Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Qupperneq 22
Miðvikudagur 24. SepteMber 200822 Fólkið
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver-
andi forseti lýðveldisins, prýðir
forsíðu nýjasta tölublaðs Nýs lífs.
Í viðtalinu er farið yfir ævi og störf
þessarar merku konu og talar Vigdís
lítillega um einkalíf sitt þrátt fyrir að
vera mjög prívat manneskja. „Hjóna-
band er auðvitað sjálfsagt ef maður
þarfnast. En kannski hef ég ekki farið
út í slíkt aftur vegna þess að ég var of
sjálfstæð fyrir karlmann.“ Þá er Vig-
dís spurð út í ástina og er hún fljót að
svara: „Ástin! Gat nú verið. Þetta er
ekta Nýs lífs spurning.“
Í útvarpshöllinni Efstaleiti er ver-
ið að taka upp Augu þín sáu mig eftir
Sjón í útvarpsleikgerð og leikstjórn
Bjarna Jónssonar. Það væri kannski
ekki í frásögur færandi ef Sjón sjálfur
færi ekki með hlutverk engils – eng-
ilsins Freude. Á vefsíðu Bjarts eru
Útvarpsleikhúsmenn sagðir þrumu
lostnir yfir hæfileikum skáldsins á
leiklistarsviðinu. Múm semur tón-
listina í verkinu en á meðal annarra
leikara eru Hanna María Karlsdótt-
ir og Hjalti Rögnvaldsson. Augu
þín sáu mig kom út árið 1994, hlaut
Menningarverðlaun DV og hefur
verið gefin út í fjölmörgum löndum.
Leikrtið verður á dagskrá Útvarps-
leikhússins á jóladag.
Sjón leikur
engil
einS og í
bíómynd
„Ég var í lestinni á leiðinni heim
úr skólanum þegar þetta gerð-
ist,“ segir Björn Bragi Arnarson
blaðamaður og fyrrverandi rit-
stjóri panama.is um þau ósköp
þegar ógæfumaður dró upp hníf
og ógnaði öðrum manni. Björn er
í Danmörku þar sem hann stund-
ar skiptinám við Viðskiptaháskóla
Kaupmannahafnar og var á leið
heim úr skólanum þegar atburð-
urinn átti sér stað.
„Það voru þarna tveir menn að
kljást. Annar var venjulegur borg-
ari en hinn var frekar tæpur,“ en
Björn segir að breski veðbank-
inn William Hill hefði gefið stuð-
ulinn 1,25 á að sá tæpi væri undir
áhrifum efna sem er ekki að finna
í lotukerfinu. „Þrátt fyrir að ég sé í
dag orðinn jafn danskur og smur-
brauð með skarkola, remúlaði og
sítrónu,“ segir Björn sem hefur nú
dvalið í Danmörku á aðra viku,
„tókst mér ekki að skilja nákvæm-
lega hvað fór á milli þeirra.“ Björn
segir það þó hafa komið fljótt í
ljós að ógæfumaðurinn var ein-
ungis að leita að veseni, sama í
hvað formi það væri. En skömmu
síðar hófust handalögmál á milli
mannanna.
Áður en langt um leið tók
ógæfumaðurinn upp hníf og hóf
að hóta fórnarlambinu. „Fólki var
mjög brugðið og menn reyndu að
koma konum og börnum í skjól,“
en Björn segist sjálfur hafa haldið
ró sinni og verið í viðbragðsstöðu.
„Ég var ekki skelkaður fyrir mína
hönd en ég vonaðist að sjálfsögðu
til þess að hann myndi ekki beita
hnífnum.“
Þegar lestin nam svo loks-
ins staðar tókst Birni og öðrum
aðstandendum að stöðva lest-
ina nógu lengi svo að lögreglan
gæti yfirbugað árásarmanninn.
„Ég stökk á hurðina og tókst að
troða mér á milli svo lestin færi
ekki af stað aftur. Björn segir það
hafa verið áhugavert að fylgjast
með fagmannlegum vinnubrögð-
um lögreglunnar. „Það voru strax
teknar upp byssur og manninum
komið í jörðina á sirka tveimur
sekúndum.
Þetta var eins
og í banda-
rískri bíó-
mynd.“
Björn segist
hafa rætt stuttlega
við fórnarlamb-
ið sem hafði barist
hetjulega við árás-
armanninn eftir að
lögreglan tók af hon-
um skýrslu. Björn segist
hafa sagt við hann: „Du
var som en helt,“ eða: „Þú
minntir á Guðlaug Frið-
þórsson þegar hann synti
marga kílómetra í land eftir
að Hellisey sökk í marsmán-
uði 1984,“ eins og hann segir
það þýða á íslensku.
Að þessu leiðindaatviki und-
anskildu líkar Birni lífið í Kaup-
mannahöfn vel. „Skólinn er frá-
bær og hér er gott að vera eins
og margir Íslendingar vita,“
segir Björn að lokum.
asgeir@dv.is
Blaðamaðurinn og fyrrverandi ritstjóri panama.is,
Björn Bragi Arnarson, varð vitni að því á leiðinni
heim úr skólanum þegar ógæfumaður ógnaði
manni með hníf. Björn segir það hafa verið eins og
í hasarmynd þegar lögreglan skarst í leikinn.
„Við erum alls ekki hættar, langt í
frá,“ segir Steinunn Camilla Sigurð-
ardóttir, einn af þremur meðlimum
stúlknasveitarinnar Nylon, en lítið
hefur borið á sveitinni síðan útrás
þeirra í Bretlandi stóð sem hæst.
Einar Bárðarson gaf frá sér til-
kynningu fyrr á árinu um að hann
væri hættur sem umboðsmaður
sveitarinnar. Steinunn segir þau
enn góða vini í dag þó svo að þau
vinni ekki lengur saman.
„Við erum allar að vinna í okkar
málum, erum alls ekki hættar, erum
bara ekki að gera neitt eins og er,“ út-
skýrir Steinunn sem vinnur í versl-
uninni Gull og silfur á Laugavegin-
um. Alma Guðmundsdóttir starfar
sem blaðamaður á Fréttablaðinu og
Klara Ósk Elíasdóttir stundar nám
við Háskóla Íslands.
Nylon er fyrsta íslenska stúlkna-
sveitin og var hún stofnuð af Ein-
ari Bárðarsyni á sínum tíma og sló
samstundis í gegn. Hápunkturinn á
ferli sveitarinnar var þó ævintýrið á
Englandi þar sem sveitin komst inn
á hina ýmsu vinsældalista. Steinunn
segir litlar breytingar verða á Nylon
og tekur það skýrt fram að þær séu
ekki í pásu.
„Okkur langar að skoða stefnu
sveitarinnar og pæla í þessu á eig-
in tíma. Við erum í raun að elta það
sem okkur finnst flott,“ segir Stein-
unn.
nylon ekki hætt
Hnífabardagi í KaupmannaHöfn:
of SjálfStæð
Lítið hefur borið á stúlknasveitinni Nylon undanfarið:
Nylon Stúlkurnar í Nylon eru allar að
sinna eigin verkefnum og taka sinn
tíma í að skoða stefnu sveitarinnar.
Björn Bragi Stökk
á lestarhurðina til
að stöðva lestina.
Danska lögreglan björn segir
það hafa verið eins og í bíómynd
þegar hún skarst í leikinn.
Myndin tengist ekki atburðinum.