Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 24. SepteMber 2008 15Umræða Við erum gjafmild þjóð og búum við gjafmild stjórnvöld. Við gefum fisk- inn í sjónum og fossana í ánum og hitann í jörðinni og rafmagnið í ál- verunum og bankana á horninu og margt annað til. Okkur finnst yfirleitt réttast að rúlla þessu sem flestu upp í einn stóran vafning og afhenda sömu fáu aðilunum. Um leið og við rúll- um finnst okkur líka rétt að tala sem minnst um það hver fær hvað og hvernig. Mörgum árum seinna hóstum við kannski einhverju upp um að ef til vill hafi ekki verið alveg rétt að málum staðið. Svo höldum við áfram eins og ekkert hafi í skor- ist. Að græða á þögninni Á meðan við kaffærum sjálf okk- ur í daglegum fréttum um hvern- ig hugsanlega sé hægt að taka upp evru án ESB-aðildar og hvern- ig hugsanlega sé ekki hægt að taka upp evru án aðildar og hvernig þetta sé nú allt saman hugsanlega í deig- lunni þá erum við sísvona búin að setja íslenska heilbrigðisþjónustu á markað. Samningarnir eru tilbún- ir, græna ljósið er komið. Í þögninni bíður einkagróð- inn og brosir. Síðastliðið haust lagði þingflokk- ur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fram tillögu þess efnis að fram færi ítarleg og fagleg rannsókn á áhrifum og afleiðingum mark- aðsvæðingar samfélagsþjónust- unnar hérlendis. Vitnað var í fjölda erlendra rannsókna og lagt til að enginn gæti tapað á slíkri úttekt hér heima áður en anað væri út í frekari einkavæðingu. Allir hlytu að verða einhvers vísari og betur að sér um svo veigamiklar breytingar á sam- félagsgerðinni – líka þeir sem halda uppi merkjum markaðsvæðingar í einu og öllu. Málið var svæft í nefnd. Fjármunum vel varið? Fyrsti stóri samningur ríkisins við einkaaðila í heilbrigðisþjón- ustu var undirritaður árið 2000. Gerður var 25 ára samningur við Öldung hf. (Íslenskir aðalverktak- ar og Securitas) um 11,8 milljarða króna verðtryggða greiðslu fyr- ir að reka hjúkrunarheimilið Sól- tún fyrir 92 einstaklinga. Árið 2001 voru daggjöld 14% hærri til Sóltúns en til hjúkrunarheimila sem rekin voru sem sjálfseignarstofnanir án arðsemiskröfu. Sóltún fékk 20.000 krónur á dag á hvern sjúkling á með- an Hrafnista/DAS fékk 13.000 krón- ur. Þetta mál snýst ekki um góðvild í garð vistmanna heldur hvernig góð- vild skattborgarans er dreift mis- jafnlega. Fé okkar skattborgara var og er notað til að borga einka- aðilum meir en öðrum. Síð- ar var krafist rannsóknar á því hvort Sóltún hefði of- metið svokallaða þjón- ustuþyngd sjúklinga sinna og þar með fengið enn meira fjármagn úr sameiginlegum sjóðum landsmanna. Fyrir ekki svo alls löngu töluðu fylgismenn einkavæð- ingarinn- ar um stórfengleika Sóltúns. Nú roðna þeir og blána þegar á málið er minnst, en það breytir engu um árin verðtryggðu 25. Þau voru heldur ekki lengi að finna nýtt flaggskip, stjórnvöldin gjafmildu. Heilsuverndarstöðin ehf. kom til sögunnar. Á sínum tíma var tilboði Heilsuverndarstöðvarinnar ehf. tekið um rekstur athvarfs fyrir fyrrverandi skjólstæðinga Byrgisins þrátt fyrir að vera með mun hærra tilboð en SÁÁ með sína áratuga reynslu af áfengis- og vímuefna- meðferð. Þótt hún hafi tútnað út yfir væntingum um áframhaldandi feita bita virðist Heilsuverndarstöðin ehf. eiga í erfiðleikum og stóð með- al annars ekki í skilum með launa- tengd gjöld starfsmanna. Ætli einkavinir komi til bjargar, nú eða bara við skattborgarar? Ég veit ekki með ykkur en ég hefði gjarnan viljað fá ítarlega, alvöru úttekt á raunveru- leika einkavæðing- ar á Íslandi í stað síendurtekinnar klisju um öflin góðu sem ku leysast úr læðingi við „einka- framtakið“. Erum við ekki orðin pínulítið þreytt á gjafmildinni á okkar kostnað? Hver er maðurinn? „kjartan Jón bjarnason.“ Hvað drífur þig áfram? „ekkert helvítis hálfkák.“ Hvar ertu uppalinn? „vestur á fjörðum.“ Við hvað starfar þú? „Ég er verkstæðisformaður hjá víkurvögn- um. Ég vinn við að standsetja og breyta og laga þessi hús.“ Hvernig er salan í hjólhýsum núna? „bara fín. Það er nóg að gera hjá okkur.“ Eru Íslendingar upp til hópa nægjusamir? „tja... “ Hvernig er lífið í hjólhýsinu? „Flott. bara fínt og kósí. Maður skellir einstaka dvd í og hefur það gott.“ Hvernig taka börnin í þetta? „Þau eru ótrúlega jákvæð. Þær ættu að vera hetjur dagsins eða ársins frekar. auðvitað er þetta smá bögg og vesen en þetta hefst allt. við höfum líka íbúð niðri í miðbæ og ef það er eitthvert vesen þá fara bara allir upp í bíl og heim. Þetta er bara svona aukaskjól.“ Hversu mikið heldurðu að þú sparir með því að búa í hjólhýs- inu? „veit það ekki. Og það er ekkert markmiðið. Heldur að smíða sér hús.“ Hefur þú starfað sem smiður? „Ég stefni að því að fá starfsheitið snillingur í símaksránni. Maður er bara úr sveitinni og er búinn að gera allt. Smíða, pípa, breyta bátum, steikja hamborgara og vinna á bar svo fátt eitt sé nefnt. Maður getur eiginlega gert hvað sem er.“ Hvað ráðleggur þú fólki að gera sem er í svipaðri aðstöðu og þú, að byggja á þessum erfiðu tímum? „bara ekki gefast upp og halda áfram. klára dæmið.“ Óttast þú að spá Sigga storms rætist um að það frjósi í klósettinu? „Nei, nei, nei. Hann ætti að þekkja þetta. pabbi hans keypti nú hjólhýsi hjá okkur og hann ætti að vita betur.“ Hefur þú íhugað að bjóða Innlit- útlit til ykkar í hjólhýsið? „He, he, he. Nei, en þau eru búin að skoða nokkur hús hjá okkur uppi í vinnu.“ Gjafmildi á okkar kostnað dropAr FAllA Óvíst er hvort nokkur syngur í þeirri rigningu sem yfir landsmenn dynur þessa dagana. Jafnvel þó strætisvagnar séu betri kostur en gönguferð í veðri sem þessu eru þó eflaust margir sem kjósa heldur einkabílinn en að húka í strætóskýli í bið eftir vagninum. MYNd HEIðA HElgAdÓttIr Hvað finnst þér um Kompásþáttinn á mánudag? „Þetta er stærra vandamál en menn halda.“ guðMuNdur SIgurðSSoN 36 ára kerFiSStJÓri „Þetta er bara rugl og ég stend með þessu saklausa fólki sem er verið að ráðast á.“ SIgurður BIrkISSoN 33 ára alltMuligt-Maður „Þetta þarf algjörlega umræðu í þjóðfélaginu.“ SIgurður ÖNNuSoN 32 ára OlíubílStJÓri „Þetta er staðreynd og er algjörlega gagnleg umræða.“ HElgI HAukSSoN 60 ára StarFSMaður á plaNi Dómstóll götunnar kjArtAN jÓN BjArNASoN og fjölskylda kveinka sér ekki undan því að búa í hjólhýsi við framtíðar- h imili sitt. kjarta vinnur í húsi u þegar hann kemur heim úr vinnu. ástæðan er ekki sparnaður, segir kj rtan, heldur einfaldlega að hann vill klára húsið sem fyrst. Vill fá starfsheitið snillingur „vert að fjalla um þetta og það er orðið löngu tímabært.“ gÍSlI SIgurðSSoN 52 ára raFvirki kjallari mynDin maður Dagsins guðFrÍður lIljA grétArSdÓttIr alþingismaður skrifar „Samningarnir eru tilbúnir, græna ljós- ið er komið. Í þögn- inni bíður einka- gróðinn og brosir.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.