglum 6 165 8 627 14 348 28 053
„ „ svínum 2 218 2 839 5 907 8 840
„ „ loðdýrum 11 - 2 16
Garðávextir 11 351 15 652 27 955 34 234
Gróðurhúsaafurðir 4 401 5 769 10 279 13 252
Hlunnindi 5 081 5 895 12 024 20 896
Heysala 637 754 557 1 152
Fóðursala 6 607 8 809 8 276 6 762
Afurðatjónsbœtur 5 432 6 170 2 046 257
Bústofnsauki 37 962 33 729 27 370 ri-15 307
Annað 2 385 2 323 4 472 6 929
Samtals 385 842 573 080 756 904 1 185 175
Verðmæti framleiðslu bú-
leysingja 63 085 79 450 98 319 125 249
Alls 448 927 652 530 855 223 1 310 424