Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Page 10
Miðvikudagur 24. SepteMber 200810 Neytendur Lof&Last n Lofið fær iceland express fyrir afar góða þjónustu. viðskiptavinur var búinn að bóka ferð fyrir þrjá en kom svo í ljós að þriðji aðilinn komst ekki. Þegar hringt var í þjónustuver þótti lítið mál að endurgreiða ferðina að fullu. viðskiptavinurinn var afar ánægður með þetta. n Lastið fær pizza Hut. par fór út að borða og var óhresst þegar reikningurinn kom. Fyrir eina litla pítsu, eina miðlungs pízzu, brauð- stangir og tvö gosglös borguðu þau rúmar 5000 krónur sem að þeirra mati er afar mikið. Segjast ekki ætla þangað aftur. Samanburður á samlokum: Vel útilátnar samlokur Í grein sem birtist í seinasta helg- arblaði DV, sem bar heitið Dýrkeypt vara, var borið saman verð á mat- vöru og þjónustu á höfuðborgar- svæðinu. Í greininni var ekki gerður greinarmunur á gæðum og hráefni. Í einu dæminu var borið saman verð á samloku frá Þórsbakaríi og 12 tommu pítsabát frá Subway. Sagt var að samlokan væri á okurverði en í 12 tommu pítsabátnum fælist sparnaður. Eins og áður kom fram var ekki gerður ítarlegur samanburður á innihaldi, stærð og gæðum samlok- anna tveggja. Samlokan frá Þórs- bakaríi er að sögn eigenda gerð úr brauði sem bakað er úr úrvals hrá- efni. Í það er eingöngu notað spelt, rúghveiti eða annað hollt mjöl og það er án hvíts hveitis. Hægt er að velja um brauð með ólífum, sól- þurrkuðum tómötum og fræjum. Á brauðinu er fitusnauð sósa, líf- rænt ræktað blandað salat, fín kjöt- skinka, ostur, tómatur, gúrka, papr- ika og egg. Ljóst er að um gæðasamloku er að ræða og erfitt að bera saman við Subway-samloku. Einnig var sam- lokan sögð kosta 750 krónur í grein- inni en rétt verð er 700 krónur. Gullinbrú 165,70 181,60 Bensín dísel Skeifunni 163,10 177,90 Bensín dísel Skógarhlíð 165,20 179,60 Bensín dísel Eiðistorgi 163,00 177,80 Bensín dísel Melabraut 161,10 175,90 Bensín dísel Vatnagörðum 163,10 177,90 Bensín dísel Stórahjalla 164,20 180,10 Bensín díselel d sn ey t i Auglýsingum um vítamín- og steinefnabætta matvöru er gjarnan beint til barna. Börn þurfa í raun og veru ekki á þessum aukavítamínum að halda og hætta er á að börn neyti einfaldlega of mikils af þeim. Vítamínbætt morgunkorn eins og Cheerios ætti ekki að vera á morgunverðarborðinu á hverjum degi. Of mikið af því góða Hugað að höglunum Í kreppunni er þjóðráð að reyna að lifa af landsins gæðum. rækta kryddjurtir og sækja sér björg í bú á gamla mátann. Þeir sem ekki hafa tryggt fjölskyldu sinni byssuleyfi og góðan frethólk ættu að huga að því og fylla svo frystinn af svartfugli og grágæs. Þeir sem eru þegar byrjaðir að plaffa sér til matar ættu að huga vel að vopnabúrinu og birgja sig upp af skotfærum. Heimsmarkaðsverð á blýi fer nefnilega stöðugt hækkandi og þá hækka skotin í kjölfarið. Það er því ekki eftir neinu að bíða og um að gera að gera magninnkaup á skotfærum og fylla alla skápa af höglum sem í framtíðinni munu skila gómsætri villibráð á veisluborð heimilisins. Þó ber að hafa í huga að takmörk eru á því hversu mikið magn skotfæra hver og einn má kaupa og um að gera að gæta þess að halda magninu innan ramma laganna. „Sú mýta að það sé gott að taka nóg af vítamínum á ekki við um börn,“ seg- ir Jóhanna Eyrún Torfadóttir næring- arfræðingur. „Mestu áhyggjurnar eru að þau fái of mikið af A-vítamíni í lík- amann.“ Of mikil neysla á A-vítamíni getur haft slæm áhrif á börn og jafn- vel valdið lifrarskemmdum. Cheerios of vítamínbætt Börn þurfa ekki eins mikið af vít- amínum og fullorðnir þar sem þau eru viðkvæmari. Slíkt hefur eingöngu óæskileg áhrif á heilsu þeirra. Jó- hanna segir að mikið sé af vítamín- og steinefnabættum matvælum á markaðnum í dag og auglýsingar um þau beinist oftar en ekki að börnum. Sem dæmi má nefna að hið vinsæla Cheerios er mikið vítamínbætt og telur Jóhanna ekki æskilegt að börn borði það daglega. Sem dæmi um hversu auðvelt er fyrir börn að fá vít- amín setti Jóhanna saman morgun- verð sem meðal annars inniheldur vítamínbætt matvæli. Meira en nóg Morgunverðurinn samanstend- ur af einni skál af Cheerios með skammti af Dreitli, hálfu glasi af ávaxtasafa frá Chiquita, einni barna- skeið af Krakkalýsi og einni fjölvítam- íntöflu án A- og D-vítamína. Næring- arefnin sem fást úr morgunverðinum eru: A-, D-, B6- og C-vítamín, járn og fólasín. Þau eru svo borin saman við ráðlagðan dagskammt. Í ljós kem- ur að með fyrstu máltíð dagsins er búið að fara langt yfir ráðlagðan dag- skammt fyrir öll næringarefnin, að A- vítamíninu undanskildu. Börn geta því hæglega fengið of mikið af vít- amínum og steinefnum og þarf bara eina máltíð til að það gerist. Hófleg neysla best „Ef foreldrarnir gefa börnum sínum fjölvítamín eða önnur fæðu- bótarefni þurfa þau að vera með- vituð um að börnin gætu verið að fá of mikið af vítamínum og stein- efnum,“ segir Jóhanna. Ef barn til dæmis borðar morgunverð þar sem er farið langt yfir ráðlagðan dag- skammt af vítamínum og fær svo lifur eða lifrarpylsu á leikskólanum er komið rosalega mikið af A-vítam- íni. Vert er að taka fram að betra er að börn fái A-vítamín úr jurtaríkinu en dýraríkinu. Dæmi um matvæli sem eru A-vítamínbætt eru bragð- bættu drykkirnir sem komu á mark- að ekki fyrir svo löngu. „Það er í lagi að neyta sums í hófi því það er ein- göngu dagleg neysla sem getur haft þessi slæmu áhrif,“ segir Jóhanna. NaMMikaup á réttuM degi Sælgæti er víða stór útgjaldaliður í heimilisbókhald- inu. Sumar bensínstöðvar og sjoppur hafa nam- midaginn í hávegum og bjóða allt að 50 prósenta afslátt af blandi í boka á laugardögum. Sælkerar ættu því hiklaust að sigta út þessa staði og gera stórinn- kaup á laugardögum. Moka bara og moka í marga poka og birgja sig upp fyrir komandi viku. Það kemur skemmtilega á óvart að sjá hversu lága upphæð maður er rukkaður um á laugardögum. neytendur@dv.is uMSjón: ÁSdÍS björg jóHanneSdóttir, asdisbjorg@dv.is Neyte ur Cheerios er mjög vítamín- bætt og ekki æskilegt til daglegrar neyslu fyrir börn. góð heilsa Mikilvægt er að foreldrar séu meðvitaðir um vítamíngjöf til barna sinna. áSdÍS BJÖrg JÓHaNNeSdÓttir blaðamaður skrifar: asdisbjorg@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.