Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2008, Side 14
vinnuvélarmiðvikudagur 16. júlí 200814
Betri en
evrópska draslið
„Mig vantaði vörubíl og ákvað
að sérpanta eitt stykki amerísk-
an Volvo beint frá Bandaríkjunum
og sé ekki eftir því. Hann er bæði
sparneytnari og praktískari en
þessir sem eru mest notaðir hér á
landi,“ segir Sturla Jónsson vöru-
bílstjóri um hvíta trukkinn sem
vakti athygli í mótmælunum fyrr í
sumar. Bíllinn er af gerðinni Volvo
VM 670 og er léttari en svipaðir
evrópskir bílar. „Hann hefur öðru-
vísi mótor, krana og gírskiptingar
heldur en þessir hefðbundnu evr-
ópsku bílar, hann er töluvert léttari
og eyðir þess vegna miklu minna
en evrópska draslið,“ segir Sturla,
greinilega sáttur við kaggann.
Þegar menn sérpanta bíl beint
frá framleiðandanum er hægt að
ákveða hvaða kostum hann á að
vera búinn. Þannig er hægt að sér-
smíða vörubíl fyrir íslenskar að-
stæður. Áður en sá möguleiki var
fyrir hendi voru bílarnir frá Amer-
íku ópraktískir hérna heima. Þeir
voru smíðaðir fyrir stórar hrað-
brautir og höfðu ekki þann beygj-
uradíus sem til þurfti. Að auki voru
þeir ekki búnir drifi og loftpúða-
fjöðrun. „Það er eins og menn
dæmi þessa amerísku bíla eftir því
hvernig þeir voru einu sinni. Fólk
er ótrúlega seint að taka við sér og
átta sig á að þeir eru miklu betri en
þeir voru einu sinni,“ segir Sturla. Í
Volvo-inum hans er góð svefnað-
staða sem hentar vel mönnum sem
keyra mikið um landið. „Það eru
bara einhverjar hundakojur í þess-
um bílum sem flestir keyra hérna
á Íslandi, plássið í bílnum mínum
er bara eins og svíta í samanburði,“
segir hann og hlær.
„Það er ekki bara ég sem er svona
hrifinn af þessum bílum. Sigurður
Hauksson hjá Vegagerðinni sagði
við mig að hann áttaði sig hrein-
lega ekki á því af hverju það væri
ekki meira um svona Volvoa. Þeir
eru miklu léttari og geta þess vegna
borið þyngri farm. Ég veit um einn
annan Íslending sem hefur fengið
sér sams konar bíl en hann gerði
þau mistök að kaupa hann notað-
an. Sá bíll er algjörlega ónothæfur
því það vantar í hann driflæsing-
arnar, það verður að kaupa þetta
af kunnáttu,“ segir hann. Aðspurð-
ur hvort hann stefni á innflutning
segir Sturla: „Ég er búinn að vera í
þessum bransa í yfir tuttugu ár svo
auðvitað dreymir mig stundum um
að gera eitthvað allt annað, svona
ef ég á að vera heiðarlegur. Það er
aldrei að vita,“ segir Sturla sposkur.
Vörubílstjórann Sturlu Jónsson þarf
vart að kynna. Hvíti Volvo-trukkurinn
hans hefur ekki síður vakið athygli en
maðurinn sjálfur. DV spjallaði við
Sturlu um trukkinn og starfið.
Sturla og trukkurinn góði volvóinn
er sparneytnari er aðrir vörubílar.
mynd Baldur guðmundsson
Sturla sáttur Eitthvað allt
annað en evrópska draslið.
mynd hEiða hElgadóttir
Vélaframleiðandinn JCB býð-
ur viðskiptavinum sínum nú upp
á háþróað gervihnattaeftirlitskerfi
sem kallast JCB LiveLink. Þessu
greinir Vélaver frá á heimasíðu
sinni en þeir selja vélar frá JCB.
Kerfið tengir saman vélar frá JCB
og vistar upplýsingar um vinnu-
stundir, eldsneytisnotkun, hitastig
og þrýsting svo eitthvað sé nefnt.
Kerfið verndar vélarnar betur
gegn þjófnaði þar sem kerfið stað-
setur vélina en vinnuvélaþjófnað-
ur er mikið vandamál alls staðar í
heiminum þótt það sé ekki mikið
um slíkt hér heima. Þá fylgist kerfið
einnig með ástandi vélarinnar. Þá
er verið að tala um fyrirbyggjandi
aðgerðir einnig. Sé einhver búnað-
ur við það að klikka eða gefa sig er
send viðvörun svo hægt sé að koma
í veg fyrir frekari bilun.
Þá er einnig hægt að senda
vinnuvélum gögn um kerfið auk
þess sem ökumenn tækjanna geta
nálgast alls kyns upplýsingar og
leiðbeiningar varðandi vélarnar í
gegnum LiveLink.
Kerfið kemur sér líka sérlega vel
fyrir vélaleigur því hægt er að fylgj-
ast nákvæmlega með tækjunum og
ástandi þeirra hverju sinni.
asgeir@dv.is
JCB LiveLink eykur eftirlit og afköst vinnuvéla:
Eftirlit í gegnum gervihnött
JCB
Eykur eftirlit og
skilvirkni með jCB
livelink.