Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2008, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2008, Blaðsíða 6
miðvikudagur 16. júlí 20086 Fréttir Rekstur ÍBV gengur vel þrátt fyrir efnahagsástandið: Gengur betur úti á landi „Síðasti Brassinn fer eftir leikinn gegn Leikni og þá verðum við bara með tvo útlendinga í okkar hóp. Brass- arnir fengu borgað í dollurum en Úg- andastrákarnir í íslenskum krónum,“ segir Sigursveinn Þórðarson, formað- ur knattspyrnudeildar ÍBV. Versnandi efnahagsástand hef- ur komið hart niður á liðum í Lands- bankadeild karla. ÍBV er langefst í fyrstu deildinni og aðeins stórslys get- ur komið í veg fyrir að liðið leiki ekki í deild þeirra bestu á ný á næsta ári. Sigursveinn segir að allar áætlanir hafi staðist. „Það er oft þannig að þeg- ar kreppir að í Reykjavík gengur bet- ur úti á landi. Við vitum það einnig að þegar krónan veikist gengur betur hjá sjávarútvegsfyrirtækjum sem flytja mikið út. Það er okkar happ að sjáv- arútvegsfyrirtækin hér í Eyjum styrkja vel við okkur þó Toyota sé okkar að- alstyrktaraðili.“ Þegar tímabilið byrj- aði í fyrstu deildinni byrjaði ÍBV með fimm útlendinga. Nú eru tveir eftir, Úgandamennirnir Andrew Mwesig- wa og Augustine Nsumba. „Ég held að ef fótboltinn eigi að ganga áfram verði leikmenn að koma til móts við félögin og skilja stöð- una. Það verður að taka mið af þessu ástandi þegar næstu samningar eru gerðir. Hugarfarið hefur breyst mikið á undanförnum árum. Í dag er þetta miklu meira ég, um mig, frá mér til mín,“ segir Sigursveinn. benni@dv.is DV Fréttir þriðjudagur 15. júlí 2008 9 um krónum í kassann á móti er það bara fínt mál. Ef hann er ekki að gera það? Hver eru þá rökin fyr-ir þessum launum? Eru menn að fá fleiri áhorfendur, fá meiri tekjur inn, hvar eru tekjupóstarnir á móti þessum svakalega launakostnaði til einstakra leikmanna? Ef það er hægt að benda á þær og ávinning-inn er það bara mjög gott, en ef það er ekki er ekkert sem réttlætir þetta. Þá eru menn bara að eyðileggja greinina í heild.“ Skilin góð í Keflavík Þorsteinn Magnússon, formað-ur knattspyrnudeildar Keflavíkur, segir að rekstur knattspyrnudeild-arinnar standi vel. Skilin séu góð enda hafi verið tekið mikið heljar-tak á vordögum þegar ný stjórn tók við. „Þá var hlutunum snúið við og stokkað upp. Það er allt í skil-um, við alla leikmenn og aðra sem koma að rekstrinum.“ Hann seg-ir að stjórn Keflvíkinga sé dugleg við að sækja peninga inn í rekst-urinn en það sé aðeins erfiðara í kreppunni. „Við finnum aðeins fyrir að það er erfiðara að ná í peninga en við erum duglegir og það hefur geng-ið. Við höfum marga styrktaraðila sem hafa styrkt okkur gríðarlega og ef það er ekki hægt að fá stuðning og styrk þegar liðinu gengur svona er það aldrei hægt.“ Keflvíkingar eru sem stendur í toppbaráttu. Velta þeirra er rúmar 120 milljónir á ári og er það mik-il aukning frá því fyrir nokkrum árum. „Ég er nýkominn inn í þetta aftur eftir nokkurra ára hlé en velt-an eykst á hverju ári. Launin eru stór hluti af þessum heildarpakka. Við borgum aðeins í íslenskum krónum. Síðan krónan féll hafa er-lendir leikmenn hækkað í launum um allt að helming. Það var voða fínt að semja í erlendri mynt í fyrra en síðan hefur allt farið á flug.“ Bláar tölur í Hafnarfirði Jón Rúnar Halldórsson, formað-ur knattspyrnudeildar FH, segir að félagið sé svo heppið að hafa rekið deildina á bláum tölum. Veltan á síðasta uppgjörsári hafi verið rúm-ar 160 milljónir króna en sé Evrópu-keppnin tekin af sé veltan rúmar 110 milljónir. Hann segir að krepp-an komi einnig við í Hafnarfirði.„Við erum ekkert eyland. Þetta kemur við okkur, það liggur í hlut-arins eðli. Tekjur hafa minnkað en það er ekki svo auðvelt að minnka útgjöld. Stærsti hlutinn af okkar rekstri er laun. Reksturinn hefur vaxið gríðar-lega undanfarin ár. Þátttaka okk-ar í Evrópukeppninni bústar upp reikninginn. Veltan var 160 millj-ónir en fyrir utan Evrópukeppnina er veltan rúmlega 110 milljónir.“Launin hafa samt ekki verið að sliga reksturinn á undanförnum árum. Við höfum verið svo heppn-ir að reka okkar batterí á bláum töl-um. En það veldur hver á heldur varðandi launin. Ef launin eru að sliga menn er það vegna samninga sem þeir gera.“ Jón Rúnar segir að dönsku leik-mennirnir fái í grunninn greitt í dönskum krónum. „Það er bland-að. Grunnlaunin eru í dönskum krónum en þegar upp er staðið og árangurinn er einhver er þetta helmingur sem er greiddur er í er-lendri mynt. “ valgeir@dv.is benni@dv.is Skiltin erfið auglýsendur á leikvöllum í landsbankadeildinni halda að sér höndum og setja reikningana neðst í bunkann. KREPPAN KEMUR VIÐ BOLTANN fjárhæðum en gat síðar ekki staðið við. PENINGARNIR BÚNIR „Það sem stóru félögin upplifa núna er að þess-ir stóru styrktaraðilar, þeir eru ekki til staðar í dag. Þeir eru ekki tilbúnir að ráðstafa jafnmiklu og þeir voru tilbúnir í áður. Því sjá stóru liðin fram á erfiðari tíma.“ Þrír dýrustu leikmenn inn- an íslands JónaS Guðni SævarSSon Kr 5,0 milljónir jónas var fyrirliði Keflavíkur og er klárlega með betri miðjumönnum íslands. Margir frábærir leikmenn hafa farið í stórveldið í Vesturbæ og hreinlega ekki haft kjark né þor til að klæðast svarthvíta búningnum og hreinlega týnst. jónas er mikill leiðtogi innan vallar sem utan. Kr pungaði ekki öllum þessum peningum í leikmann til að láta hann verma tréverkið eins og hefur sést í sumar. HelGi SiGurðSSon 3,7–7,0 milljónir Félagaskipti Helga voru og eru enn þann dag í dag umdeild. Við leit að upplýsingum um kaupverð rokkaði verðið frá 3,7 milljónum króna til 7,0 milljóna króna. Hins vegar hefðu Valsmenn án Helga ekki hampað íslandsmeistara- titlinum eftir 20 ára bið í fyrra. Helgi var yfirburðamaður hér á landi síðastliðið sumar og var að öðrum ólöstuðum maðurinn á bak við titilinn. Titlar eru ekki metnir í peningum og því má segja að umdeildustu félagaskipti síðari tíma hafi borgað sig. GuðJón BaldvinSSon 4,6 milljónir að borga svona mikið fyrir leikmann sem hefur ekki sannað sig í efstu deild er áhættusöm fjárfesting. það sem af er hefur guðjón þó sýnt sig og sannað. guðjón hefur sýnt góð tilþrif í neðri deildum íslands og skorað mikið af mörkum. guðjón hefur skorað fimm mörk það sem af er tímabilinu og er líklegt að hann fari í atvinnumennsku eftir tímabilið. Fjárfesting Kr-inga mun því líklega borga sig. Jónas Guðni Sævarsson Fékk risasamning þegar hann gekk til liðs við Kr frá Keflavík. Slíkir samningar munu brátt heyra sögunni til. þriðjudagur 15. júlí 2008 8 Fréttir DV Óhagstætt gengi íslensku krón-unnar hefur gert það að verkum að liðin í Landsbankadeild karla í knattspyrnu forðast það að semja við erlenda leikmenn um að þeim verði greidd laun í erlendri mynt. Eins og fram kom í úttekt í DV í gær hafa erlendir leikmenn margra úr-valsdeildarliða fengið launin sín greidd ýmist í dönskum krónum eða evrum. Gengisfall íslensku krónunnar undanfarna mánuði hefur gert það að verkum að laun þessara leikmanna hafa rokið upp með tilheyrandi erfiðleikum fyrir knattspyrnufélögin. Áreiðanlegar heimildir herma að algengt sé að úrvalsdeildarliðin greiði laun leik-manna sinna seint og illa, sumir fái aðeins um helming launa sinna á umsömdum tíma og greiðslurnar tefjist fram á haust. Forsvarsmenn knattspyrnu-deilda sem DV ræddi við eru allir sammála um að breyttir tímar séu fram undan og liðin þurfi að halda að sér höndum. Lægri laun til leikmanna eru hluti af því. Áform stóru liðanna, FH, KR, Vals og ÍA, hafa gert litlu liðunum erfiðara að standast samkeppnina um leik-menn. Landslagið mun breytastEdvard Börkur Edvardsson, for-maður knattspyrnudeildar Vals, hefur trú á því að landslagið muni breytast töluvert á næstunni og fyr-ir vikið verði lægri samningar í boði til leikmanna. „Það eru þrengingar í efnahagslífinu alls staðar og við erum að aðlagast breyttu umhverfi eins og við höfum alltaf gert,“ seg-ir hann. „Að sjálfsögðu finnum við fyrir þrengingunum.“ Velta knattspyrnudeildar Vals var um það bil hundrað og fjörutíu milljónir króna árið 2007. Mesti út-gjaldaliðurinn, að sögn Edvards, er rekstur mannvirkja og launakostn-aður. Hann vill ekki tjá sig um nein-ar tölur í því samhengi. Hannes staðið við sitt Hörður Antonsson, formað-ur meistaraflokksráðs Fylkis, tek-ur undir það sem fram hefur kom-ið að erfiðara er fyrir liðið að sækja styrki og auglýsingar, heldur en ver-ið hefur síðustu ár. „Það er erfiðara að sækja nýja styrktaraðila, þetta er miklu harðari heimur en verið hef-ur.“ Hann bendir þó á að engir leik-menn Fylkis fái greidd laun í erlendi mynt, samkvæmt stefnu félagsins. „Það er mjög hagstætt fyrir okkur í dag,“ segir hann. Aðspurður hvort breytinga sé að vænta á launastefnu félagsins, svarar hann: „Menn hafa verið að tala um það lengi að launin séu of há og ástandið núna hlýtur að verða til þess að laun lækki.“ Hann vill ekki gefa upp hvort Fylkir muni kaupa eða reyna að selja nýja leik-menn nú þegar leikmannamarkað-urinn er opinn á nýjan leik. Lúðvík Þorgeirsson, fram-kvæmdastjóri meistaraflokksráðs Fram í Landsbankadeild karla, vill árétta að Hannes Smárason at-hafnamaður og FL-Group hafi stað-ið við allar sínar skuldbindingar við Fram með sóma. „Þeir hafa staðið frábærlega við bakið á okkur,“ segir Lúðvík. Eru að eyðileggja greinina í heild Ragnar Þórir Guðgeirsson, for-maður knattspyrnudeildar Fjöln-is, segir að félagið hafi ekki spennt bogann hátt fyrir tímabilið. Hófs var gætt þegar samið var við leikmenn og því standi Fjölnir ágætlega. „Það sem stóru félögin upplifa núna er að þessir stóru styrktarað-ilar eru ekki til staðar í dag. Þau eru ekki tilbúin að ráðstafa jafnmiklu og þau voru tilbúin í áður. Því sjá stóru liðin fram á erfiðari tíma.“ Ragnar gerir ráð fyrir að rekst-ur minni liðanna sé einn fjórði af rekstri stóru félaganna. „Stóru félög-in setja svo rosalegan pening í þetta og hafa sprengt leikmannamarkað-inn. Þegar horft er yfir heildina ber heildin ekki þennan launakostnað.Ég held að menn verði að velta því fyrir sér hver sé fjárhagslegi bat-inn með komu leikmannsins. Ef rándýr leikmaður skilar einhverj- Áhorfendur skila litlu jafnvel þótt það kosti 1.500 krónur á völlinn í landsbanka-deildinni eru tekjur af miðasölu aðeins lítið brot af tekjum liðanna og duga engan veginn til að reka knattspyrnudeildirnar. mánudagur 14. júlí 20088 Fréttir DV Versnandi efnahagsástand hér á landi gerir knattspyrnuliðum í Landsbankadeild karla erfitt fyr- ir. Síðustu ár, þegar fjármálakerfið var í blóma, höfðu miklir peningar streymt inn í deildina frá fjárfestum sem höfðu hagnast vel. Fullyrt er að margir af bestu knattspyrnumönnum deildarinnar hafi um það bil átta hundruð þús- und krónur í mánaðarlaun og ýmis önnur fríðindi á borð við afnot af bíl án endurgjalds og sumir fá jafn- vel íbúðir. Það er skoðun margra að launamál leikmanna séu komin út í öfgar. Á meðan vilyrði fyrir auglýs- ingasamningum eru dregin til baka standa himinháir launasamningar leikmanna enn. Margir eftirsóttustu þjálfararnir hafa einnig haft mjög góðar tekjur á síðustu árum. Að meðaltali mæta um átta hundruð til þúsund áhorfendur á leiki í Landsbankadeildinni og augljóst er að tekjur af miðasölu duga engan veginn til þess að reka knattspyrnudeildir stærstu liðanna. Raunar eru tekjur af aðgangseyri aðeins örlítið brot af tekjum margra liða. Þar koma auglýsendur og styrk- veitendur inn. Auglýsingasamning- ar fyrir aðalauglýsingu á búningum liða í Landsbankadeildinni nema aldrei undir fimmtán til tuttugu milljónum króna fyrir þriggja ára samning. Það gæti breyst á næstu misserum. Launin greidd seint og illa Nú, þegar skortur á lausafjár- magni herjar á flesta, þurfa fyrirtæk- in að halda að sér höndum. Stjórn- armaður í úrvalsdeildarliði bendir á að erfiðara sé nú um stundir en síðustu ár að selja auglýsingaskilti á leikvanginn og einnig er erfiðara að innheimta vegna auglýsinganna. Slíkir greiðsluseðlar enda að jafnaði neðst í bunkanum hjá fyrirtækjun- um og þegar kreppir að eru styrk- veitingar og auglýsingar oftast með fyrstu útgjaldaliðunum sem skorið er á. Þessi staða hefur haft áhrif hjá flestum liðum, umsamin fríðindi á borð við afnot af bílum taka gildi seinna en áætlað var. Vitað er að leikmenn hjá liðum á borð við KR, Breiðablik, Fram, HK og Fylki hafa ekki fengið laun sín greidd að fullu á réttum tíma. Launagreiðslur hjá mörg- um hafa verið að dragast fram yfir mánaðamót og sumir leik- menn hafa ekki fengið full laun. Margir í vandræðum Heimildarmenn DV segja að knattspyrnudeild HK hafi staðið frammi fyrir erfiðleikum fyrir þetta tímabil, þar sem auglýsendur og aðrir sem gefið höfðu vilyrði fyr- ir fjárstyrkjum hafi dregið sig út úr samstarfi við félagið og jafnvel haft í hyggju að standa ekki við und- irritaða samninga. HK-ingar héldu að sér höndum á leik- mannamarkaðnum fyr- ir þetta tímabil og keyptu enga nýja leikmenn. Sala liðsins á hin- um unga leikmanni Hólmari Erni Eyjólfs- syni til West Ham fyr- ir 37 millj- ónir króna létti þó mikið á fjárhags- áhyggjum liðsins. Raunar ber þeim saman sem DV ræddi við að nær öll liðin í Landsbankadeildinni geri nú hvað þau geta til þess að létta á fjárhags- skuldbindingum sínum. Á næstunni mun leikmannamarkaðurinn opn- ast á ný og má segja að sama lögmál gildi á honum og á bílamarkaðnum nú um stundir. Margir að reyna að selja, en fáir vilja kaupa. Búast má við því að lítið líf verði á leikmanna- markaðnum á næstunni. Valur í góðum málum Háir launasamningar á erfið- um tímum sliga liðin sem misst hafa fjárhagslega bakhjarla sína. Nokkrir erlendir leikmenn í Lands- bankadeildinni fá hluta af launum sínum greiddan í erlendri mynt. Dennis Bo Mortensen, leikmað- ur Íslandsmeistara Vals, fær til að mynda launin sín greidd í dönskum krónum. Mortensen er meiddur og mun ekkert spila á þessu leiktíma- bili. Hann er einn launahæsti knatt- VaLGEIR ÖRN RaGNaRSSON blaðamaður skrifar: valur@dv.is „Styrktaraðilar og fyrirtæki hafa verið að bakka með vilyrði og munnlega samninga um styrki.“ Kominn á Range Rover Prince rajcomar ekur um götur bæjarins á forláta range rover sem metinn er á yfir 10 milljónir króna. Rándýr Valsmenn eru sagðir hafa keypt Helga Sigurðsson dýrum dómum frá Fram. DV Fréttir mánudagur 14. júlí 2008 9 spyrnumaður á Íslandi og miðað við ákaflega óhagstætt gengi krónunn- ar gagnvart dönsku krónunni má ætla að laun hans hafi hækkað um- talsvert frá því hann samdi við lið- ið. Valur þarf hins vegar að standa við samninginn við leikmanninn óháð því hvort hann spilar eða ekki. Valur stendur þó vel að vígi eftir að hafa selt marga leikmenn í atvinnu- mennsku á síðustu árum fyrir rúm- lega hundrað milljónir króna. Nágrannar þeirra í Fram eru í erfiðari málum. Henrik Eggert Hansen gekk nýverið í raðir Vals frá Fram, sem hafði einfaldlega ekki efni á að halda leikmanninum á launaskrá. Fleiri leikmenn gerðu samninga á sínum tíma í dönskum krónum og evrum. Þegar krónan hefur fallið um tugi prósenta gagn- vart evrunni verður staða liðanna erfiðari. Allt of hár launakostnaður Lúðvík Þorgeirsson, formað- ur meistaraflokksráðs Fram, telur að það sé kominn tími til að menn staldri við. „Það er ekki réttlætan- legt að menn séu að keyra rekst- urinn í kaf með offjárfestingum og það er kominn tími til að staldra við,“ segir hann. „Styrktaraðilar og fyrirtæki hafa verið að bakka með vilyrði og munnlega samninga um styrki.“ Hann segir tekjur af miða- sölu aðeins lítið brot af tekjum liðs- ins. „Launakostnaður hér á Íslandi er allt of hár. Við berum ábyrgð á þessum rekstri og við verðum að skila jákvæðri rekstrarafkomu. Per- sónulega sé ég landslagið allt ann- að í boltanum hér en það er í dag. Leikmenn eru einfaldlega allt of hátt launaðir.“ Framarar gerðu stór- an styrktarsamning við FL Group og Lúðvík segir leikmannasamn- inga endurspegla þann samning. „En um leið og eittvað fer að gefa á bátinn fara hlutirnir að vinda upp á sig og við hjá Fram ætlum að stoppa þetta.“ Undir í tombólunni Einar Kristján Jónsson, formað- ur knattspyrnudeildar Breiðabliks, tekur undir með Lúðvík að launa- kostnaður leikmanna sé orðinn of hár. Hann segir Breiðablik þó standa ágætlega, enda hafi félagið ekki verið mikið í því að eltast við dýrustu íslensku leikmennina. Velta knattspyrnudeildar Breiðabliks er um það bil 120 milljónir króna á ári. Hollendingurinn Prince Raj- comar er einn þeirra sem fær laun sín greidd í evrum, en heimildir DV herma að hann hafi að minnsta kosti sex hundruð þúsund krónur í mánaðarlaun yfir keppnistímabilið. „Þetta hefur ekki haft veruleg áhrif. Þetta eru ekki það háar upphæð- ir, jafnvel þótt krónan falli eins og hún hefur gert, að við ráð- um ekki við þetta. Þetta er bara eins og tombóla, stundum er maður yfir í tombólunni en nú erum við undir.“ Fara síður í atvinnu- mennsku Nokkuð hefur dregið úr því að ungir leikmenn fari héðan af landi brott til þess að leika í Noregi eða í Svíþjóð. Skiptir mestu þar að laun leikmanna hér á landi eru orðin sambæri- leg, ef ekki hærri, en í deildunum í Skandinavíu. Peter Gravesen, miðvallarleikmaður Fylkis, hefur lýst því yfir að hann hafi betri laun á Íslandi en hann hafði hjá Herføl- ge í Danmörku þegar hann spilaði þar. Einar Kristján telur að einhver ástæða hljóti að vera fyrir því að leikmenn kjósa að spila hér á landi fremur en að fara út. Með versn- andi efnahagsástandi gæti það hins vegar breyst. Bjargaði félaginu Sala HK á Hólmari Erni Eyjólfssyni er sögð hafa bjargað félaginu. Henrik Eggerts Fór frá Fram vegna þess að liðið hafði ekki efni á honum. Heldur að sér höndum Hannes Smárason er mikill stuðningsmaður Fram. Hann lofaði félaginu háum fjárhæðum en gat síðar ekki sta ið við. Fuðra upp Peningarnir eru fljótir að fuðra upp þegar vilyrðissamningar eru ekki virtir. DV í gær Fyrsti hluti umfjöllunar dV um fjárhagsvanda í fótboltanum. DV í gær ít lega hefur verið fjall dræði fót l - fél g í dv í u g . Toyota stendur við allt sitt Sigursveinn segir að allir kostnaðarliðir hafi staðist. Bóndinn vill ekki 500 milljónir „Það hafa margir auðmenn viljað bara kaupa jörðina af mér. Mér finnst það helvítis dónaskapur. Ekki fékk kölski allt þrátt fyrir að hann væri nógu klikk,“ segir Sigurður Hann- esson, 82 ára bóndi á Villingavatni við Þingvallavatn, sem hafnað hef- ur hverju gylliboðinu af öðru þegar menn hafa reynt að kaupa jörð hans. Ýmis hlunnindi fylgja jörðinni sem er stór og gætu komist þar fyr- ir allt að 500 sumarbústaðir. Fyrir 10 árum reyndi Reykjavíkurborg að kaupa Villingavatn og var ætlunin að koma þar á frístundasvæði fyr- ir borgarbúa. Borgin var tilbúin að greiða 150 til 200 milljónir króna en Sigurður bóndi var ekki til viðræðu um að selja. Eftir þetta hefur jarðaverð marg- faldast og telja sérfræðingar sem DV ræddi við ekki óeðlilegt að Sigurður gæti fengið 500 milljónir króna í það minnsta fyrir jörð sína. Reykjavíkur- borg og ýmsir auðmenn hafa síðan sóst mikið eftir jörð Sigurðar og bauð þjóðþekktur auðmaður allt að millj- arði króna í jörðina fyrir skemmstu án þess að Sigurður léti tilleiðast. Eitt sumarið reyndu 20 aðilar að kaupa jörð hans en öllum var hafnað. Sig- urður sagði nei og hefur leigt góðum manni hana, að eigin sögn, fyrir níu- tíu þúsund krónur á mánuði. Sigurð- ur gerði við hann leigusamning upp á áratugi. Eina skilyrðið er að kindur verði áfram á jörðinni. Peningana í betri háskóla Sigurður hefur staðfastlega fram á þennan dag neitað gulli og græn- um skógum frá auðmönnum sem sækjast í hans land. Hann vill frek- ar að allar milljónirnar sem honum hafa boðist fyrir jörðina séu nýttar í að byggja betri háskóla. „Það á ekk- ert að vera hægt að fá allt fyrir pen- inginn. Reykjavíkurborg kom hingað með alla sína milljarða en ég sagði nei takk. Það ætti að byggja stærri háskóla fyrir allan þennan pening. Það á ekki að vera þannig að það sé hægt að fá allt fyrir peninga.“ Sigurður segir að margir bændur hafi lagt upp laupana á undangengn- um árum. „Það er búið að reyna að stúta mér í sextíu ár. Hvað eru marg- ir bændur sem hafa lagt upp laupana síðustu sextíu ár hér á Íslandi? Það er hægt að fara um Ísland og sjá það. Aldrei fór eldgos eða drepsótt með sveitir landsins eins og nú er gert.“ Ær en ekki sumarbústaði Það er ekki oft sem það heyrist nú til dags að menn neiti háum upp- hæðum. Yfirleitt þegar auðmenn landsins vilja eitthvað fá þeir það. Bjóða bara nógu hátt. En Sigurður er af gamla skólanum. Vill hafa tún- in sín fyrir kindur ekki sumarbústaði. „Undirstaðan er nú maturinn. Það kemur á undan húsinu. Menn geta lifað húslausir en það er ekki hægt að lifa margar vikur matarlaus. Þó menn efnist þarf að vera einhver hugsun í toppstykkinu. Nei, mér þykir ljótt að sjá mörg hundruð ára gömul tún mokuð upp undir sumarbústaði. Það er svívirða að haga sér svona. Það var gamall maður á Syðri-Brú sem byggði allt upp sjálfur. Hélt að sonur sinn gæti búið þar síðar meir. Nú er verið að moka túnin hans upp fyrir sumarbústaðalóðir,“ segir Sigurður. „Það er ævafornt býli við Ásgarð, það er búið að moka túnin upp fyrir sum- arbústaði. Þetta er bara siðleysi og ekkert annað. Það er ekkert í topp- stykkinu á framámönnum þjóðar- innar. Hvort sem það er í landbúnaði eða einhverju öðru. Nei, mér líður illa yfir því að maður hélt að sveitin fengi að lifa en síðan er það gjörsam- BeneDikT Bóas hinRiksson blaðamaður skrifar: benni@dv.is „Aldrei fór eldgos eða drepsótt með sveitir landsins eins og nú er gert.“ stór og mikil jörð jörð Sigurðar nær eins langt og augað eygir. sigurður hannesson, bóndi á Villingavatni við Þingvallavatn, neitaði boði auðmanns upp á allt að milljarði króna í jörð hans. Hann hefur áður neitað boði Reykjavíkurborgar í jörðina upp á hundruð milljóna. Sigurður vill frekar að búskap- ur sé á jörðinni áfram og hefur leigt öðrum fjár- bónda jörðina fyrir níutíu þúsund krónur á mán- uði. Hann tekur kindurnar fram yfir milljarðana. dv-myndir Heiða

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.