Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Qupperneq 4
Miðvikudagur 24. SepteMber 20084 Fréttir InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Örn Árnason leikari er ósáttur við að fækka eigi bílastæðum í götunni hans: Vilja stæðin frá svefnherbergisglugganum „Ég var beðinn um álit hvort mér fyndist gott að láta fækka stæðum, mér fannst það ekki,“ segir Örn Árna- son leikari. Anna Dóra Helgadóttir, sem á íbúð við Bröndukvísl í Reykja- vík, hefur óskað eftir því við borg- ina að færa fjögur bílastæði sem eru undir svefnherbergisglugga henn- ar. Þetta vill hún að verði gert vegna þess að bílaumferð um stæðin truflar nætursvefn í svefnherberginu. Örn segir götuna þrönga og erfitt sé að skera niður í bílastæðamálum. „Þegar það eru afmæli er lagt uppi á götuhornum og úti um allt, þá eru engin stæði við húsin. Ég er ekkert að leggjast gegn því að fólkið fái næt- urfrið, ég hlýt að hugsa um heildar- myndina,“ segir Örn. Hann bend- ir einnig á að fólk noti stæðin undir fellihýsi, hjólhýsi og ýmislegt fleira. Skipulagsráð Reykjavíkur hef- ur sent íbúum í nágrenninu bréf svo þeir geti lýst skoðunum sínum á hvort færa eigi bílastæðin sem eru undir glugganum á annan stað í göt- unni. „Ef þau verða færð á svæð- ið hér fyrir neðan fara þau bara fyr- ir framan stofugluggann hjá næsta nágranna, þetta er svolítið þrútið að finna stæði fyrir bílana. Það gæti orð- ið fjandi erfitt að komast út úr göt- unni,“ segir Örn. Allir aðilar sem gerðu athuga- semdir við grenndarkynningu mót- mæltu fækkun bílastæða og færðu fyrir því ýmiss konar rök. Fundað var um málið á fundi skipulagsráðs 16. september og er lagt til að fyrir- komulagi bílastæða verði breytt og gerð verði miðeyja (tvö stæði) milli bílastæða til að koma til móts við óskir íbúa Bröndukvíslar 18. Einnig er gerð tillaga að því að tvö ný stæði verði við enda þessara almennu bílastæða. Þannig mun heildar- fjöldi almennra bílastæða við botn- langa Bröndukvíslar verða óbreytt- ur frá því sem var eða tíu almenn bílastæði. Örn Árnason einn margra íbúa sem eru ósáttir við breytingu á deiluskipulagi þar sem fækka á bílastæðum í götunni. „Við erum dauðhræddar allan sólarhringinn og þorum varla að fara að sofa. Við verðum að fá hjálp,“ segir Cristina Asangono Mba, stúlka frá Miðbaugs-Gíneu í Afríku, sem er búsett hér á landi. Hún segir að í byrjun septemb- er hafi þrír karlmenn ruðst inn á heimili hennar og ráðist á hana og þrjár sambýliskonur hennar. „Þeir hótuðu okkur með hníf- um og rústuðu íbúðinni. Síð- an stálu þeir tölvu, peningum, öllum skilríkjunum okkar og vegabréfunum líka.“ Fá morðhótanir Cristina og sambýliskon- ur hennar leituðu til lög- reglunnar í framhaldinu en henni finnst rannsókn máls- ins ganga hægt. „Lögreglan gerir ekkert til að hjálpa okk- ur. Við erum varnarlausar.“ Að sögn Cristinu telur hún mennina hafa verið á vegum afrískrar konu sem hún þekkir lítillega. „Hún vill að við förum aftur heim til okkar. Við höfum samt ekkert gert henni. Ég held að henni sé bara illa við að hérna séu aðrar svartar kon- ur. Hún heldur að hún sé einhver prinsessa.“ Eftir árásina hafa þær fengið símtöl og sms frá konunni þar sem hún krefst þess að þær borgi hundrað þúsund krónur fyrir hvert vegabréf. Crist- ina vinnur á Landspítal- anum og launin eru ekki há. „Við eigum ekki svona mikla peninga. Hún seg- ist ætla að láta drepa okk- ur ef við borgum ekki eða förum burt.“ Án sjúkratryggingar Marcelina Felicid- ad Obono er ein sam- býliskvenna Cristinu. Hún segist hafa verið með barni en misst fóstur eft- ir árásina og telur henni um að kenna. Marcelina er ekki íslenskur ríkisborgari og hefur enga sjúkratrygg- ingu. Hún segist þurfa á læknishjálp að halda en hafa ekki efni á að borga fyrir hana hér. Því þurfi hún vegabréfið sitt til að kom- ast til Spánar þar sem hún hefur verið búsett, og leita læknis þar. Marcelina lá mest fyrir þegar blaðamann bar að garði og virtist heldur lasleg. Eftir árásina neyddist hún til að fara á spítala og þarf að greiða tugi þúsunda fyrir heimsóknina. Neitar sök Dóttir Franciscu Isabel Angue var búsett með þeim stúlkum en hún er nú farin aftur til Spánar. Hún var þó eitt fórnarlamb árásarinnar að sögn móður hennar en þar sem vegabréfinu hennar var ekki stolið ákvað hún að fara af landi brott. Cristina hefur hins vegar engan áhuga á að flytja burt. Henni þyk- ir gott að búa á Íslandi en finnst óásættanlegt að þurfa að lifa í stöð- ugum ótta. DV ræddi einnig við íslenskan vin Cristinu sem hefur aðstoðað þær við að vekja athygli lögreglu á málinu þar sem hann þekkir kerfið hér betur en stúlkurnar. Lengi vel fannst honum lögreglan skella við skollaeyrum en segir hana nú vera farna að taka við sér. Í samtali við DV neitar konan, sem stúlkurnar bera þessum sök- um, að tengjast árásinni á nokk- urn hátt en svo virðist sem illindi hafi verið þeirra á milli í einhvern tíma. Hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu fæst staðfest að stúlkurnar hafi leitað til lögreglu vegna máls- ins en ekkert fæst uppgefið um efn- isatriði þess. Fjórar konur frá Afríku segjast hafa orðið fyrir hnífaárás á heimili sínu í byrjun september og rekja fósturlát einnar þeirra til árásarinnar. Cristina Asangono Mba, ein kvennanna, segir að vegabréfum þriggja þeirra hafi verið stolið af árásarmönn- unum og nú þurfi þær að borga lausnargjald til að fá þau aftur. Lögreglan hefur málið til rannsóknar. MISSTI FÓSTUR EFTIR HNÍFAÁRÁS ErlA HlyNsdóttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is óttaslegnar Francisca isabel angue, Cristina Nfono Mba, Marcelina Felicidad Obono og Cristina asangono Mba. Þær segjast búa við stöðugan ótta eftir að ráðist var inn á heimili þeirra en lögreglan bregðist seint og illa við. ógnað konurnar segja að þeim hafi verið ógnað með hnífum við árásina. Hnífakastari enn til rannsóknar „Við reiknum með að ljúka rannsókn í þessari viku,“ seg- ir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu, um mál manns sem grunaður er um að hafa beitt þrjú börn sín hrottalegu ofbeldi og notað hníf á eitt þeirra. Í samtali við DV í vikunni sagði Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, að hann hefði aldrei áður heyrt um mál þar sem eggvopnum væri beitt á börn. Þetta væri því einstakt í sögu barnaverndar á Íslandi ef rétt reynist. Alcan vill skaðabætur Fyrirtaka í skaðabótamáli Alcan á Íslandi gegn olíufélög- unum Olís, Keri og Skeljungi fór fram í gær. Samkvæmt matsgerð sem lög var fyrir í málinu í upphafi mánaðarins nam tjón Alcan vegna sam- ráðs stóru olíufélaganna um 251 milljón króna á verðlagi áranna 1993-2001. Málið er höfðað gegn olíufélögunum á grundvelli þess að Alcan var eitt þeirra félaga sem nefnd voru í skýrslu Samkeppnis- stofnunar um samráð olíu- félaganna. Hæstiréttur hefur áður dæmt olíufélögin til að greiða Reykjavíkurborg og Strætó samanlagt tæpar 80 milljónir króna í bætur. Ingibjörg Sólrún fékk aðsvif Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fékk aðsvif og var flutt til skoðunar á spítala í New York í gær. Hún fékk að fara aftur heim á hótel að lokinni læknisskoðun. Ingibjörg Sólrún er stödd í New York ásamt Geir H. Haarde forsætisráðherra þar sem þau taka þátt í svokallaðri ráðherraviku allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna dagana 22. – 27. september. Þar munu ráðherrarnir hitta þjóðarleiðtoga og aðra ráðamenn sem sækja þingið, ræða samskipti ríkja og tala fyrir framboði Íslands til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Stúlka beit lögregluþjón Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt stúlku í tveggja mánaða fangelsi fyrir árás á lögregluþjón. Stúlkan, sem var sextán ára þegar árásin var gerð, var ákærð fyrir að bíta lögregluþjóninn í handlegg í nóvember í fyrra. Lögreglu- þjónninn hlaut mar á hand- legginn fyrir vikið. Stúlkan játaði brotið en hún hefur ekki áður gerst sek um refsiverða háttsemi. Þótti dómara hæfi- leg refsing tveggja mánaða fangelsi og er dómurinn bund- inn skilorði til tveggja ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.