Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2008, Page 4
Fréttirmiðvikudagur 16. júlí 20084
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Honda civic árg. ´95
Bíll í toppstandi!
Ný skoðaður fyrir árið ´09
Verðhugmynd, 150 þús.
Upplýsingar í síma : 846-2868
BÍLL TIL SÖLU !!!
„Að eiga náttúruperlur ósnortn-
ar til framtíðar er sérstakt tungutak
manns sem hefur ákveðið stutt land-
níðslu og ofbeit í tugi ára. Undir-
þægnin og aumingjaskapurinn krist-
allast síðan í hjali þingmannsins um
hitt og þetta sem sé á heimsmæli-
kvarða,“ ritar Sigurjón Benediktsson
tannlæknir í aðsendri grein í Morg-
unblaðinu í gær, þar sem hann lætur
Jón Bjarnason, alþingismann vinstri
grænna, heyra það hressilega.
Sigurjón segir í inngangi grein-
arinnar að það hafi borið til tíðinda
að Jón Bjarnason hafi ekki verið á
móti neinu sérstöku í dag. Reynd-
ar hafi Jón verið á harmonikkumóti
nýlega og því hafi honum tekist að
vera á móti. Síðan telur hann upp í
nokkrum málsgreinum fjölmörg at-
riði sem hann segir Jón vera mótfall-
inn. Þingmaðurinn sé til að mynda á
móti Norðurlandi, þar sem hann er
á móti álversuppbyggingu á Húsa-
vík. Um umhverfissinna segir hann:
„Jarmur þeirra heyrist í mörg þús-
und vatta hátölurum hjá söngvurum
og hljóðfæraleikurum sem vita ekki
evra sinna tal.“ Sigurjón segir Jón
vera á móti orkuöflunum, á móti for-
tíðinni og einnig á móti framtíðinni.
Hann sakar Jón einnig um óhróður í
garð Norðlendinga.
„Ég hef nú ekki lesið þessa grein
og ég þekki þennan mann ekki neitt
en hann er greinilega mikill áhuga-
maður um þessa álbræðslu þarna,“
segir Jón Bjarnason, inntur eftir við-
brögðum við greininni. „Þarna eru jú
áform um 400.000 tonna álver sem
mun krefjast raforku úr Skagafjarð-
arfljótunum, Skjálfandafljóti og nú
er verið að ræða um Jökulsá,“ segir
hann. „Ég er staddur á Blönduósi og
er ekkert að lesa blöðin þessa dag-
ana.“ valgeir@dv.is
Þingmaður sakaður um að vera á móti bæði fortíð og framtíð:
Jón Bjarnason á móti öllu
Jón Bjarnason „Ég hef nú
ekki lesið þessa grein og ég
þekki þennan mann ekki.“
Enn óljóst
með ákæru
Enn er ekki ljóst hvort ákæra
verður lögð fram á hendur séra
Gunnari Björnssyni, presti á
Selfossi. Fjórar stúlkur, sem all-
ar voru sóknarbörn Gunnars,
kærðu hann fyrir kynferðisbrot
og var málinu nýlega vísað til
ríkissaksóknara. Hann hefur nú
óskað eftir frekari gögnum frá
lögreglunni á Selfossi. Enn er því
ekki hægt að segja til um hvort
ákærur verða lagðar fram eða
málið látið niður falla. Lögreglan
hefur þó gefið út að hún rannsaki
brotin sem blygðunarsemisbrot.
Ekki Hrunalaug
Í Ferðablaði DV sem
kom út í júní var birt yfir-
lit um nokkrar náttúrulaug-
ar á landinu. Þar var vitnað
í vefinn hot-springs.org og
meðal annars sagt frá Hruna-
laug. Laugin sú er hins vegar
í einkaeigu þeirra sem búa á
jörðinni Ási og er hún ávallt
kölluð laugin í Ási. Haft var
samband við blaðið og óskað
eftir því að komið yrði á fram-
færi að almenningi er ekki
heimill aðgangur að lauginni
nema með leyfi eigenda. Elín
Guðmundardóttir, bróður-
dóttir bóndans á Ási, segir
fjölskyldunni sárna mjög
hvernig ókunnugir hafa geng-
ið um laugina í óleyfi.
Leiðrétting
Í umfjöllun DV um Skapandi
sumarhópa Hins hússins í gær
birtist rangt eftirnafn á hirðskáldi
Hins hússins. Hann heitir Sverrir
Norland.
Jón BJarki magnússon
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
„Flokkurinn beitir sér ekki fyrir því
og getur ekkert gert,“ segir Guðni
Ágústsson, formaður Framsóknar-
flokksins og flokksfélagi Pauls Ram-
ses Odour, þegar hann er spurður
hvort flokkurinn hyggist beita sér í
máli Pauls.
Eins og fram kom í DV í gær starf-
aði Ramses fyrir Framsóknarflokk-
inn í atkvæðasmölun fyrir síðustu
borgarstjórnarkosningar. Nú bíð-
ur hann upp á von og ótta í flótta-
mannabúðum á Ítalíu hvort hann
verði sendur til Keníu - þar sem
hann telur dauðann vísan.
Sjálfur telur Guðni það skynsem-
ismerki að vera í Framsókn, en það
virðist litlu ætla að breyta fyrir fram-
tíð Pauls og fjölskyldu.
Vonar það besta
Fram hefur komið að í Keníu sé
flokkur Kibakis á eftir „litlum fisk-
um“ úr stjórnarandstöðuflokknum
ODM, en þar starfaði Paul Ram-
ses. Guðni segir Framsóknarflokk-
inn ekkert geta gert fyrir Paul. „Ég
vona samt að hann fái réttláta með-
ferð úti á Ítalíu og lifi þessar hremm-
ingar allar af,“ segir Guðni og tekur
fram að Ramses sé greinilega skyn-
samur maður og að það sé ekkert
nema gott um þennan framsóknar-
mann að segja.
Að sögn Guðna er það augljóst
hvers vegna skynsemis- og hug-
sjónamaðurinn Paul Ramses hafi
valið Framsóknarflokkinn. „Það
er nú bara eðlilegt að menn gerist
framsóknarmenn um allan heim,“
segir Guðni við DV. Eins og fram
hefur komið í fjölmiðlum undan-
farið flúði Paul land vegna pólitískra
ofsókna í heimalandi sínu. Nú er
hann á Ítalíu vegna regluverkasam-
félags Íslands.
Pólitísk skynsemi
„Mér finnst það mjög myndarlegt
af honum að hafa tekið þátt í starfi
þessa öfluga og myndarlega flokks
sem hefur starfað í 90 ár í landinu,“
segir Guðni en bætir því þó við að
hann hafi ekki fengið tækifæri til að
hitta Ramses á meðan hann starfaði
fyrir flokkinn.
Ramses segist hafa kynnt sér
stefnuskrá allra flokka en sér hafi lit-
ist best á stefnu Framsóknarflokksins
þar sem hún var líkust stefnu flokks
hans, ODM, í Keníu. „Menn sjá það
í dag að það er pólitísk skynsemi
að vera framsóknarmaður og fylgja
framsóknarstefnunni þegar allt er
að fara norður og niður í höndun-
um á Geir H. Haarde og Ingibjörgu
Sólrúnu,“ segir
Guðni.
Paul ramses odour starfaði fyrir Framsóknarflokkinn fyrir síðustu borgarstjórn-
arkosningar. Þrátt fyrir það segir guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokks-
ins, að flokkurinn geti ekkert gert fyrir hann. Hann segir það sýna pólitíska skyn-
semi Pauls að gerast framsóknarmaður.
Framsókn bEitir sér
Ekki í máLi ramsEs
guðni Ágústsson
Formaður
Framsóknarflokksins
segir að flokkurinn
geti ekkert gert fyrir
Paul ramses.
„ég vona samt að hann
fái réttláta meðferð úti
á Ítalíu og lifi þessar
hremmingar allar af.“
Paul ramses Fyrrverandi
fótgönguliði Framsóknarflokksins
bíður úti á ítalíu eftir því hver
verður niðurstaðan í máli hans.