Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2008, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2008, Blaðsíða 2
Fréttirmiðvikudagur 16. júlí 20082 InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Að eiga og elska heimsins versta hund -Mjög fyndin ástarjátning ... Í bókinni Marley og ég er viðfangsefninu lýst af hlýju ... gamansemi og ástúð. New York Times -Fyndin og hjartnæm saga um fimmtíu kílóa Labrador sem var jafn tryggur og elskulegur og hann var óþekkur. People -Hugsanlega hugljúfasta bók ársins. Sannarlega hundavinabók ársins. USA Today MARLEY OG ÉG er bók sem allir hundaáhugamenn verða að lesa - og hinir líka. Marley og ég John Grogan Að eiga og elska heimsins versta hund Á metsölulista New York Times Frum- útgáfa í kilju HÓLAR Ásmundur Jóhannsson var sviptur veiðileyfi sínu: Ekkert stöðvar bakveika sjóarann Ásmundur Jóhannsson sjómaður var sviptur veiðileyfi sínu. Það gerðu yfirvöld eftir að ljóst varð að Ás- mundur sótti sjóinn án þess að vera með kvóta fyrir aflanum. „Ég veit ekkert hvort ég sé að kaupa hann af réttum eigendum, þetta er þjóðarauðlind,“ segir Ás- mundur um hvers vegna hann fisk- ar kvótalaus. Hann segist ekki lenda í því að kaupa kvóta af vitlausum að- ilum sem eiga svo ekki kvóta því það er lögbrot. Spurður um framhaldið svarar hann: „Ég fer bara að róa um leið og það lægir.“ Mótmælin hóf Ásmundur vegna álits mannréttindanefnar Samein- uðu þjóðanna um að kvótakerf- ið væri ósanngjarnt og bryti á sjó- mönnum. Ásmundur hefur verið til sjós við Ísland í hartnær 37 ár og er hann nú sviptur veiðileyfi vegna skorts á kvóta. Hann átti loðnuskipið Þórs- hamar og segir að kvótinn hafi hrein- lega verið hirtur af skipinu á sínum tíma. Sjálfum fannst honum ekkert um að hann hafi verið sviptur veiði- leyfinu þar sem honum finnst kvóta- kerfið vera ónýtt. „Þetta er bara fram- hald af þessum skrípaleik sem þetta er, kvótinn er bara vitleysa. Það hefur ekki friðað einn einasta fisk og hefur aldrei tekist með þessu kerfi,“ seg- ir Ásmundur. Ef hann verður tekinn og kærður ætlar hann með málið alla leið fyrir Mannréttindadómstól Evr- ópu. Ásmundur Jóhannsson Segir kvótakerfið skrípaleik. Öll gögn á fartölvum fjórmenning- anna sem sögðu upp störfum hjá REI fyrr í þessum mánuði voru af- rituð af tölvudeild fyrirtækisins á meðan þeir voru fjarverandi. Í far- tölvunum sem þeir Gunnar Örn Gunnarsson, Gestur Gíslason, Þorleifur Finnsson og Vilhjálm- ur Skúlason höfðu afnot af voru meðal annars persónu- leg gögn en einnig önnur gögn sem tengdust vinnu þeirra. Tölvurnar voru ekki í eigu þeirra heldur fyrirtækis- ins. Tölvupóstar og önnur persónuleg gögn eru með- al þeirra gagna sem afrit- uð voru á meðan þeir voru fjarverandi. Samkvæmt heimildum DV hefur málið verið mikið rætt innan veggja REI og Orku- veitu Reykjavíkur að und- anförnu. Óvenjulegt að harðir diskar séu afritaðir Hjá Persónuvernd fengust þær upplýsingar að óvenjulegt væri að fyrirtæki afrituðu öll gögn á tölvum starfsmanna. Venjulega eru örygg- isafrit tekin af tilteknum gögnum en ekki öllu því sem er inni á hörðum diskum í tölvum. Hins vegar getur það gilt um vinnutölvur að ekki sé ætlast til þess að starfsmenn noti þær fyrir sín persónulegu gögn. Einkagögn og tölvupóstskeyti sem tengjast ekki vinnunni og skjöl sem ótengd eru vinnunni á vinnuveit- andinn ekki að afrita. Fjórmenningarnir gegndu all- ir stöðu framkvæmdastjóra hjá REI. Þeir sögðu upp störfum fyrr í mánuðinum vegna óánægju með samstöðuleysi um málefni fyrir- tækisins og þess hvernig pólitísk deilumál síðustu mánaða hafa gert störf þeirra mikið erfiðari. Guð- mundur Sigurjónsson er eini fram- kvæmdastjóri félagsins sem enn er að störfum. Ekki náðist í Hjörleif B. Kvaran, forstjóra Orkuveitunnar, og ekki heldur í fjórmenningana við vinnslu þessarar fréttar. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í Kjartan Magn- ússon stjórnarfor- mann. Fyrirtækið segist eiga gögnin „Já, það voru tekin afrit af hörðu diskunum í tölvunum þeirra þeg- ar mennirnir sögðu upp. Sumir þeirra höfðu ekki farið leynt með það að önnur fyrirtæki hefðu boð- ið í þá,“ segir Eiríkur Hjálmarsson upplýsingafulltrúi Orkuveitunn- ar. Aðspurður hvaða persónulegu gögn hafi verið á tölvunum svar- ar hann: „Mér er ekki kunnugt um hvaða gögn voru þarna inni. Hins vegar er það alveg skýrt að þau gögn sem menn vista á vélum fyr- irtækisins eru eign fyrir- tækis- ins. Starfsmönnum er heimil hófleg persónuleg notkun á tölvunni en reglurnar eru alveg skýrar,“ segir hann. Hann segir að mönnunum hafi ekki verið kunnugt um, áður en gögnin voru afrituð, að það yrði gert. Aðspurður hvernig REI muni meðhöndla möguleg persónuleg gögn mannanna, sem fyrirtækið kann að hafa undir höndum, seg- ir hann: „Orkuveitan hefur engan hag af því að eiga persónulegar ljós- myndir eða eitthvað annað slíkt, en þeim var algjörlega ljóst að regl- urnar væru svona.“ valGEIR ÖRN RaGNaRSSON blaðamaður skrifar: valur@dv.is AFRITUÐU ÖLL GÖGN FYRRUM REI-MANNA Eftir að fjórir framkvæmdastjórar REI sögðu upp störfum í byrjun mánaðar afritaði fyrirtækið öll gögn á hörðum diskum í tölvum þeirra á meðan þeir voru fjarverandi. Þar á meðal voru persónuleg gögn þeirra. Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur, segir að reglurnar séu skýrar og gögn sem vistuð eru á tölv- um í eigu Orkuveitunnar séu eign Orkuveitunnar. Hjörleifur Kvaran Stjórnendur Orku- veitunnar létu afrita öll gögn á tölvum þeirra sem sögðu upp störfum. „Mér er ekki kunnugt um hvaða gögn voru þarna inni. Hins vegar er það alveg skýrt að þau gögn sem menn vista á vélum fyrir- tækisins eru eign fyrirtækisins.“ Orkuveituhúsið Fjórmenningarnir sögðu upp störfum. í kjölfarið létu stjórnendur Orkuveitunnar afrita öll gögn á tölvum þeirra. Tölvur vanalega eru aðeins tiltekin gögn afrituð en ekki allur harði diskurinn. Hafna léttum bílum Tryggingafélagið Elísabet hef- ur ákveðið að hætta að tryggja létta og kraftmikla bíla. Ástæðan er sú að ökutækin eru fyrirtæk- inu of þungur baggi. Breyting- arnar taka gildi á fimmtudaginn. Jón Páll Leifsson, rekstrar- stjóri Elísabetar, segir að þegar skoðuð séu hlutföll tjóna eftir tegundum bíla komi í ljós að greiðslur vegna tjóna þessara bíla séu gríðarlega háar. „Fyrir suma af þessum bílum erum við að greiða 260 krónur til baka vegna tjóns af hverjum hundrað krónum sem greidd- ar eru í iðgjöld. Í staðinn fyrir að hækka iðgjöldin hjá öllum ákváðum við að sleppa þessum hluta alveg og koma þar með í veg fyrir hækkun hjá öðrum,“ segir Jón Páll en breytingarnar ná ekki til þeirra sem þegar hafa tryggt hjá Elísabetu. Fjórðungur treystir Geir Aðeins fjórðungur þjóðarinn- ar treystir Geir H. Haarde til að leiða þjóðina út úr þeim efna- hagsþrengingum sem nú ganga yfir. Þetta er niðurstaða könnun- ar sem fréttastofa Stöðvar 2 lét Capacent vinna fyrir sig og var kynnt í kvöldfréttum í gær. Ell- efu hundruð einstaklingar voru spurðir eftirfarandi spurning- ar: Hversu vel eða illa treystir þú Geir H. Haarde, forsætisráð- herra, til þess að leiða Ísland út úr þeirri kreppu sem nú stendur yfir? 46,6 prósent þeirra sem svör- uðu spurningunni telja að Geir sé ekki treystandi til að leiða Ís- land út úr þeirri kreppu sem nú stendur yfir. 24,4 prósent sögðust treysta honum til að leiða Ís- land úr kreppunni. Svarhlutfall í könnuninni var fimmtíu prósent.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.