Hagskýrslur um mannfjöldaþróun - 01.01.1988, Blaðsíða 444
Útgáfur Hagstofu íslands
Hagskýrslur íslands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. í I.
útgáfuflokki Hagskýrslna, sem hófst 1914, voru 132 rit, í II. útgáfuflokki, sem hófst
1951, hafa komið út 89 rit. Á árinu 1989 er áformað að gefa út Mannfjöldaskýrslur
1971-1980, Sveitasjóðareikninga 1979-1985, Verslunarskýrslur 1988 og skýrslur um
útgjöld heimila 1985/86.
Hagtíðindi, mánaöarrit. Þar eru birtar mánaðarlegar eða ársfjórðungslegar skýrslur um
utanríkisverslun, fiskafla og vísitölur og árlegar skýrslur um ýmis efni, svo sem
mannfjölda, vinnuafl, verðlag, ýmis félagsmál, framleiðslu o.fl. Áskriftargjald
Hagtíðinda fyrir árið 1989 er 1.250 kr.
íbúaskrár fyrir Reykjavík og nokkur stærstu sveitarfélögin koma út á hverju vori. I
þeim eru allir íbúar þessara sveitarfélaga næstliðinn 1. desember samkvæmt þjóðskrá með
þeim upplýsingum, sem hún hefur að geyma um hvem mann.
Fyrirtækjaskrá yfir þá aðila, fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök o. fl., sem hafa sérstök
auðkennisnúmer (nafnnúmer og kennitölu) í fyrirtækjaskrá Hagstofunnar kemur út árlega
eða oftar. Síðasta útgáfa er miðuð við miðjan júní 1988. í henni em tæplega 22.500 aðilar
og hún kostar 1.500 kr.
Skrá yfir dána, með fæðingardegi, dánardegi, heimili og fleiri upplýsingum um dána,
koma út árlega í fjölrituðu hefti.
Skrá um stofnanaheiti. Ný útgáfa frá febrúar 1989 hefur að geyma þýðingar, einkum á
dönsku og ensku, á heitum rösklega 1.300 stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka. Skráin
kostar 700 kr. í fjölriti en 1.000 kr. á disklingi (IBM og Macintosh).
Kosningaskýrslur 1874-1987 hafa að geyma allar skýrslur sem gerðar hafa verið um
kosningar til alþingis, sveitarstjórna og embættis forseta, svo og um
þjóðaratkvæðagreiðslur, á þessu tímabili. Kosningaskýrslurnar em 43 að tölu og alls
1.160 blaðsíður. Skýrslumar em ljósprentaðar, gefnar út í tveimur bindum í venjulegu
bókbandi og kosta 4.800 kr.
Norrænar skýrslur sem Hagstofan á aðild að
Norræn tölfræðihandbók (Yearbook of Nordic Statistics — Nordisk statistisk ársbok)
er gefin út af Norðurlandaráði og Norrænu hagstofunni í Kaupmannahöfn. Norræn
tölfræðihandbók 1987 er 430 blaðsíður með 290 töflum, auk línurita og korta, og kostar
1.000 kr.
Konur og karlar á Norðurlöndum. Staðreyndir um stöðu kynja 1988 (Kvinnor och
man i Norden. Fakta om jamstalldheten 1988). í bókinni er með töflum, myndum og
skýringartexta bmgðið ljósi á líf og starf kvenna og karla á Norðurlöndum og dregið fram
það sem er lfkt og ólíkt í þessum efnum í löndunum fimm. Bókin er 140 bls. og kostar
700 kr.
Trygginga- og félagsmál á Norðurlöndum 1984 (Social tryghed i de nordiske lande).
Bókin er gefin út af Norrænu hagstofunni og er fjallað í texta og töflum um umfang,
útgjöld og fjármögnun almannatrygginga á Norðurlöndum. Bókin er röskar 200 bls. rituð
á dönsku og kostar 500 kr.
Afgreiðsla ofangreindra rita er í Hagstofunni, Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8-10
(3. hæð), 150 Reykjavík. Sími (91) 26699. Póstgíróreikningur Hagstofunnar er
nr. 26646-9. Rit eru send gegn póstkröfu, sé þess óskað.