Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2008, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2008, Side 11
miðvikudagur 16. júlí 2008 11Fréttir Obama málaður sem múslími „Ef fólk sér ekki að þetta er grín þegar fáninn brennur á forsetaskrif- stofunni veit ég ekki hvað ég get sagt.“ Á forsetaskrifstofunni brennur bandaríski fáninn í eldstæðinu og á veggnum er mynd af Osama Bin Laden. Forsetaframbjóðandi demókrata, Barack Obama, er klæddur eins og múslími og kona hans, Michelle Obama, er vopnuð uppreisnarkona. Svona er teikn- ingin sem birtist af hjónunum á forsíðu New Yorker á mánudag- inn. Teikningin vakti gríðarlega at- hygli og hafa gagnrýnendur sagt að birtingin sé óábyrg. David Remn- ick, ritstjóri New Yorker, segir í við- tali við Washington Post að teikn- ingin væri gerð til þess að vekja athygli og gera grín að herferðinni sem hefur beinst gegn Obama. „Þetta er augljóslega grín, saman- safn af þessari mögnuðu hræðslu og sögusögnum sem hafa geng- ið á milli manna um fortíð Obam- as og hans hugmyndafræði,“ segir Remnick við Washington Post. „Ef fólk sér ekki að þetta er grín þegar fáninn brennur á forsetaskrifstof- unni veit ég ekki hvað ég get sagt.“ Greinin sem fylgir fjallar hins vegar ekki um þær sögusagnir sem hafa gengið á netinu þar sem því er haldið fram að Obama sé ofstæk- isfullur múslími. Hún fjallar þess í stað um sigra hans í stjórnmálum í Chicago á tíunda áratugnum. John McCain, frambjóðandi Repúblik- anaflokksins, fordæmdi myndina. „New Yorker heldur kannski, rétt eins og einn starfsmaður þeirra sagði okkur, að forsíðan væri kald- hæðnisleg tækling á því sem hægri- sinnaðir andstæðingar Obamas hafa haldið fram um hann,“ segja stuðningsmenn Obamas í yfirlýs- ingu. „En flestir lesendur sjá að þetta er ljótt og móðgandi og við erum sammála.“ jonbjarki@dv.is New Yorker birti mynd á forsíðu sinni þar sem Barack Obama og kona hans Michelle eru látin líta út eins og reiðir uppreisnarmenn. Myndin hefur vakið hörð viðbrögð hvort tveggja stuðningsmanna og keppinauta Obama. Grín segir ritstjórinn. erlendarFréttir ritstjorn@dv.is Forsíða New Yorker Barack Obama og kona hans, michelle Obama, á forsetaskrifstofunni á meðan bandaríski fáninn brennur í bakgrunni. „ef fólk sér ekki að þetta er grín þegar fán- inn brennur á forseta- skrifstofunni veit ég ekki hvað ég get sagt.“ JÓN BJARKI MAGNÚSSON blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is 70 þúsund í bjór á viku Maður sem var ákærður fyrir að keyra fullur í sjöunda skiptið játaði að eyða 70 þúsund krón- um á viku í bjór. En það er nógu mikið til þess að kaupa 2.500 litlar flöskur á mánuði, sagði í áströlsku blaði. Byggingar- starfsmaðurinn var í ástarsorg og hafði byrjað að drekka svo mikið eft- ir að hann hætti með kærustunni sinni fimm árum áður. Það sagði hann fyrir rétti í Norður-Ástralíu. Þjófar stela laufum Í Guwahati á Norðaustur- Indlandi hafa þjófar brotist inn í garða til þess að stela laufum og skemma runna, segja garð- yrkjumenn. Þjófarnir eru taldir vera þorpsbúar frá tehéruðum í Assam sem kunna ekki að rækta almennilegt te. Á seinasta áratug settu stjórnvöld á fót verkefni í héraðinu fyrir atvinnulausa og þeim var kennt að rækta te. Nið- urstaðan virðist ekki hafa verið betri sú að nú stela sumir þeirra góða teinu frá þeim sem kunna að rækta það.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.