Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2008, Side 29
Fólkið MIÐVIKUDAGUR 16. júlí 2008 29
Hárgreiðslu-
maður ársins
„Þetta á víst að vera voða mikill heiður hérna
í Hollandi. Allir stærstu og frægustu hárgreiðslu-
menn landsins taka þátt í þessari keppni,“ seg-
ir Gísli Ari Hafsteinsson hárgreiðslumaður sem
rekur hárgreiðslustofuna Bibob í Maastricht í
Hollandi þar sem hann hefur verið búsettur síð-
astliðin 10 ár.
Gísli var nýlega valinn hárgreiðslumaður árs-
ins í Hollandi í tveimur flokkum. Annars vegar
fyrir avant-garde hárgreiðslu og hins vegar fyr-
ir herrahárgreiðslu. Gísli hreppti einnig annað
sætið fyrir dömugreiðslu. Gísli var tilnefndur í
níu flokkum.
Það var avant-garde greiðsla Gísla sem vakti
athygli úti um allan heim eftir að rapparinn
Kanye �est f�allaði um hana á heimasíðu sinni,
en Kanye er þekktur fyrir að leita uppi nýstárlega
hönnun, sama á hvaða formi er. Gísli segist hafa
heyrt af ummælum Kanyes en ekki séð það s�álf-
ur.
Hárgreiðsla er ekki það eina sem Gísli Ari tek-
ur að sér. „Ég flutti til Spánar fyrir tveimur árum
í l�ósmyndanám,“ segir Gísli sem lagði einnig
stund á hárgreiðslunám á Spáni. Í dag samein-
ar hann l�ósmyndunina og hárgreiðslu sem og
förðun. Allt gerir hann þetta s�álfur. „Ég er að
vinna fyrr nokkur fyrirtæki hérna. Sé um auglýs-
ingal�ósmyndun fyrir fatamerki hér í Hollandi
og allar auglýsingar fyrir verslanakeð�u. Erfiðast
er að reyna að koma sér áfram í þessum bransa.
Þetta er pínulítið eins og að reyna fyrir sér sem
leikari eða söngvari. Þegar maður er orðinn nafn
í bransanum getur maður slappað af,“ segir hann
og hlær.
Gísli Ari er fæddur og uppalinn í Grindavík.
„Ég flutti til Reyk�avíkur þegar ég var 16 ára og fór
þá að vinna í fatabúðum á borð við K�allarann,
Flóna og Saut�án. Síðan flutti ég til Barcelona
og lærði hárgreiðslu h�á Llongueras, þekktasta
hárgreiðslumanni Spánar,“ segir Gísli sem hefur
heldur betur lifað ævintýralegu lífi.
Þó svo að hann búi í lítilli borg í Hollandi
er hann ávallt umvafinn Íslendingum.
Kargóvélar �celandair lenda skammt
frá Gísla og segir hann íslenska
flugvirk�a og flugmenn leita
mikið til sín. „Síðan kemur
mikið af fótboltastrákum
sem spila á þessu svæði.
Allar dömurnar sem
koma vil�a ekta íslensk-
ar strípur. En þær er ekki
hægt að fá á hollensk-
um stofum,“ segir Gísli
hlæ�andi.
hanna@dv.is
Gísli Ari HAfsteinsson:
Ungstirnið Bryndís Jakobsdóttir,
betur þekkt sem Dísa, er að legg�a
upp í sína fyrstu tónleikaferð um
landið. Dísa gaf nýverið út sína
fyrstu plötu sem hefur fengið góða
dóma. Tónleikaferðin hefst í �ðnó
með útgáfutónleikum og stopp-
ar hún síðan á LungA á Seyðis-
firði, Græna hattinum á Akureyri,
Gamla bænum í Mývatnssveit,
Bræðslunni á Borgarfirði eystra
og endar síðan aftur í Reyk�avík
á �nnipúkanum um verslunar-
mannahelgina. Í haust ætlar Dísa
svo að halda til Danmerkur að
spila á nokkrum tónleikum en hún
spilaði þar nýlega á tónlistarhátíð-
inni Spot í Árósum.
Rapparinn Kanye West
hrósar íslenska hár-
greiðslumanninum Gísla
Ara Hafsteinssyni fyrir
nýstárlega hárgreiðslu á
heimasíðu sinni sem er
víðlesin um heim allan.
Gísli Ari hreppti nýlega
hin virtu Coiffure-verð-
laun í Hollandi sem hár-
greiðslumaður ársins.
Hann reynir nú fyrir sér í
ljósmyndabransanum í
Hollandi og virðist allt
vera að ganga upp hjá
þessum hógværa hár-
greisðlumeistara.
í Hollandi
Lag með íslensku hl�óm-
sveitinni Sigur Rós er að finna í
ný�asta Prince Of Persia-tölvu-
leiknum sem væntanlegur er
í lok ársins. Sigur Rósar-lagið
Sæglópur, af plötu sveitarinnar
Takk, er leikið undir í ný�u kynn-
ingarmyndbandi fyrir leikinn.
Fyrirtækið sem framleiðir leik-
inn, Ubisoft, hefur greinilega
ágætis smekk fyrir tónlist því í
leiknum Assasins‘s Creed sem
kom út fyrir ekki svo löngu mátti
finna lagið Teardrop með Mass-
ive Attack.
Sigur Rós er ekki einu Íslend-
ingarnir sem teng�ast leiknum
Prince of Persia en eins og frægt
er orðið leikur Gílsi Örn Garð-
arsson illmennið í væntanlegri
mynd byggðri á leiknum. Það
er ofurframleiðandinn Jerry
Bruckheimer sem f�ármagnar
myndina en hann er frægastur
fyrir stórmyndir eins og Pirates
of the Caribbean, Bad Boys og
Top Gun.
Ný�a Prince Of Persia-leiks-
ins er beðið með mikilli eftir-
væntingu enda prinsinn einn sá
flottasti í tölvuleik�aheiminum.
Hann er væntanlegur um �ólin
2008. mikael@dv.is, asgeir@dv.is
sigur rós í tölvuheimi
Hljómsveitin siGuR Rós Á lAG í nýRRi stiKlu fyRiR leiKinn PRinCe of PeRsiA
Sigur Rós lagið
sem notast er við er
af plötunni Takk.
dísa fer
Hringinn
„stage
dive“ Hjá
stóra
Egill Gillzenegger, eða Stóri G eins
og hann kallar sig þessa dagana, rauf
tæplega tvegg�a vikna þögn á blogg-
síðu sinni í fyrrakvöld. Þar lýsir hann
meðal annars yfir ánæg�u sinni með
þá tvo plötudóma sem birst hafa um
plötu Merzedes Club, dóma upp á
þr�ár st�örnur h�á Fréttablaðinu og
hálfri betur h�á Mogganum. Þá segir
Gillzarinn frá því þegar hann tók sitt
fyrsta „stage dive“ á hl�ómsveitarferl-
inum á balli sem MC og Sálin héldu á
Blönduósi um síðustu helgi. „Það er
fáránlega gaman að láta fólk halda á
sér og synda um á fólki,“ segir Stóri á
síðunni.
Avant-garde
Þessi greiðsla
Gísla hefur
vakið mikla
eftirtekt úti um
heim allan.
Gísli Ari Hafsteinsson
Rekur hárgreiðslustofuna Bibob í
Maastricht í Hollandi ásamt því að
sjá um auglýsingaherferðir fyrir
frægt fatamerki í Hollandi sem og
verslanakeðju þar í landi.
Kanye West
Heillaður af greiðslum Gísla Ara Hafsteinssonar.