Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2008, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2008, Síða 16
vinnuvélarmiðvikudagur 16. júlí 200816 Líkt og í öðrum atvinnugreinum hefur orðið gríðarleg tæknibylting hjá verktakafyrirtækjum í jarðvegs- iðnaði. Gröfur, ýtur, vegheflar og ótal önnur tæki eru búin GPS-bún- aði sem gerir stjórnendum þeirra kleift að vinna verk sín nakvæmlega þar sem fyrirhugað framkvæmda- svæði birtist á skjá í stjórnborði tækjanna. Það fyrirtæki sem lengst er komið í tæknivæðingu flota síns er verktakafyrirtækið Klæðning sem gerir út tugi hátæknivinnuvéla. Mun meiri nákvæmni „Þetta er gríðarleg breyting fyr- ir okkur sem vinnum á vélunum, hér er ég að gera veituskurði og sé á skjánum hjá mér nákvæma stað- setningu, breidd, dýpt og lögun á skurðinum og fyrir bragðið heyrir til undantekninga ef mistök verða við verkið eins og áður var þegar allt var mælt út fyrir fram og hælar settir til að vinna eftir. Oft kom fyr- ir að ekki var nægilega skýrt hvernig átti að vinna eftir þeim merkingum og því varð stundum að margkoma og breyta og laga og svo var algengt að þessir hælar væru keyrðir niður og þá var reynt að gera eitthvað þar til hægt var að fá mælingamenn á svæðið á nýjan leik. Stundum kom fyrir að minnið lenti aðeins á skjön við fyrirhugað skurðstæði, þá varð að byrja upp á nýtt og mikill tími fór til spillis,“ segir Theodór Guðnason sem talinn er einn af afkastamestu gröfumönnum landsins. Fylgst með úr fjarlægð Til viðbótar við þessi mælitæki sem vélar Klæðningar eru bún- ar hefur verið komið fyrir Trimb- le construction manager-skipu- lagsbúnaði í öllum vélum og bílum fyrirtækisins. Þessi búnaður ger- ir stjórnendum kleift að fylgj- ast nákvæmlega með tækjunum, glögglega sést hvernig nýtingu er háttað og þar með afköst hverr- ar vélar jafnóðum. Öll vinnusvæði koma upp á skjá þar sem sjá má tækin og finna nákvæmar upplýs- ingar um hvert og eitt. Þetta léttir mjög á flotastýringu, strax kemur fram ef of mikið af tækjum er í einhverju verki en vönt- un í öðru. Með þessum búnaði mun tækjanýting batna verulega þar sem blákaldur veruleikinn tekur lítt tillit til þeirrar tilfinningasemi sem oft ræður við stjórnun hjá fyrirtækjum. Fremstir í Evrópu Karl Helgi Jónsson, yfirverkstjóri hjá Klæðningu, segir þennan há- tæknibúnað vera hreina byltingu sem eigi eftir að skila miklum ár- angri. „Það er búið að reyna þenn- an búnað í Evrópu en ekki í viðlíka mæli og við erum að gera hérna hjá Klæðningu. Við erum langstærstir og fremstir í þessu í gjörvallri álf- unni og árangurinn þegar farinn að sýna sig. Það var líka settur í jepp- ann hjá mér búnaður sem les um- hverfið og færir allar upplýsingar samstundis inn á teikningar sem eru á skjánum hjá mér. Nákvæm stað- Mikið hefur verið um vinnuvéla- þjófnað í Moskvu, höfuðborg Rúss- lands, undanfarið og þá er ekki ver- ið að tala um borvélar og sagir. Heldur þjófnað á krönum, vörubílum, körfum og fleiri stórvirkum vinnuvélum. Þessu greinir Moscov Times frá nýlega. Þjófn- aðurinn hefur náð hámarki undanfarna þrjá mánuði en vélarnar hafa horfið af vinnusvæðum og við svæði þar sem vegavinna er í gangi. Í það minnsta 40 KamAZ-trukkar hafa horfið á þessum þremur mánuð- um auk 13 krana. Þá á eftir að telja með steypubíla og aðrar þungavinnuvélar. Þegar mest var hurfu þrír KamAz-kran- ar og fjórir steypubílar á einni viku. Mikið er um framkvæmdir í borginni þar sem verið er að taka miðbæ henn- ar í gegn vegna vetrarólympíuleikanna 2014. Ríkisstjórn Rússlands leggur gríð- arlegar fjárhæðir til uppbyggingarinnar en sumir óttast að þjófaaldan kunni að setja strik í reikninginn. Þrátt fyrir þær kenningar neita allir stærstu verktakarn- ir í borginni að skortur sé á vinnuvélum hjá þeim og því vaknað raddir að um spillingu sé að ræða. Mikhail Chizhenok, forstjóri verk- takafyrirtækisins Mirax Group, segir að vélunum sé rænt til þess að nota við framkvæmdir í nágrenni við Moskvu. Þar sé mikil fátækt og engar vélar að fá en hægt sé að nota vélarnar í allt að tvö til þrjú ár áður en þær finnist. asgeir@dv.is Mikið hefur verið um þjófnað á vinnuvélum í Moskvu undanfarna þrjá mánuði. Tugum risastórra vinnu- véla hefur verið rænt og virðast þær hreinlega gufa upp. Vinnuvélar hverfa í Moskvu Rússneskur KamAZ-trukkur Þeim hefur verið stolið í massavís undanfarið. setning og hæðarlega gatna kem- ur til dæmis fram um leið og ekið er um götur sem við erum að gera. Tækið í bílnum tengist líka Trimble construction manager-skipulags- kerfinu þannig að ég sé strax hvar heppilegast er að losa um bíla eða tæki ef vöntun er. Við erum líka komnir með skanna sem mæla á skömmum tíma yfirborð lands mun nákvæmar en áður hefur verið hægt þannig að öll tæknivinna og úrvinnsla verður hraðari og betri en áður var,“ segir Karl Helgi hjá Klæðningu. asgeir@dv.is Fyrirtækið Klæðning getur með háþróuðu stýrikerfi fylgst með vinnuvélum sínum á skrifstofunni. Fyrirtækið er það fremsta í Evrópu á sviði þessarar tækni. Bylting Theodór er hæst ánægður með tæknina. Theodór Guðnason gröfumeistari hjá klæðningu. Skurðgrafainni á skrifstofu m yn d B ra g i Þ . j ó se fs so n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.