Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 24. SepteMber 2008 19Sviðsljós Tíkarlegar sTórsTjörnur Drew Barrymore og Kirsten Dunst mættust baksviðs á SNL um síðustu helgi. Báðar hafa verið að slá sér upp með leikar- anum Justin Long: Drew Barrymore og Kirsten Dunst voru ekki beint svalar baksviðs á Saturday Night Life á laugardaginn. Leikkonurnar voru víst ekki par sáttar hvor við aðra en sagan ku vera sú að Drew og leikarinn Justin Long voru eitt sinn að slá sér upp en nú nýlega hefur Kirsten Dunst gert sér dælt við gam- anleikarann. Drew var stödd við tökur á SNL til að fylgj- ast með bestu vinkonu sinni Cameron Diaz á meðan Kirsten var við tökur til að fylgj- ast með meðleikara sínum úr Spider-Man, James Franco, sem var kynnir þáttarins. Heimildarmaður tímartisins OK! segir að baksviðs eftir þáttinn hafa myndast vand- ræðaleg stemning: „Drew og Kirsten rákust hvor á aðra og voru mjög tíkarlegar. James Franco reddaði málunum með því að segja brandara og yfirgefa síðan svæðið með Kirsten á meðan Drew snéri sér beint að Cameron og fór að baktala Kirsten.“ Þetta voru hins vegar ekki einu stjörnurnar í salnum þetta kvöld- ið heldur sást einn- ig til Ellen Page og Chace Crawford úr Gossip Girl. Drew náði heldur bet- ur að enda kvöld- ið með stæl og sást yfirgefa tökustað með hinn ofur- myndarlega og sjar- merandi Chace upp á arminn. Tvíkynhneigð í öllum Þokkadísin Megan Fox telur að allir hafi þann eiginleika að vera tvíkynhneigðir. „Ég held að allar mannverur séu fæddar með get- una til að laðast að báðum kynjum. Ég gæti til dæmis séð sjálfa mig í sambandi með stelpu,“ segir Fox í viðtali við tímaritið GQ. „Til dæmis er Olivia Wilde svo sexí að hún fær mig til þess að vilja kyrkja uxa með berum höndum,“ heldur Fox áfram en Wilde er meðal annars nýjasta viðbótin við þáttinn House sem sýndur er á Skjá einum. Flagarinn á netið Lagið Womanizer með Britney Spears, eða Flagari eins og það kallast á íslensku, lak á netið fyrir útgáfudag. Lagið átti að koma út á mánudag en vegna þess að lagið lak út á netið fyrir helgi var útgáfunni frestað um viku. Womanizer er fyrsta lagið af væntanlegri plötu Britney sem kemur út á afmælisdag hennar 2. desember. Platan er sjötta breið- skífa Britney og mun heita Circus. Plötuumslag smáskífunnar lak einnig á netið en þar sést Britn- ey standa yfir fáklæddum manni. Umhverfi mynd- arinnar er í anda nafns plötunnar en það minnir á sirkus. Lagið verður endur- hljóðblandað áður en það kemur út næsta mánudag. Lagið Womanizer af væntanlegri plötu Britney lak út of snemma: Britney á leið í dansstúdíó Söngkonan gerir lítið annað en að æfa þessa dagana.Womanizer Útgáfunni var frestað um viku. Pamela Anderson varð stór- skelkuð þegar hún þurfti að yfir- gefa hótelherbergi í París sökum gruns um gasleka. Strandvarðar- skutlan var þó ekki skelkuð sök- um lekans heldur fannst henni það hræðileg tilhugsun að þurfa að yfirgefa hótelið án farða. Leik- konan var vakin klukkan níu um morgun á fimm stjörnu hótelinu í París af slökkviliðsmönnum sem skipuðu henni að yfirgefa hótelið og segir sjónarvottur að viðbrögð leikkonunnar hafi bara verið: „En hvað með málningar- dótið mitt? Ég verð að mála mig áður en ég fer út og greiða á mér hárið.“ Jafnframt sagði sjónar- votturinn að þar sem hún hefði staðið í herbergisdyrunum með úfið hár, óförðuð, í baðslopp hafi hún litið út fyrir að vera háaldr- að gamalmenni fremur en kyn- tákn. Versta martröð Pamelu Drew Barrymore var með Justin Long Leikkonan var því ekki par ánægð með kirsten dunst sem hefur verið að slá sér upp með honum undanfarið. Sjúskuð og kjánaleg kirsten dunst var tíkarleg við drew, fyrrverandi kærustu Justins. Slegist um Justin drew og kirsten voru heldur hallærislegar baksviðs. Nældi í heitasta gæjann drew barrymore fór ekki tómhent heim heldur krækti sér í hinn myndarlega Chace Crawford.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.