Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Side 8
Miðvikudagur 28. SepteMber 20088 Fréttir Hrafnhildur Lilja Georgsdóttir yfir- gaf Ísland þann 3. apríl síðastliðinn. Hún hafði hætt með kærasta sín- um og ákvað að fara á vit ævintýr- anna úti í hinum stóra heimi. Fyr- ir tveimur og hálfum mánuði kom hún til Dóminíska lýðveldisins, þar sem hún tók við rekstri á gistiheim- ili á íðilfögru ferðamannaströndinni Cabarete og lét draum sinn rætast. Síðdegis í fyrradag fannst lík hennar í baðherbergi íbúðar hennar á gisti- heimilinu. Henni höfðu verið veittir ýmsir áverkar, meðal annars var hún stungin fimm sinnum með hnífi. Hún fannst fimmtán klukkustund- um eftir að hún lést. Vildi hjálpa fólki Hrafnhildur Lilja var frá Ólafs- vík. Hún flutti til Reykjavíkur haust- ið 2005. Hún hafði mikinn áhuga á tungumálum og ferðalögum. Áður en hún yfirgaf Ísland starfaði hún í móttöku og daglegum rekstri í lík- amsræktarstöðinni Sporthúsinu í Kópavogi. Þar var hún þekkt fyrir já- kvætt viðhorf og einstaka brosmildi. Henni þótti gaman að dansa og fór gjarnan á dansnámskeið. Löngun hennar stóð til þess að verða „life coach“ og ætlaði hún á námskeið til þess. Það starf felur í sér að hjálpa fólki að ná markmiðum sínum, bæði hvað varðar heilsu og anda. Ferð án fyrirheits „Ég er að ferðast án tiltekinnar stefnu eða endadagsetningar,“ skrif- aði Hrafnhildur Lilja á bloggsíðu sína við upphaf ferðarinnar í vor. „Ég byrjaði á að yfirgefa Ísland þann 3. apríl 2008, fór til Ástralíu í rúma viku og eftir það til Dubai, UAE í þrjá mánuði. Núna er ég stödd í Dómin- íska Lýðveldinu að stjórna litlu hippa hóteli. Ég bý á strönd sem heitir Ki- tebeach, Cabarete, og er fræg fyrir íþrótt sem heitir brimbrettasvif „ki- tesurfing“ eða „kiteboarding“. Ég verð hér alla vega út janúar 2009 en þá endurskoða ég málin því eftir það er allt óákveðið.“ Ævintýri í Dóminíska lýðveldinu Þann 1. ágúst síðastliðinn skrifaði Hrafnhildur um veru sína í Dómin- íska lýðveldinu: „Eigandinn er hérna að hjálpa mér að komast inn í allt svo ég er formlega tekin við hótelinu og barnum/veitingastaðnum okkar. Allt gengur rosa vel og hann er mjög ánægður með vinnuna mína svo það er allt í himnalagi.“ Næst skrifaði hún 3. september til að fullvissa vini sína um að allt væri í lagi þótt ekki hefði heyrst frá henni. „Alveg rétt, það tekur jú bara smá stund að skrifa að ég sé á lífi. Und- anfarna daga er búið að rigna alveg heilmikið og í gær kom loks vindur með og local strákarnir hérna skelltu sér út á sjóinn, snarbrjálaðir en rosa gaman að sjá. Við tókum fram borð- tennis borð og ég setti á nýjan happy hour (gleðitíma með ódýru áfengi) fyrir gestina þar sem það voru all- ir blautir og kaldir og farið að leið- ast þar sem við höfðum ekkert raf- magn.“ Í síðustu færslu Hrafnhildar kom fram að mikið væri að gera hjá henni. Hún undi sér vel í Dóminíska lýðveldinu. Reiðarslag fyrir alla Samkvæmt upplýsingum frá Extreme-hótelinu í Cabarete bjó Hrafnhildur ein í íbúð á hótelinu. Hún var afskaplega vinsæl og „hafði allt sitt á hreinu“. Glaðlyndi henn- ar kryddaði tilveru annarra starfs- manna hótelsins og hún þótti mjög hlý í framkomu. Henni er lýst sem vingjarnlegustu manneskju sem hægt væri að hugsa sér. Lát hennar kom sem reiðarslag. Á vefsíðu fréttamiðilsins El Nuevo Diario kom fram í gær að Hrafnhildur Lilja hefði fundist á baðherberginu í íbúð sinni á Ex- treme-hótelinu. „Lögreglan hef- ur ekki handtekið neinn, en rann- sóknarlögreglumenn telja morðið bera einkenni ástríðuglæps,“ sagði þar. Ástríðuglæpur Rafael Fermine, ríkislögreglu- stjóri í Dómíníska lýðveldinu, sendi í gær fimm manna lögregluteymi til Cabarete til að finna morðingja Hrafnhildar. Thomas Fernandes, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglu Dóminíska lýðveldisins, staðfesti í gærkvöldi að hún hefði verið stung- in ítrekað með eggvopni um allan líkamann. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er líklegt að hún hafi þekkt gerandann eða gerandurna. „Lögreglan hefur sterkan grun um að þetta hafi verið ástríðuglæpur,“ segir Fernandes. Þeir sögðust í gærkvöldi leita morðingjans logandi ljósi og vera komnir nálægt því að hremma hann. „Venjulega eigum við mest- an möguleika á að ná morðingjan- um fyrstu 48 klukkustundirnar. Þess vegna erum við að vinna hörðum höndum að því að upplýsa þetta núna,“ segir Fernandes. Enginn var í haldi lögreglunnar þegar DV náði tali af honum. Hann gat ekki gefið meiri upplýsingar, þar sem það gæti spillt fyrir rannsókn málsins. Hann tók þó fram að lögreglan væri á réttri leið. „Við erum mjög nálægt því að ná honum,“ sagði hann við DV seint í gærkvöldi. Robert Valentin, yfirmaður al- þjóðatengsla hjá ríkislögreglunni, sagði seint í gærkvöldi að marg- ir væru grunaðir. „Það er enginn einn grunaður. Við erum að skoða marga.“ Lifði lífinu til fulls Í gær kvöddu vinir Hrafnhildar hana á vefsíðu hennar. Hún var að- eins 29 ára gömul þegar hún lést. Vinur hennar skrifaði inn á blogg- síðu hennar undir fyrirsögninni „Síðasta færslan“: „Það er lítið sem orð geta bætt og skilningur minn á því af hverju eða frekar hvern- ig svona hlutir geta gerst er enginn. Kæru vinir sem lesið þetta, ég votta ykkur samúð mína. Það er skelfilegt að sjá á eftir svona góðri stelpu sem hún var og ekkert, hvorki tími né orð, geta breytt því.“ Systir hennar kvaddi hana einn- ig: „Elsku Hrafnhildur, fallega ynd- islega systir mín. Ég get ekki skil- ið afhverju þú varst tekin frá okkur, þú varst svo lífsglöð og skemmtileg og gerðir aldrei flugu mein. Þú varst ung kona í leit að ævintýrum og hafðir gaman að lífinu.“ Þeir sem þekktu Hrafnhildi eru sammála um að hún hafi verið sér- staklega lífsglöð og að hún hafi kunnað að gera það mesta úr lífinu sem hægt var. Vinkona hennar kveð- ur hana með eftirfarandi orðum: „Ég þekkti enga manneskju sem kunni að lifa lífinu eins mikið til fulls og þú og ég dáðist alltaf að þér.“ Myrt í paradís Jón BJaRki magnússon og Boði Logason blaðamenn skrifa: jonbjarki@dv.is og bodi@dv.is Lögreglan í Dóminíska lýðveldinu sagðist seint í gær vera nálægt því að ná meintum morðingja Hrafnhildar Lilju georgsdóttur. Hún hafði verið búsett þar í rúma tvo mánuði þegar hún var myrt á baðherbergi á hótel- inu þar sem hún starfaði. Hún var stungin ítrekað með eggvopni um allan líkamann. Vinir og vandamenn Hrafnhildar hafa kvatt hana á Facebook-síðu hennar. Hún hafði farið í heimsreisu til að finna sjálfa sig. „Lögreglan hefur sterkan grun um að þetta hafi verið ástríðuglæpur.“ Hrafnhildur Lilja georgsdóttir Hún lifði lífinu til fulls og var dáð af öllum sem þekktu til hennar. Hrafnhildur ásamt vini sínum Hún var vinsæl hvar sem hún kom og þótti bæði brosmild og einstaklega jákvæð. Hrafnhildur í Dóminíska lýðveldinu Hún ætlaði að tileinka líf sitt því að hjálpa fólki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.