Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2008, Qupperneq 23
Ættfræði miðvikduagur 16. júlí 2008 23
afmælisbarn dagsinsTil
hamingju
með
afmælið
30 ára afmæli
n Þorgils Hörður Hallgrímsson Heiðarbraut 1, Blönduós
n kjartan ingi jónsson Hrauntungu 73, Kópavogur
n Þorbjörn Snorrason Andrésbrunni 18, Reykjavík
n Nína Björg Sæmundsdóttir Snorrabraut 36, Reykjavík
n Soffía Sigurlaug grímsdóttir Kleppsvegi 132, Reykjavík
n Hulda Halldórsdóttir Selvaði 1, Reykjavík
n kristi jo jóhannsdóttir Grænlandsleið 7, Reykjavík
40 ára afmæli
n Helga davids Stafafelli, Höfn
n Bjarney katrín ísleifsdóttir Bakkastöðum 165, Reykjavík
n anna rún ingvarsdóttir Suðurási 20, Reykjavík
n valborg Stefánsdóttir Grænlandsleið 21, Reykjavík
n guðjón karlsson Goðasölum 13, Kópavogur
n leszek dariusz reczek Laugarási, Egilsstaðir
n lárus Borgar H. Ólafsson Vallarhúsum 27, Reykjavík
n Þórarinn Sigurður andrésson Túngötu 19, Seyðisfjörður
n Skarphéðinn Eiríksson Nönnustíg 14, Hafnarfjörður
n Benóný jónsson Öldugerði 13, Hvolsvöllur
n Ásta Sigurðardóttir Hraunbæ 102f, Reykjavík
n rafnar karl rafnarsson Hálsaþingi 4, Kópavogur
n Hólmfríður guðmundsdóttir Fjallalind 63, Kópavogur
n viðar marinósson Heiðarlundi 6g, Akureyri
50 ára afmæli
n Carmencita Elago almagro Ásvegi 8, Dalvík
n Stanislaw marian gwozdz Grettisgötu 69, Reykjavík
n albinas mikoliunas Háaleitisbraut 119, Reykjavík
n Henryk jan domzalski Strandgötu 86b, Eskifjörður
n íris Hera Norðfjörð jónsdóttir Hraunbæ 156, Reykjavík
n Þórður Pálsson Háabergi 35, Hafnarfjörður
n ragnheiður Thorarensen Smáratúni 10, Reykjanesbær
n gísli már jónsson Glitvöllum 36, Hafnarfjörður
n Þór kristmundsson Gvendargeisla 162, Reykjavík
n Hólmfríður Óladóttir Hraunbæ 106, Reykjavík
n guðmundur antonsson Digranesheiði 14, Kópavogur
n Sigurbjörg Níelsdóttir Kringlumýri 31, Akureyri
n Halldór gunnar Ólafsson Goðheimum 5, Reykjavík
60 ára afmæli
n gyða guðmundsdóttir Langholtsvegi 132, Reykjavík
n Þorsteinn Broddason Lágholti 2b, Mosfellsbær
n ragnheiður gunnarsdóttir Starengi 36, Reykjavík
n louisa Biering Fljótaseli 22, Reykjavík
n Stefán Hallgrímsson Brautarholti 22, Reykjavík
n Ásgeir Þorvaldsson Kirkjuvegi 14, Vestmannaeyjar
n Bergþóra Bergmundsdóttir Urðarvegi 39, Ísafjörður
n Þorbjörn garibaldason Rekagranda 2, Reykjavík
n kristinn guðmundsson Glósölum 7, Kópavogur
n anna kristín arngrímsdóttir Skólavörðustíg 12, Reykjavík
n jón Steingrímsson Krummahólum 4, Reykjavík
70 ára
n júlíus Bergsson Stórholti 9, Akureyri
n Sigurður magnússon Skipasundi 49, Reykjavík
n Einar Bjarni Bjarnason Asparfelli 12, Reykjavík
n magnús Sigurðsson Skipholti 64, Reykjavík
n Björn Hermannsson Holtagerði 30, Kópavogur
n Ástmar Ólafsson Bólstaðarhlíð 68, Reykjavík
n jenný Sólborg Franklínsdóttir Garðabraut 45, Akranes
n gunnar m guðmannsson Asparlundi 1, Garðabær
n Ásdís kristjánsdóttir Skólagarði 10, Húsavík
75 ára afmæli
n Oddgeir ísaksson Melgötu 6, Grenivík
n guðni Þorsteinsson Æsufelli 4, Reykjavík
n Björn Þorkelsson Lyngholti 9, Akureyri
n jón Eyfjörð Sæmundsson Norðurgarði 13, Reykjanesbær
n kristveig jónsdóttir Grænumýri 20, Akureyri
n Stefán Sigurður Árnason Þórustöðum 1, Akureyri
n jón Sigurðsson Óðinsgötu 17a, Reykjavík
n inga Bjarney Óladóttir Ásvöllum 2, Grindavík
n jóhanna dýrleif Skaftadóttir Flyðrugranda 14, Reykjavík
80 ára afmæli
n Stefán Friðbjarnarson Gullsmára 11, Kópavogur
n kristín Tryggvadóttir Bakkaflöt 12, Garðabær
85 ára afmæli
n karl g Sigurbergsson Suðurgötu 26, Reykjanesbær
n Sigríður Sigursteinsdóttir Dvalarheimilinu Höfða,
Akranes
90 ára afmæli
n Hafliði Þórir jónsson Njálsgötu 1, Reykjavík
n ragnhildur Sigurjónsdóttir Skólabraut 3, Seltjarnarnes
n Ólöf Snælaugsdóttir Guttormshaga, Hella
Þorkell SigurbjörnSSon
TÓNSkÁld
Bragi Þór Valsson
TÓNliSTarmaður
Bragi fæddist á
Laugum í Dalasýslu en
ólst upp í Reykjavík.
Hann var í Seljaskóla og
Foldaskóla, lauk stúd-
entsprófi frá MH 1997,
lauk B.Sc.-prófi í tölv-
unarfræði frá HR 2001,
stundaði nám í klar-
inettuleik og söng við
Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar, og lauk
MM-prófi í kórstjórn frá
Florida State University
í Bandaríkjunum 2004.
Bragi söng með
Rokklingunum 1989-91, syngur
mikið við jarðarfarir og brúð-
kaup og ýmsar aðrar athafnir og
hefur haldið einkatónleika, hér á
landi, í Bandaríkjunum og í Suð-
ur-Afríku. Hann hefur stjórnað
fjölda kóra og stjórnar nú Barna-
kór Lindaskóla og Kór Borg-
arholtsskóla. Þá kennir hann
tölvufræði við Mennta-
skólann Hraðbraut og
rekur fyrirtækið Perlu-
kafarann ehf. ásamt eig-
inkonu sinni.
Fjölskylda
Eiginkona Braga er
Christina van Devent-
er, f. 23.2. 1984, fram-
kvæmdastjóri Perlu-
kafarans og nemi.
Systur Braga eru Jó-
hanna Ósk Valsdóttir, f.
15.12. 1972, söngkona;
Eva Huld Valsdóttir, f.
9.9. 1975, kennari.
Foreldrar Braga eru Valur
Óskarsson, f. 19.1. 1946, kennari
í Reykjavík, og Ásdís Bragadóttir,
f. 17.6. 1950, framkvæmdasjtóri
Skáksambands Íslands.
Bragi tekur á móti gestum í
lautarferð í Grasagarðinum í dag
milli kl. 19.00 og 21.00.
Pia Aaberg
NEmi Og HúSmÓðir
Pia fæddist í bæn-
um Gavlej í Svíþjóð
sem er um það bil
hundrað kílómetra fyrir
norðan Stokkhólm og
ólst þar upp. Hún var í
barnaskóla í Gavle og
framhaldsskóla og lauk
þaðan stúdentsprófi.
Pia flutti til Íslands
árið 1998 og hefur átt
þar heima lengst af
síðan.
Pia stundaði barna-
gæslu á Hofsósi í hálft
ár eftir að hún kom
hingað til lands. Hún vann í
Bernhöftsbakaríi við Bergstaða-
stræti í hálft ár, var matráður
fyrir börn með fæðuofnæmi
við skóla í Svíþjóð um skeið,
vann hjá LK Bennett í London
skamma hríð en hóf störf hjá
Íslandsbanka í Reykjavík árið
2000 og starfaði þar til 2008.
Fjölskylda
Eiginmaður Piu er
Ásgrímur Jónsson, f.
16.5. 1974, tæknimaður
hjá Icecom í Garðabæ.
Börn Piu og Asgríms
eru tvíburarnir Indiana
Ásgrímsdóttir, f. 17.8.
2006; Ísmar Ásgríms-
son, f. 17.8. 2006.
Systkini Piu eru Nina
Aaberg, f. 21.4. 1980,
lagermaður í Svíþjóð;
Emil Aaberg, f. 18.12.
1990, nemi í Svíþjóð.
Foreldrar Piu eru
Áke Aaberg, f. 1952, fram-
kvæmdastjóri við dráttarbáta í
Gavle í Svíþjóð, og Laila Biss-
man, f. 1949, starfsmaður við
hjálpartækjaþjónustu í Gavle.
Pia var með afmælispartí sl.
laugardag en verður með heitt
á könnunni fyrir þá sem kíkja í
heimsókn.
30
ára
í dag
Bjarney Katrín Ísleifsdóttir er fertug í dag:
Langar í skíðabúnað í afmælisgjöf
„Ég ætla að halda heljarinnar garðpartí
og grilla fyrir alla fjölskylduna,“ segir Bjarn-
ey Katrín Ísleifsdóttir sem er fertug í dag.
Bjarney á sjö systkini og maðurinn hennar á
líka stóra fjölskyldu svo þau eiga von á mjög
mörgum. „Þegar ég varð 35 ára hélt ég alvöru
garðpartí með gítar, söng og látum, það var
rosa fjör. Núna verður þetta öllu rólegra því
veislan verður um miðjan daginn og krakk-
arnir eru velkomnir líka,“ segir Bjarney. „Ég
finn reyndar meira fyrir því í seinni tíð að
fólk er út úr bænum þegar ég á afmæli, það
er eini gallinn við að eiga afmæli á sumrin,“
segir hún.
Bjarney ólst upp í Reykjavík og gekk í
Fellaskóla í Breiðholtinu. Aðspurð segist hún
vera ánægð með að verða fertug: „Ég er mjög
sátt við að verða fertug, það er bara gaman,“
segir Bjarney sem starfar sem leiðbeinandi á
leikskóla. „Ég er í sumarfríi núna en auðvitað
hefði líka verið skemmtilegt að halda upp á
afmælið með krökkunum,“ segir hún.
Bjarney hefur ekki fengið neinar afmælis-
gjafir ennþá en á frekar von á því: „Ég er búin
að vera að skjóta því að fólki að mig langi til
að koma mér upp nýju skíðadressi. Ég skellti
mér nokkrum sinnum með strákunum mín-
um í fjallið í vetur og það var æðislegt. Það er
ofsalega dýrt að leigja svona búnað svo mig
langar að eignast hann. Ég hef ekki skíðað
mikið síðan ég var unglingur en það er gam-
an að geta fundið eitthvað sameiginlegt
áhugamál með strákunum,“ segir Bjarney full
tilhlökkunar fyrir afmælisdaginn. liljag@dv.is
Þorkell fæddist í Reykjavík og ólst þar upp.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1957, stund-
aði nám í Tónlistarskólanum í Reykjavík, lauk
BA-prófi frá Hamline University í Minnesota í
Bandaríkjunum 1959, lauk MM-prófi frá Uni-
versity of Illinois í Bandaríkjunum 1960 og
prófi í hljómsveitarstjórn frá Académie Int-
ernationale de Musique í Nizza í Frakklandi
1959. Þá var Þorkell á sumarnámskeiðum í
Kurse fÿr neue Musik 1962 og í Tanglewood í
Bandaríkjunum 1964.
Þorkell er í hópi virtustu tónskálda þjóðar-
innar en hann hefur samið um þrjú hundruð
tónverk. Hann hefur verið kennari við Tón-
listarskólann í Reykjavík í píanóleik, tónfræði
og tónlistarsögu frá 1961. Þá hefur hann séð
um ýmsa tónlistarþætti fyrir Ríkisútvarpið,
allt frá 1962.
Þorkell var formaður Musica Nova 1964-
67, formaður stjórnar Íslenskrar tónverka-
miðstöðvar 1968-81 og 1987-89, var ritari
Tónskáldafélags Íslands 1969-83 og formað-
ur þess 1983-87, sat í stjórn Félags íslenskra
tónlistarmanna og var forseti Bandalags ís-
lenskra listamanna 1982-86.
Fjölskylda
Þorkell kvæntist 26.12. 1959 Barböru Jane,
f. 17.10. 1937, kennara og MA í kennslufræð-
um. Foreldrar hennar voru George Powell,
bóndi í Waseca í Minnesota í Bandaríkjun-
um, og k.h., Gladys F. Reineke húsfreyja.
Börn Þorkels og Barböru eru Mist Barbara,
f. 2.8. 1960, tónskáld og deildarstjóri Tónlist-
ardeildar Listaháskóla Íslands, gift Sigfúsi
Nikulássyni, lækni og eru börn þeirra Guð-
rún Mist, f. 14.7. 1986, Þorkell Helgi, f. 17.7.
1988, og Sindri, f. 22.5. 1995; Sigurbjörn, f.
13.9. 1966, verkfræðingur og framkvæmda-
stjóri hjá Lehman Brothers í Asíu, búsettur í
Hong Kong, kvæntur Aðalheiði Magnúsdótt-
ur hönnuði og eru börn þeirra Þorkell, f. 2.11.
1995, Magnús, f. 15.10. 1997, Viktor Karl, f.
12.12. 2000, og Gunnhildur, f. 10.4. 2003.
Systkini Þorkels: Gíslrún, f. 23.9. 1934,
kennari, gift Kjartani Ólafssyni rithöfundi og
fyrrv. ritstjóra Þjóðviljans og alþm.; Rann-
veig, f. 28.2. 1936, hjúkrunarfræðingur, gift
Bernharði Guðmundssyni, fyrrv. skólastjóra
Skálholtsskóla; Árni Bergur, f. 24.1. 1941, d.
17.9. 2005, prestur í Áskirkju, var kvæntur
Lilju Garðarsdóttur sem er látin; Einar, f. 6.
5. 1944, prófessor í guðfræði við HÍ, kvæntur
Guðrúnu Eddu Gunnarsdóttur; sóknarpresti
á Þingeyri; Karl, f. 5.2. 1947, biskup Íslands,
kvæntur Kristínu Guðjónsdóttur húsmóður;
Björn, f. 27.6. 1949, d. 2003, prestur í Lyngby
í Danmörku, var kvæntur Lilian Sigurbjörns-
son; Gunnar, f. 3.8. 1951, rekstrarhagfræðing-
ur í Svíþjóð, kvæntur Ingelu Sigurbjörnsson.
Foreldrar Þorkels: Sigurbjörn Einarsson, f.
30.6. 1911, biskup, og k.h., Magnea Þorkels-
dóttir, f. 1.3. 1911, d. 10.4. 2006, biskupsfrú.
Ætt
Sigurbjörn er sonur Einars, b. í Lágu-Kot-
ey í Meðallandi, síðar á Iðu í Biskupstung-
um Sigurfinnssonar, bústjóra í Háu-Kotey
Sigurðssonar, b. í Háu-Kotey Jónssonar, b. á
Þverá á Síðu Sverrissonar, bróður Þorsteins,
afa Jóhannesar Kjarvals. Móðir Sigurbjarn-
ar var Gíslrún, systir Ingibjargar, móður Að-
alheiðar Bjarnfreðsdóttur alþm. Gíslrún var
dóttir Sigurbergs, b. í Háu-Kotey Einarsson-
ar, b. í Bakkakoti Magnússonar. Móðir Einars
var Ingibjörg Gísladóttir, systir Ragnhildar,
langömmu Sveins, afa Sveins Runólfssonar
landgræðslustjóra. Móðir Gíslrúnar var Árný
Eiríksdóttir, systir Eyjólfs, langafa Hilmars
Jónssonar stórtemplars.
Magnea var dóttir Þorkels, sótara í Reykja-
vík Magnússonar, b. í Eystra-Hrauni í Land-
broti Þorkelssonar, bróður Jóns á Seglbúðum,
afa Jóns Helgasonar, fyrrv. ráðherra. Móð-
ir Magnúsar var Guðríður Magnúsdóttir, á
Kirkjubæjarklaustri Jónssonar, hreppstjóra
á Kirkjubæjarklaustri Magnússonar, föður
Þórunnar, ömmu Jóhannesar Kjarvals. Móð-
ir Guðríðar var Kristín Teitsdóttir, systir Matt-
hildar, langömmu Guðrúnar, móður Péturs
Sigurgeirssonar biskups.
Móðir Magneu var Rannveig Magnúsdótt-
ir, b. á Fossi Þorlákssonar, b. í Hörgslandskoti
Bergssonar, pr. á Prestbakka á Síðu Jónssonar.
Móðir Þorláks var Katrín Jónsdóttir, eldprests
Steingrímssonar.
30
ára
í dag