Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2008, Side 16
Það blés ekki byrlega fyrir Íslands-
meistara Hauka gegn úkraínska
liðinu Zaporozhye þegar stutt var
liðið af seinni hálfleik í viðureign
liðanna í meistaradeildinni í gær.
Haukar voru undir, 17-13, í hálfleik
og mest 20-13 áður en mögnuð
endurkoma Íslandsmeistaranna
hófst. Haukar breyttu um varnarað-
ferð og söxuðu á forskotið jafnt og
þétt. Elías Már Halldórsson skoraði
svo sigurmark Hauka, 26-25, þegar
30 sekúndur voru eftir af leiknum
og þar við stóð.
Lið Zaporozhye er undirstað-
an í úkraínska landsliðinu og hefur
mikla reynslu af Evrópukeppnum.
Skyttur liðsins reyndust Haukum
erfiðar í gær en heimamenn fengu
ekki spólur af liðinu eins og til stóð.
„Þetta lið lék þrjá leiki gegn Viborg
frá Danmörku í fyrra og við áttum að
fá þær spólur. Þær týndust hins veg-
ar í pósti og þar með sáum við ekk-
ert. Vissulega fengum við upplýs-
ingar um liðið en það er aldrei það
sama og til dæmis fyrir markvörð-
inn að sjá skytturnar skjóta og skot-
mynstrin,“ sagði Aron Kristjánsson,
þjálfari Hauka, við DV í gær.
Hann var eðlilega hæstánægð-
ur með endurkomu sinna manna.
„Hún var frábær og liðið sýndi mik-
inn karakter. Ekki bara að koma til
baka upp á virðinguna og tapa með
einu marki eða jafna heldur unnum
við leikinn. Við spiluðum illa fyrstu
35 mínúturnar þar sem hefðbund-
inn varnarleikur okkar gekk ekki.
Við þurftum þá að prófa nýja hluti
til að brjóta sókn þeirra niður sem
heppnaðist algjörlega,“ sagði Aron
ánægður.
Haukar leika næst gegn ung-
verska stórveldinu Fotex Vezsprém
sem lagði Flensburg að velli í gær.
tomas@dv.is
mánudagur 6. október 200816 Sport
Sport Volæði hjá ToTTenham Hull sem lagði arsenal um síðustu helgi heldur áfram að koma á óvart í ensku úrvalsdeildinni. Í gær lögðu ný-liðarnir fjendur arsenal frá norður-Lundúnum, tottenham, 1-0, og aftur skoraði brasilíumaðurinn geovanni gull af marki. Í þetta skiptið beint úr aukaspyrnu. Hull er því með 14 stig í þriðja sæti deildarinnar þegar sjö umferðum er lokið. Hull er með tólf stigum meira en tottenham sem er rótfast á botninum með tvö stig eftir jafnmarga leiki og hefur ekki enn unnið leik í ár. tottenham getur huggað sig við að stutt er í næstu lið fyrir ofan en til þess þarf liðið þá allavega að vinna leik. Heitt er undir Juande ramos, stjóra liðsins, svo vægt sé til orða tekið.
ÚRSLIT
Powerade-bikar úrslit
ÚRSLITALEIKUR KARLA:
KR - Grindavík 98–95
Stig KR: Jason Dourisseau 29 (17 frák.), Jón
Arnór Stefánsson 18 (10 stoðs.), Jakob Örn
Sigurðarson 17, Helgi Már Magnússon 11, Darri
Hilmarsson 11, Fannar Ólafsson 8, Skarphéðinn
Ingason 4.
Stig Grindavíkur: Brenton Birmingham 26 (9
frák., 6 stoðs.), Páll Axel Vilbergsson 21, Damon
Bailey 19 (10 frák.), Helgi Jónas Guðfinnsson 11,
Þorleifur Ólafsson 9, Páll Kristinsson 6, Guðlau-
gur Eyjólfsson 2, Arnar Freyr Jónsson 1.
ÚRSLITALEIKUR KVENNA:
Keflavík - KR 82–71
Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 25, Pálína
Gunnlaugsdóttir 15, Svava Ó. Stefánsdóttir
14 (12 frák.), TaKesha Watson 11, Rannveig
Randversdóttir 7, Ingibjörg Vilbergsdóttir 6, Lóa
Másdóttir 3, Bryndís Guðmundsdóttir 1.
Stig KR: Hildur Sigurðardóttir 19 (15 frák.),
Guðrún Ámundadóttir 18, Sigrún Ámundadót-
tir 17 (11 frák.), Helga Einarsdóttir 6, Kristín
Jónsdóttir 5, Rakel Viggósdóttir 4, Guðrún Gróa
Þorsteinsdóttir 2.
handbolti meistarad.
Haukar - Zaporozhye 26–25
Mörk Hauka: Freyr Brynjarsson 4, Sigurbergur
Sveinsson 4, Elías Már Halldórsson 3, Gísli Jón
Þórisson 3, Kári Kristján Kristjánsson 3.
eimskiPsbikar karla
Stjarnan - Víkingur 27–26
Mörk Stjörnunnar: Hermann Björnsson 6,
Kristján Svan Kristjánsson 4, Fannar Friðgeirsson
4, Guðmundur Guðmundsson 3, Ragnar Már
Helgason 3, Fannar Þorbjörnsson 3, Jón Heiðar
Gunnarsson 2, Ólafur Sigurjónsson 1, Roland
Valur Eradze 1.
Mörk Víkings: Davíð Georgsson 8, Sveinn
Þorgeirsson 6, Davíð Ágústsson 3, Þröstur Þráins-
son 2, Brynjar Loftsson 2, Sverrir Hermannsson 2,
Pálmar Sigurjónsson 1, Sigurður Örn Karlsson 1,
Hjálmar Þór Arnarsson 1.
Stjarnan 3 - Fjölnir 25–22
Patrekur Jóhannesson skoraði 5 mörk fyrir
Stjörnuna 3 og Valdimar Grímsson 2.
Stjarnan 2 - Valur 2 27–26
enska úrvalsdeildin
West Ham - Bolton 1–3
0-1 Kevin Davies (30.), 0-2 Gary Cahill (34.), 1-2
Carlton Cole (69.), 1-3 Matthew Taylor (86.).
Chelsea -Aston Villa 2–0
1-0 Joe Cole (21.), 2-0 Nicolas Anelka (44.).
Man. City - Liverpool 2–3
1-0 Stephen Ireland (19.), 2-0 Javier Garrido (41.),
2-1 Fernando Torres (55.), 2-2 Fernando Torres
(73.), 2-3 Dirk Kuyt (90.+3).
Portsmouth - Stoke 2–1
1-0 Peter Crouch (25.), 1-1 Ricardo Fuller (48.), 2-1
Jermain Defoe (51.).
Tottenham - Hull 0–1
0-1 Geovanni (11.).
Everton - Newcastle 2–2
1-0 M. Arteta (17, víti.), 2-0 M. Fellaini (35.), 2-1 S.
Taylor (44.) , 2-2 D. Duff (46.).
STaðan
lið l U j T m St
1. Chelsea 7 5 2 0 14:3 17
2. Liverpool 7 5 2 0 10:4 17
3. Hull 7 4 2 1 10:11 14
4. arsenal 7 4 1 2 13:5 13
5. aston V. 7 4 1 2 12:10 13
6. West H. 7 4 0 3 14:13 12
7. Portsmth 7 4 0 3 9:13 12
8. man. utd. 6 3 2 1 8:4 11
9. Wba 7 3 1 3 7:7 10
10. blackb. 7 3 1 3 8:14 10
11. man. C. 7 3 0 4 18:12 9
12. m.boro. 7 3 0 4 7:9 9
13. Wigan 7 2 2 3 9:6 8
14. Sunderl. 7 2 2 3 7:9 8
15. everton 7 2 2 3 11:15 8
16. bolton 7 2 1 4 8:10 7
17. Fulham 6 2 0 4 5:7 6
18. newcas. 7 1 2 4 7:13 5
19. Stoke 7 1 1 5 8:14 4
20. tottenh. 7 0 2 5 4:10 2
Það verður seint talað um haustbrag á úrslitaleik Powerade-bikars karla sem
fram fór í gær. KR lagði þar Grindavík 98-95 með flautukörfu frá nýja Kananum
jason Dourisseau. Frábæra sóknartakta, baráttu og allt sem góðan úrslitaleik
prýðir mátti sjá í gær. Meira að segja smá slagsmál rétt til að krydda annars góð-
an leik. „Er þetta ekki gamla, góða klisjan, frábær auglýsing fyrir körfuboltann?“
sagði Páll axel Vilbergsson, leikmaður Grindavíkur, við DV eftir leik.
Flautukarfa Jasons Dourisseau sem
tryggði KR 98-95 sigur á Grindavík
í úrslitum Powerade-bikars karla
í gærkvöldi var toppurinn á ann-
ars frábærum körfuboltaleik. Liðin
höfðu sig frekar hæg í vörninni en í
sókninni mátti sjá endalaus tilþrif og
fengu áhorfendur í Laugardalshöll
meira en nóg fyrir peninginn í gær-
kvöldi.
Nýi Kaninn í liði KR, Dourisseau,
sem skoraði sigurkörfuna átti frá-
bæran leik, skoraði 29 stig og tók 17
fráköst. Í sókninni áður fékk hann
úrvalstækifæri til að gera út um leik-
inn en klikkaði á sniðskoti er hann
fékk boltann á lofti eftir innkast. „Ég
varð að skora þessa flautukörfu því
áður hafði ég klúðrað fjórum snið-
skotum eða einhverju viðlíka á loka-
kaflanum. Þegar Helgi [Már Magn-
ússon] rétti mér boltann gat ég ekki
annað en stokkið upp,“ sagði Jason
hinn kátasti við DV eftir leikinn.
Tveir góðir
Þreyfingar, stöðubarátta og fleiri
orð sem eru notuð um hæga byrjun á
kappleikjum þarf ekki að nota talandi
um þennan leik. Bæði lið gengu rak-
leitt til verks og röðuðu niður körfun-
um hvort í andlitið á öðru. Damon
Baily sem gekk í raðir Grindavíkur
FLAUTUKARFA Í FYRSTA
ÚRSLITALEIK ÁRSINS
TÓmaS ÞÓR ÞÓRðaRSon
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
meistarar
Fannar ólafsson lyfti
Powerade-bikarnum í leikslok.
Ótrúleg endurkoma að Ásvöllum
Haukar lögðu úkraínska liðið Zaporozhye í meistaradeildinni í gær:
Í gegn
einar Örn Jónsson fer inn úr
horninu að ásvöllum í gær.
mynd / Sigtryggur ari