Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1970, Page 9

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.01.1970, Page 9
Sveitarsjóðareikningar 1966—68 7 minna af handahófi, útgjöld til gatna, liolræsa, barnaleikvalla o. s. frv. eru ýmist færð til eignar eða á rekstrarreikning, og fleira mætti telja. Þá er mikið ósamræmi í færslu á reikningum eigin fyrirtækja og tengsl- um þeirra við aðalreikning. Hér er spurningin bæði um það, liver fyrir- tæki skuli færð sem eigin fyrirtæki í rcikninga kaupstaðarins, og hvern- ig tengslum reikninga þeirra og kaupstaðarins skuli fyrir komið. Hjá kaupstöðunum er um að ræða tiltölulega umfangsmikinn rekstur fyrir- tækja, og því er hið milda ósamræmi í þessum efnum mjög hagalegt við almenna skýrslugerð um fjármál kaupstaðanna. Eins og Jjóst má vera af frainan sögðu, er samræming Hagstofunnar á reikningum kaupstað- anna til skýrslugerðar miklum annmörkum liáð. Frá og með reikningsárinu 1963 var tekið í notkun nýtt reiknings- eyðublað undir ársreikninga sveitarfélaga, sem Hagstofan gaf út í sam- ráði við félagsmálaráðuneytið. Allar töflur í sveitarsjóðareikningum frá 1963 fylgja ramma þessa nýja ej'ðublaðs. Er það að mörgu leyti frábrugðið iiinum eldri eyðublöðum Hagstofunnar til þessara nota. Þau voru öll við það miðuð, að ársreikningar væru færðir með eins konar sjóðsreiknings- fyrirkomulagi. í tekjuhlið var fyrsta færslan „sjóður“ i ársbyrjun, og síð- an voru taldar til telcna allar innborganir ársins, hvort sem þær voru rekstrartekjur eða eignabreytingar. A eyðublaðinu, sem notað er frá og með reikningsárinu 1963, eru relcstrarreikningur og eignabreytingareikn- ingur algerlega aðskildir. Það form hefur marga kosti fram yfir það eldra, ekki sízt þann, að rekstrarniðurstaða ársins kemur nú fram í sérstökum lið, sem ekki var áður. - Þá er nýja eyðublaðið frábrugðið hinum eldri í flokkun tekna og þó sérstaklega útgjalda. Við þá flokkun var stuðzt við norsk og dönsk eyðublöð og við alþjóðlegar venjur. Að lok- urn má nefna, að á eyðublaðinu er gert ráð fyrir, að allir liðir á rekstr- arreikningi sýni nettóupphæðir, þ. e. endurgreiðslur koma til frádráttar viðkomandi liðum. Þannig koma endurgreiðslur á útgjöldum til frádráttar viðkomandi útgjaldalið, en ekki í tekjuhlið rekstrarreiknings. 1 kafla B hér á eftir er nánari grein gerð fyrir einstökum liðum cyðublaðsins. Reikningseyðublaðið er í 9 aðalköflum. Fyrstu 3 kaflarnir eru rekstr- arreikningur, eignabreytingareikningur og efnahagsreikningur. Töflur í þessu hefti sýna niðurstöðutölur úr þeiin reikningum. í 4. kafla eyðu- blaðsins slcal látið í té yfirlit um skatttekjur sveitarfélagsins, með ýtar- legri sundurliðun þeirra og upplýsingum um innheimtu, eftirgjöf, af- slætti o. fl. Ekki reyndist unnt að gera yfirlit til birtingar um niður- stöður þessa kafla, vegna þess að hann var mjög illa úr garði gerður af mörgum sveitarfélögum. Sama er að segja um 5. lcaflann, sem fjallar um framfærsluútgjöld, sundurliðun þeirra, endurgreiðslu o. fl. Næsti kafli er um lielztu niðurstöður á rekstrar- og efnahagsreikningum eigin fyr- irtækja sveitarfélagsins, sem hafa sjálfstæll reikningshald. Útfyllingu þessa kafla hefur verið ábótavant. Þrátt fvrir það gerði Hagstofan yfirlit um rekstur og efnahag hafnarsjóða, vatnsveitna og rafveitna sveitarfélaga (sjá töflur II og V). Yfirlit þessi eru ófullkomin og án efa vantar þar

x

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga
https://timarit.is/publication/1126

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.